Gervigreind

Javelin AI

Hlaðvarp um allt sem snýr að gervigreind

  1. 2 DAYS AGO

    #18 - Fréttaþáttur: Claude vs OpenClaw, TurboQuant, Autoresearch og fleira

    Tímamót hjá Javelin, TurboQuant og baráttan um besta líkaniðÍ þessum þætti ræðum við breytingar hjá Javelin og nýjustu vendingar í gervigreindarheiminum. Við veltum fyrir okkur hvort nýjustu líkönin séu í raun stóra fréttin eða hvort umgjörðin og tólin í kringum þau skipti orðið sköpum.Í þættinum er farið yfir:Framtíð Javelin: Pétur tilkynnir Fenra.is, sem mun nýta gervigreind fyrir byggingargeirann. Einnig kemur fram að Javelin muni brátt hætta með almenn námskeið til að einbeita sér að sérhæfðari verkefnum nær fararbroddi tækninnar.Baráttan um toppinn: Google, Anthropic og OpenAI hafa öll skipst á að eiga besta líkanið að undanförnu. Rætt er um fórnarkostnaðinn (trade-off) í tíma og peningum þegar nýju „thinking“ líkönin, líkt og GPT-5.4 Pro, eru notuð samanborið við hefðbundnari líkön.TurboQuant frá Google DeepMind: Kynning á nýju þjöppunaralgrími frá Google sem getur minnkað samhengisgluggann (context window) fimm- til sexfalt nánast án gæðataps. Þetta gæti gjörbylt bæði hraða og kostnaði við keyrslu stórra líkana.Auto Research: Stutt innlit í áhugavert tól beint úr smiðju Andrej Karpathy sem gæti skipt sköpum bak við tjöldin í vinnu við rannsóknir á gervigreind.Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.Ef þú vilt aðstoð frá Javelin við verkefni sem tengjast gervigreind, hafðu endilega samband:https://javelin.is/is/contactjavelin@javelin.is

    1hr 20min
  2. 27 JAN

    #16 - Hugbúnaðarlausnir eru of dýrar. Hvernig á að laga það?

    Hugbúnaðargerð getur verið dýr, flókin og tímafrek. En hvað gerist þegar lítil teymi geta skyndilega afkastað jafn miklu og heilu deildirnar hjá stóru tæknifyrirtækjunum? Í þessum þætti ræðir Pétur Már Sigurðsson við þá Viktor Margeirsson og Gunnar Kolbeinsson, stofnendur Test 13. Þeir settu LinkedIn á hliðina nýverið þegar þeir buðu öllum sem höfðu fengið tilboð frá stóru hugbúnaðarhúsunum (eins og Advania eða Origo) að vinna sama verkefni með 60% afslætti. Í þættinum er farið yfir: Hvernig þeir nýta Replit og gervigreind til að umbylta hugbúnaðarþróun. „Að brjóta LinkedIn“: Viðbrögðin við tilboðinu um 60% afslátt. Jevons Paradox: Af hverju ódýrari kóði þýðir í raun meiri atvinna og fleiri tækifæri. Nautgripabónda í Kenía sem smíðar hugbúnað á kvöldin. Hvernig „Vibe Coding“ er að lækka þröskuldinn svo hver sem er getur orðið forritari. Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega. Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:👉⁠ javelin.is/courses⁠ Ef þú vilt vita hvar þitt fyrirtæki er statt í gervigreindarvegferðinni taktu prófið: 👉⁠ ⁠javelin.is/ai-readiness Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

    58 min
  3. 21 JAN

    #15 - Vibe coding og vibe working

    Vibe coding og vibe working: Nýja verklagið með gervigreind Í þessum þætti kafa Sverrir og Pétur ofan í hugtak sem hefur verið að fara sigurför um tækniheiminn: „Vibe coding“ eða fílíngsforritun eins og þeir völdu að kalla það á íslensku. Við veltum því fyrir okkur hvernig vinnan okkar breytist þegar við hættum að skrifa hvern staf og byrjum þess í stað að stýra gervigreindinni eftir „vibe-inu“. Sverrir fagnar því jafnframt að tvær af spám hans fyrir árið 2026 eru þegar farnar að rætast, þótt árið sé varla byrjað. Í þættinum er farið yfir: Vibe coding og fílíngsforritun: Hvað þýðir það þegar forritun snýst meira um samskipti og sýn heldur en smáatriðin? Cursor, Replit og Lovable: Við ræðum tækin sem eru að gera fólki kleift að búa til flottan hugbúnað á met-tíma án þess að kunna hefðbundna forritun. Vibe working: Hvernig gervigreind gerir okkur kleift að taka að okkur verkefni langt utan okkar sérfræðisviðs – hvort sem það er markaðssetning, sala eða hönnun. Hættan á „glærusloppi“: Pétur segir frá reynslu sinni af Gamma.app sem býr til glærur út frá texta og við ræðum hvað gæti farið úrskeiðis. Nýtt hlutverk starfsmannsins: Mun sérþekking skipta minna máli en hæfnin til að ritstýra því sem gervigreindin skilar? Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega. Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: https://javelin.is/is/courses

    47 min
  4. 5 JAN

    # 13 - Málfríður Anna: Nám á tímum gervigreindar

    Nám á tímum gervigreindar: Svindl eða ný færni? (Gestur: Málfríður Anna) Í þessum þætti fær Sverrir til sín Málfríði Önnu Eiríksdóttur, tölvunarfræðing og verðandi verkfræðing, sem er við það að ljúka meistaranámi í gervigreind við DTU í Danmörku. Málfríður hefur upplifað það af eigin raun hvernig er að vera í háskólanámi á tímum þar sem leikreglurnar eru að breytast á ógnarhraða. Við ræðum „bleika fílinn“ í kennslustofunni, hvernig skólakerfið glímir við nýja tækni og hvort notkun gervigreindar í námi sé í raun svindl eða bara nauðsynleg þróun. Í þættinum er farið yfir: Nám á tímum gervigreindar: Málfríður segir frá reynslu sinni af námi í DTU þegar ChatGPT og önnur tól mættu skyndilega til leiks og breyttu öllu. „Secret Cyborgs“: Hvernig nemendur nota tæknina í felum þegar skólar hafa ekki skýrar reglur eða banna notkun alfarið. Djúpur skilningur vs. „Get Sh*t Done“: Fórnarkostnaðurinn við að nota gervigreind - missum við af djúpum skilningi á grunninum eða verðum við bara skilvirkari starfskraftar? Covid-gráður vs. AI-gráður: Samlíkingin við að útskrifast í heimsfaraldri; er litið hornauga á þá sem útskrifast með hjálp tækninnar? Er forritarinn að útrýma sjálfum sér? Pælingar um framtíðina, óttann við tæknina og hvort við séum að smíða tól sem leysa okkur sjálf af hólmi. Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega. Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: javelin.is/courses Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

    1hr 1min

Ratings & Reviews

4.3
out of 5
7 Ratings

About

Hlaðvarp um allt sem snýr að gervigreind

You Might Also Like