4. vaktin

Hlaðvarpið 4 vaktin

Við heitum Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir og erum mæður á 4. vaktinni. Þegar við tölum um 4. vaktina þá erum við að vitna í þær vaktir sem við erum ósjálfrátt sett á í lífinu okkar. 1 vaktin er þá hefðbundinn vinnudagur, endurhæfing eða annað, 2. vaktin er það sem við þurfum að gera utan vinnutíma og 3. vaktin er huglæg og einsskonar verkstjórn yfir 2 vaktinni. Fyrir foreldra langveikra og eða fatlaðra barna þá er 2 og 3 vaktin umfangsmeiri og þess vegna ætlum við að tala um hana sem 4. vaktina. Við spjöllum um réttindi, þjónustu ofl og við aðra foreldra og fagfólk.

  1. 5 days ago

    89. Unnur Kristín Óladóttir - móðir einhverfs barns

    Við fengum Unni Kristínu Óladóttir til okkar en hún hefur verið mjög opin á samfélagsmiðlinum Instagram, þar deilir hún frá lífinu sínu og sýnir og segir frá á einlægan hátt. Unnur á sjálf 2 stráka ásamt því að vera stjúpmóðir. Yngri strákurinn hennar Zion er einhverfur og hún hefur opnað umræðu um einhverfuna og að vera móðir einhverfs barns. Zion er 4 ára glaður og söngelskur strákur og það er einstaklega gaman að fá innsýn í þeirra líf.  Instagram - unnurola.is Unnur er gullsmiður og vinnur í fjölskyldufyrirtækinu- Gullsmiðja Óla þar sem foreldrar hennar og systur vinna saman. Unnur er einkaþjálfari og býður einnig upp á fjarþjálfun, það er aðalvinna hennar og sýnir hún líka frá því á sínum miðli. Við mælum eindregið með að fylgja henni.  Unnur kom ásamt Alexöndru og Ingveldi fyrir stuttu til okkar og þær sögðu okkur frá starfi Íslensku barnahjálparinnar í Kenía. Þær hafa allar farið til Kenía og unnið gríðarlega mikilvægt hjálparstarf í þágu barna. Við mælum með að hlusta á þann þátt líka. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og hjálpartækjaleiga sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

  2. 10 Jul

    87. Íslenska barnahjálpin í Kenía 

    Íslenska barnahjálpin í Kenía  Heimasíða: islenskabarnahjalpin.is Það er magnað að hlusta á þessar  þrjár konur segja frá sjálfboðaliða starfinu og lífinu úti í Kenía þar sem Íslenska Barnahjálpin er að reka barnaskóla ásamt því að aðstoða einstæðar mæður. Þær Unnur Kristín Óladóttir, móðir, gullsmiður og einkaþjálfari og Alexandra Noor Douglas, frumkvöðull eru nýkomnar úr sinni fyrstu ferð til Kenía en ekki sinni seinustu ferð eins og þær taka báðar fram. Þær tvær fóru ásamt mökum sínum Tamar og Ara en tengdamamma þeirra Þorgerður Elísdóttir hefur verið stór partur af starfinu úti. Ingveldur Ýr Jónsdóttir fór fyrst árið 2018 og hefur farið nánast árlega út ásamt maka sínum Ársæli Hafsteinsson og dóttir sinni Jasmínu og eru þau einnig mikill hluti starfsins og talar Ingveldur um hvað þetta starf sé dýrmætt fjölskyldunni í heild.  Það þarf að hlusta á þáttinn allann til að skilja umfang starfsins og hversu áhrifaríkt það er. Starfið snertir greinilega marga bæði Íslendinga jafnt og Keníu búa.  Að styðja við börn til skólagöngu og við uppbyggingu skólanna er einn stærsti hluti hjálparstarfs (ÍB). Skólarnir í Kenía eru staðsettir í Nairobi og í Loitoktok sem er í Masaailandi við rætur Kilimanjaro.  En það er ekki það eina sem starfið snýst um og segja þær frá heimsóknum sem þær fóru í til einstæðra mæðra og hjálpuðu þeim meðal annars að byggja upp fyrirtæki.  Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og hjálpartækjaleiga sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum. Þeir sem hafa áhuga að fara í sjálfboðaliðastarf úti eða ævintýra ferð, þá er það ferðaskrifstofan Ferðasýn sem sér um ferðirnar og það er í boði að sérhanna ferð eftir sínum þörfum. Þá er hægt að blanda saman sjálfboðaliða ferð og ævintýra, það er boðið upp á Safari og fleiri afþreyingar.  -Hægt er að styðja við starfið með að gerast styrktarforeldri barns og kostar það 4.500 krónur á mánuði. Með því er verið að styðja við skólagöngu, skólagögn og 1 máltíð á dag. -Hægt er að kaupa gjafabréf og fær  handhafinn fallegt gjafabréf með tilheyrandi texta í hendurnar. Einnig hægt að styðja við starfið með frjálsum framlögum. -Öll framlög til ÍB eru forskráð sem skattaafsláttur á næsta skattframtali. -Hægt er að fylgjast með Íslensku Barnahjálpinni á samfélagsmiðlum eða á heimasíðu samtakanna. - barnahjalpin@gmail.com

