Hinrik.codes

Hinrik.codes

On Hinrik Codes, I explore the intersection of software, self-direction, movement, nutrition, and the story of Homo sapiens. hinrikcodes.substack.com

Episodes

  1. 17 MAR

    Te er kínversk jurt

    Á íslensku tölum við gjarnan um jurta-te og eigum þá við soðna myntu, blóðberg, rauðrunna, kamillu eða einhverjar aðrar jurtir en í rauninni er ekkert til sem heitir jurta-te. Þetta eru í raun seyði og því væri nær að tala um myntu-seyði, blóðbergsseyði, rauðrunnaseyði og þar fram eftir götunum. Orðið te eða “dei” er komið ur hokkien-kínversku sem er töluð í Fujian héraði og Tævan og táknar í rauninni tiltekin lauf af tiltekinni plöntu. Þessi planta kemur upphaflega frá suðvestanverðu Kína, nánar tiltekið frumskógi í Yunnan héraði. Þar vex hún sem undursamlega fallegt tré og frumbyggjarnir í Yunnan klifra í trjánum til að tína laufin. Þessi te-tré geta náð allt að 10–15 metrar á hæð. Te er þess vegna í raun og veru heiti á trjátegund eða plöntutegund en ekki regnhlífarhugtak yfir hvers kyns soðnar jurtir. Þetta er hinsvegar fyrir lifandi löngu orðin málvenja á Vesturlöndum sem ég held að við munum ekki ná að breyta. Það er samt ágætt að byrja á að skilgreina þetta heiti. Te er plöntutegund frá Kína. Seyði eru soð af alls konar plöntum eins og myntu og blóðbergi. Te og seyði er ekki það sama. Við getum líka sett þetta fram á stærðfræðilegu máli: T = the set of beverages derived from the Camellia sinensis plant (tea) S = the set of beverages derived from boiling any other plants (herbal infusions or decoctions) * ∃ x ∈ T : origin(x) = China→ There exists at least one element of T (tea) whose origin is China.(Te er plöntutegund frá Kína.) * ∀ y ∈ S : plant(y) ∈ {mynta, blóðberg, ...}→ For all y in S, the source plants are mint, thyme, etc.(Seyði eru soð af alls konar plöntum eins og myntu og blóðbergi.) * T ∩ S = ∅→ The sets T (tea) and S (herbal infusions) are disjoint.(Te og seyði er ekki það sama.) Stundum er reyndar þurrkuðum ávöxtum eða jurtum eins og myntu bætt út í te og ur því getur orðið til ágætis drykkur. Það sem ber þó að hafa í huga þetta er oft líka bara gert til að fela léleg gæði í teinu. Gott te á nefnilega að geta staðið alveg eitt og sér. Ef rétt er hellt upp á teið og við erum andlega til staðar þegar við drekkum það þá getum við uppgötvað mjög mikla dýpt í bragðinu. Við getum þá líka fengið furðulegustu minningar um hitt og þetta sem bragð tesins minnir okkur á. Fyrstu kynni Evrópumanna af tei Eins og áður sagði er orðið te upphaflega komið úr hokkien kínversku sem er töluð í Fujian héraði og Tævan en þar komust Hollendingar og aðrir Evrópumenn fyrst í kynni við te. Í Norðan-verðu Kína er te kallað “cha” og þaðan kemur til dæmis rússneska nafnið fyrir te. En Rússar versluðu mikið te við Kínverja. Fujian hérað býr yfir mikilli fjölbreytni þegar kemur að ræktun og vinnslu á te en það sem er hvað þekktast þaðan eru te af Wulong-flokki. Einnig er þar ræktað nokkuð af rauðu te og hvítu en ekki eins mikið af svörtu og grænu te. Bíðum nú við! Hver er eiginlega munurinn á rauðu, grænu, hvítu, svörtu og wulong te? Hérna gætir mikils misskilnings vegna þess að fyrstu