  3. 26 Jun

    86. Team Rynkeby hjólarar sem safna fyrir Umhyggju

    Nýjustu gestir hlaðvarpsins ​ vaktin eru Steffy Þórólfs sem er hluti af Team Rynkeby hjólahópnum núna í ár og Louisa Sif sem hefur tvisvar sinnum verið þátttakandi með liðinu. Team Rynkeby samtökin eiga 25 ára afmæli í ár. Þátttakendur hjólaárið 2025-2026 eru um 2500 hjólarar og um 500 aðstoðarfólk í 68 liðum frá 9 löndum auk evrópu liðs. Ísland hefur tekið þátt frá árinu 2017 og er þetta því 10. tímabilið. Allt fjármagn sem þau safna rennur óskipt til rannsóknasjóðs Umhyggju, regnhlífa samtök langveikra barna sem vinna að bættum hag barna með umfangsmiklar stuðningsþarfir og fjölskyldna þeirra. Innan Umhyggju starfa 19 félög og samtök.  Það er auðvelt að hrífast með þessu flotta framtaki og verkefni sem fólk er tilbúið að taka sér fyrir hendi fyrir gott málefni. Mælum með að finna Team Rynkeby á samfélagsmiðlun og fylgjast með æfingum og ferðinni sjálfri. Ferðin árið 2026 er farinn 4. Júlí. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og hjálpartækjaleiga sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

  4. 19 Jun

    85. Jafningastuðningur inn á geðdeild

    Þessi þáttur er kannski nokkuð óhefðbundinn fyrir 4.vaktina en þó sáum við þessa umræða gagnast okkar hlustendahópi.  Við viljum byrja á að taka það fram að það er talað um sjálfsvíg og sjálfsvígshugsanir í þessum þætti. Umræðan endurspeglar ekki allt sem kemur að þessu málefni. Ef þú ert að upplifa sjálfsvígshugsanir þá mælum við alltaf með að leita aðstoðar. Sem aðstandendi er hægt að leita sér ráðgjafar hjá félagasamtökum eins og Píeta og fleiri stöðum.  Í þessum þætti erum við að tala um ákveðna aðferðafræði og nálgun og skal taka það fram að sú nálgun á ekki við í öllu meðferðarstarfi eða þegar farið er til fagaðila.  Við bendum á að sem dæmi er hægt að leita til: -Bráða móttöku Geðdeildar Landspítala -Píeta samtökin -Hjálparsíma Rauða Krossins 1717 Við kynntumst henni Nínu Eck á málþingi Umhyggju árið 2025 sem bar nafnið Fjórða vaktin og þar var hún með fræðslu um jafningastuðning. Við í 4.vaktinni höfum talað mikið með kostum jafningastuðnings og hafa félagasamtök á borð við Umhyggju, Sjónarhól, ADHD samtökin, Einhverfusamtökin og mun fleiri boðið upp á slíkan stuðning fyrir fötluð /langveik börn og fjölskyldur þeirra.  Þannig okkur fannst vel við hæfi að fræðast um hvað það er að vera jafningi og hvað jafningastuðningur sé í raun.  Þessi þáttur er mjög dýrmætur þar sem þær gefa okkur innsýn í sína geðheilsu, upplifanir og líf ásamt því að fræða okkur um hvað jafningastuðningur er og hvernig námið fer fram. Við fengum Nínu Eck ásamt Ástu Guðrúnardóttir til okkar en þær starfa báðar á Geðdeild Landspítalans. Þær eiga það sameiginlegt að hafa báðar reynslu af geðheilbrigðiskerfinu sem notendur. Nína Eck var greind með jaðarpersónuleikaröskun þegar hún var 24 ára eftir að hafa upplifað sjálfsvígshugsanir frá því hún var 11 ára. Hún upplifði jaðarsetningu og fordóma á eigin skinni og veit hversu erfitt það er að byggja sér heilbrigt og gefandi líf þegar myrkrið er tíður gestur. Sem hluti af hennar endurhæfingu heillaðist hún af mannúðlegri og dómlausri nálgun félagsráðgjafa og útskrifaðist sem slíkur 2024. Nína vann sem jafningi í Geðþjónustu LSH meðfram náminu og öðlaðist leiðbeinandaréttindi í Intentional Peer Support jafningjanámskeiði 2023.  Nína vill leggja réttindabaráttu geðveikra lið með því að innleiða jafningjastuðning á þann hátt að hann stuðli að pólítískri frelsun, inngildingu og hlýju í garð þeirra sem hafa fengið geðgreiningar.  Ásta Guðrúnardóttir upplifði það sem skilgreint er sem geðrof fyrst árið 2012. Hún sér þetta sem skilgreiningu á andlegri uppljómun sem orsakaðist á skorti á raunverulegum tengslum. Þó manneskja sé umvafin fólki þá skiptir máli að það sé frelsi fyrir alla, samkennd og engin þöggun. Eftir mörg ár af bara venjulegu lífi, vann sem hljóðmaður að döbba teiknimyndir sat í henni að deila heilun sinni með öðrum. Hún rakst þá á starfsauglýsingu fyrir jafningja á Landspítala og hefur starfað í hlutastarfi þar undanfarin ár. Árið 2025 kláraði hún nám hjá Yale í bandaríkjunum sem kallast “Lets lead” og er leiðtoganám fyrir fólk með lifaða reynslu.  Þó að kannski ekki væri hægt að greina hana með neitt í dag og hún þarf engin lyf hefur hún einsett sér að halda þessum félagslega stimpli þar til fordómar hætta að hindra fólk í bata og taka kjark frá þeim. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild: godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu . Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Childs Farm Í Childs Farm eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Hagkaup, Krónan, Fjarðarkaup og apótekum um land allt.