Evrópumennirnir til að versla te við Kínverja komu aldrei inn í landið og sáu í raun aldrei framleiðsluferlið. Þeir horfðu bara á laufin í viðskiptahöfnunum og sáu að þau voru einkum tvenns konar: Annars vegar græn og hins vegar svört. Þess vegna urðu til tveir evrópskir meginflokkar fyrir te; grænt og svart. Það flækir hlutina ögn að þetta svarta te þessir evrópsku frumkvöðlar keyptu var ekki svart í augum Kínverja heldur rautt. Evrópumenn versluðu raunar ekki svört te fyrr en löngu seinna en þau eru fyrst og fremst ræktuð innar í landinu en ekki við ströndina. Með því að viðhalda þessari hefð fyrstu evrópsku tedrykkju-manna að kalla rauð te svört erum við í raun að stroka út heilan teflokk úr kínverskri te-sögu. Þetta er eins og hálfgerð te-nýlenduhyggja. Kínverska teflokkunarkerfið Kínverska flokkunarkerfið er mun nákvæmara. Í stuttu máli tekur það mið af vinnsluaðferðum sem hafa verið lagaðar að ákveðnum afbrigðum teplöntunnar sem oftar en ekki eru staðbundnar. Svo það tekur líka mið af oxunarstigi telaufsins og seinast en ekki síst lit á te-vökvans frekar en lit telaufsins. Græn og hvít te eru minnst unnin og minnst oxuð. Þau eru í raun bara tínd og niðurbrotsferli ensíma í laufinu er stöðvað í gufusuðu, bökun eða með því að velta því á heitri pönnu. Rautt te er annar flokkur sem við í hinum vestræna heimi höfum alist upp við að kalla svart te. Þessi te eru viðruð úti og látin fölna og jafnvel skrælna eilítið áður en þau eru unnin. Alveg eins og ef þú gleymir spínatlaufi eða salati í stofuhita yfir nótt þá sérðu daginn eftir að það er fölnað og lint. Þetta er í raun oxunarferli... en við það opnast frumuveggurinn í laufinu á annan hátt og annað bragð og jafnvel önnur efni leysast úr laufinu í tevökvann þegar við hellum upp á te. Þetta niðurbrotsferli gerir ákveðin efni uppleysanleg. Mitt á milli græna og rauða tesins er svo mjög flókinn flokkur. Það eru Wulong te sem fyrst og fremst eru ræktuð í Fujian héraði og í Tævan. Í mörgum tilfellum eru lauf þessara teplantna af aðeins lakari gæðum og þess vegna getur verið heilmikið handverk að ná fram bestu eiginleikum laufsins með hárréttu oxunarstigi, ristun og þurrkun. Í þessum flokki eru t.d. Klettate frá Wuyi fjalli og Tie-Guanyin sem ég minntist á áðan. Hið raunverulega svarta te Seinasti og að mínu mati mest spennandi flokkurinn er hið raunverulega svarta te. Þetta er flokkur sem hefur verið lítið þekktur í vestrænum löndum sökum þess að rauð te voru ranglega kölluð svört. Hin raunverulegu svörtu te eru unnin með flóknu framleiðsluferli og svo yfirleitt pressuð í kubba. Því næst eru þessi te geymd lengi í jöfnu hitastigi svo þau haldi áfram að gerjast, þroskast og breytast. Í þessum flokki eru t.d. Pu’Er te frá samnefndum bæ í Yunnan héraði og Anyi svört te frá Hunan héraði. Oft er sagt að Pu’Er te þurfi að geymast í 70 ár til að verða fullþroska. Vegna vaxandi áhuga og aukins kaupmáttar millistéttarinnar í Kína er það hinsvegar ekki á færi hins almenna leikmanns í dag að bragða á 70 ára gömlu Pu’Er tei. Ein kubbur af slíku tei getur farið á tugi og jafnvel hundruði milljóna í dag. Til allrar hamingju var fundin upp leið á sjöunda áratugi