  5. 28 May

    84. Spjall við systkini fatlaðra barna - Hera og Vala

    Í þessum þætti fengum við til okkar Heru Arnardóttur og Völu Fanneyju Farestveit. Þær eru báðar á menntaskólaárunum, Hera að kveðja þau og útskrifaðist í vor og Vala að ljúka fyrsta ári.  Þær komu til okkar í þáttinn til að ræða það einstaka hlutverk sem þær eru báðar deila en þær eru systur fatlaðra barna.  Í þættinum fáum við að hlusta á einlæga lýsingu þeirra af því hlutverki og hvernig það er að eiga fatlað systkini. Þær báðar hafa góða innsýn inn í hvað er eins og hvað er frábrugðið þar sem þær eiga fleiri systkini. Það sem einkennir þáttinn einna helst er hvað þær hafa góða sýn á lífið og hvernig sú reynsla að kynnast veruleika fatlaðs fólks hefur haft mótandi áhrif á þær.  Sjón er sögu ríkari eða eyru eru sögu betur lýsandi og leggjum við því til að skella sér beint í hlustun á þessum skemmtilega þætti. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

  6. 27 May

    83. Börn með fötlun á Íslandi. Þáttur á pólsku - Dzieci z niepełnosprawnością na Islandii.

    Þessi þáttur er á pólsku Draumurinn okkar í hlaðvarpinu 4.vaktin er að gera upplýsingar aðgengilegar fyrir sem fjölbreyttasta hópinn.  Að geta boðið upp á fræðslu á fleiri tungumálum en Íslensku er einn liður í þeim draumi. Það hefðum við aldrei getað gert nema með Kötu og Kasiu sem að sáu um nánast allt! Eina sem við gerðum var að segja þeim okkar hugmynd og hvað myndum helst vilja að kæmi fram. Þúsund þakkir til ykkar. Katarzyna Kubis (kölluð Kasia) er tveggja barna móðir, þar á meðal móðir 14 ára gamalls fatlaðs drengs. Hún er þroskaþjálfi að mennt og vinnur sem verkefnastjóri í málefnum fatlaðra barna hjá Þroskahjálp, ásamt því að leiða aukalega stuðningshópana fyrir pólska foreldra fatlaðra og einhverfa barna sem búa á Íslandi. Katarzyna Þóra Matysek (kölluð Kata) er 3 barna móðir, heldur úti 2 hlaðvörp á pólsku, ÍSAT kennari og brúarsmiður Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.  Spis najważniejszych instytucji i pojęć poruszonych w odcinku:   Island.is/fötluð börn Główny portal rządowy z informacjami o usługach, dostępny również w języku polskim (poprzez wbudowany tłumacz). https://island.is/lifsvidburdir/fotlud-born Tryggingastofnun (TR) – Zakład Ubezpieczeń Społecznych Odpowiada za zasiłek opiekuńczy (Umönnunargreiðslur), który jest nieopodatkowany i przyznawany na podstawie orzeczenia o niepełnosprawności. Strona: https://www.tr.is/ Sjúkratryggingar Íslands – Islandzkie Ubezpieczenia Zdrowotne Zajmują się dofinansowaniem sprzętu (wózki, tablety komunikacyjne, itp.), leków oraz środków higienicznych (np. pampersów). Strona: https://www.sjukra.is/ Gminne Centra Usług Społecznych (Þjónustumiðstöð) Pierwszy punkt kontaktu. Tu wnioskuje się o: Akstursþjónusta – transport do szkoły. Liðveisla / Einstaklingsstuðningur – asystent osobisty. Stuðningsfjölskylda – opieka wytchnieniowa (rodzina wspierająca). Félagsráðgjafi/ráðgjafi – Doradca socjalny Należy zgłosić się do centrum usług społecznych w swoim miejscu zamieszkania  Umhyggja – Stowarzyszenie dzieci przewlekle chorych i niepełnosprawnych Oferuje kursy dla rodzeństwa, terapię zajęciową, pomoc prawną, wynajem domków letniskowych oraz darmowe smycze ze słonecznikami (Sólblómabandið) dla osób z niewidzialną/ukrytą niepełnosprawnością. Strona: https://www.umhyggja.is/ Ráðgjafar- og greiningarstöð  Państwowy ośrodek doradczo-diagnostyczny zajmujący się diagnozowaniem dzieci i szeroko zakrojonym doradztwem. Strona: https://www.greining.is/ 7. Inne stowarzyszenia i kluby sportowe: https://www.einstokborn.is/ https://glofelag.is/ https://www.gerpla.is/deildir/parkour/ https://ifsport.is/ https://fjordursport.is/ Wsparcie Społecznościowe (Facebook) Grupa: „Autyzm, ADHD i niepełnosprawność na Islandii” – kluczowe miejsce wymiany doświadczeń dla polskich rodziców. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00. Þau eru með mikið af lausnum í boði. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Childs Farm Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína. Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

  7. 19 May

    82. Þroskahjálp - Landssamtök

    Til okkar komu Guðmundur Ármann Pétursson formaður og  Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri frá Þroskahjálp. Þroskahjálp vinnur að fjölbreyttum verkefnum í hagsmunagæslu fatlaðs fólks.  Við hvetjum alla þá sem hafa tök á að styðja við starf Þroskahjálpar með eingreiðslu, mánaðarlegu framlagi eða versla vefverslun throskahjalp.is Landssamtökin Þroskahjálp voru stofnuð haustið árið 1976 í því skyni að sameina þau félög, sem vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með það að markmiði að tryggja því fullt jafnrétti á við aðra. Aðildarfélög Þroskahjálpar eru 22 talsins og eru þau foreldra- og styrktarfélög, svo og fagfélög fólks sem hefur sérhæft sig í þjálfun og þjónustu við fatlað fólk. Félögin eru starfrækt um allt land og eru félagsmenn þeirra u.þ.b. sex þúsund. Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.  godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117 Mobility Aid: Mobility verslun er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00. Hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is Childs Farm Childs Farm - hreinlætisvörur Eru með nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.  Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð. Sölustaðir: Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið ögn breytilegt eftir verslunum.

Ratings & Reviews

4.3
out of 5
4 Ratings

About

Við heitum Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir og erum mæður á 4. vaktinni. Þegar við tölum um 4. vaktina þá erum við að vitna í þær vaktir sem við erum ósjálfrátt sett á í lífinu okkar. 1 vaktin er þá hefðbundinn vinnudagur, endurhæfing eða annað, 2. vaktin er það sem við þurfum að gera utan vinnutíma og 3. vaktin er huglæg og einsskonar verkstjórn yfir 2 vaktinni. Fyrir foreldra langveikra og eða fatlaðra barna þá er 2 og 3 vaktin umfangsmeiri og þess vegna ætlum við að tala um hana sem 4. vaktina. Við spjöllum um réttindi, þjónustu ofl og við aðra foreldra og fagfólk.

You Might Also Like