seinustu aldar til að flýta gerjunarferlinu og búa til fullþroskað Pu’Er te á um það bil tveimur mánuðum. Þetta framleiðsluferli er alls ekki ósvipað verkunarferli á súrheyi. Þetta fljótþroskaða Pu’Er te getur orðið prýðisgott en fyrir reyndum tedrykkjumönnum er þetta ekki sami flokkur. Eins hefur orðið til sú hefð að drekka óþroskuð Pu’er te vegna vöntunar á fullþroskuðum teum. Þau eru samt ekki allra, tilfinningin getur verið svipuð og að bíta í grænan banana en samt eitthvað fyndið og skemmtilegt við þau. Þessi svörtu te eiga sér langa sögu en þau voru lengi vel flutt eftir kræklóttum og þröngum fjallavegum frá Yunnan upp á hásléttur Tíbet. Teinu var þá pakkað inn í bambushólka sem menn ýmist báru á bakinu eða settu á asnalestir. Á þessu ferðalögum fór teið í gegnum gífurlegar hitabreytingar - upp fjöll og firnindi en líka í gegnum frumskóga og hitabeltisloftslag. Við þetta oxaðist það á einstakan hátt og fékk mjög sérstakt bragð. Þegar þessir kaupmenn komu upp til Tíbet gátu þeir skipt á þessum fágæta varningi og tíbetskum hestum eða fágætum lækningajurtum. Tíbetarnir drukku þessi svörtu te vegna vöntunar á fersku grænmeti í matarræði sínu. Meðalhæð tíbesku hálsléttunnar er um 4500 metrar yfir sjávarmáli svo að það gefur að skilja að það er ekki mikið sem vex þarna. Svörtu tein eru sögð brjóta niður fitu í einhæfu og kjötmiklu matarræði. Svart te er líka sagt bæta meltingu og vera 通肠 tōng cháng sem þýðir að það viðheldur góðu flæði í görnunum - 通肠 tōng cháng. Pu’Er te eru líka sögð koma í veg fyrir kvefpestir með því að þurrka upp raka og slím í líkamanum. Það er því er spurning hvort þetta te myndi ekki hæfa Íslendingum vel. Rætur teplöntunnar eru í Yunnan héraði Teplantan á eins og áður sagði uppruna sinn í Yunnan héraði í Kína en þaðan breiddist hún fyrst um allt landið og síðan víðar um heiminn. Þeir fyrstu til að fara með te-fræ frá Kína og rækta plöntuna annars staðar voru japanskir Búddamunkar. Þetta var Tang tímabilinu í kínverskri sögu í kringum 800-900 eftir Krist. Á þessum tíma voru mikil samskipti milli japanskra og kínverskra klaustra. Kína var í raun upprunaland Búddismans fyrir Japönum á þessum tíma frekar en Indland og þess vegna var pílagrímsförum þessara japönsku munka fyrst og fremst heitið til Kína. Te og Zen-búddismi Japanskur Zen-búddismi er í raun kominn frá Kína þar sem Zen er borið fram Chan. Hann leggur áherslu á að möguleika allra til að öðlast uppljómun óháð bakgrunni og þekkingu á fornritunum. Zen munkar eru þekktir fyrir að vera uppátækjasamir og gera ýmislegt til að þjálfa þjálfa meðvitund nemenda í daglegu lífi nemenda sinna eins og að hoppa niður af klausturþakinu til að bregða þeim. Zen-búddismi er vafinn tedrykkju mjög þéttum böndum. Svo þéttum að gjarnan er notað orðatiltækið 茶禅一味 cha chan yi wei eða Te og Zen er eins á bragðið. Enn þann dag í dag má víða finna te-akra nálægt japönskum og kínverskum klaustrum. Munkarnir rækta gjarnan sitt eigið te og nota það bæði til lækninga og til þess að halda

    16 min

About

On Hinrik Codes, I explore the intersection of software, self-direction, movement, nutrition, and the story of Homo sapiens. hinrikcodes.substack.com