![](/assets/artwork/1x1-42817eea7ade52607a760cbee00d1495.gif)
33 episodes
![](/assets/artwork/1x1-42817eea7ade52607a760cbee00d1495.gif)
Hringferðin Ritstjórn Morgunblaðsins
-
- Society & Culture
-
-
5.0 • 1 Rating
-
Í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins leggjum við land undir fót og ræðum við 110 Íslendinga
hringinn um landið. Ferðin stendur yfir í heilt ár og í henni verður jafnt og þétt dregin upp spennandi mynd af lífinu í landinu frá sjónarhóli heimamanna á hverjum stað, með sögum af fólki, því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja til þess að efla samfélagið til framtíðar. Ferðin stendur yfir í heilt ár og mun jafnt og þétt draga upp spennandi mynd af því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja.
-
#33 - Listamaður á Háaleitisbraut og í Den Haag
Sigurður Sævar Magnúsarson hefur um nokkurra ára skeið verið mjög áberandi í íslensku myndlistarlífi. Hann hefur á sama tíma stundað nám við Konunglegu listaakademíuna í Den Haag í Hollandi. Hann heldur úti vinnustofu á Háaleitisbraut en stefnir á útrás með haustinu. Moggamenn tóku hús á listamanninum.
-
#32 - Heitar kappræður í Hádegismóum
Fyrir svörum eru þeir fimm forsetaframbjóðendur sem hlotið hafa 10% fylgi í skoðanakönnunum eða meira: Þau Baldur Þórhallsson prófessor, Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri, Halla Tómasdóttir forstjóri, Jón Gnarr leikari og Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra.
Í upphafi kappræðna eru kynntar glóðvolgar niðurstöður síðustu skoðanakönnunar sem Prósent gerir fyrir Morgunblaðið og mbl.is. -
#31 - Reykjanesbær Halla Tómasdóttir
Á þriðja hundrað manns mætti á forsetafund Morgunblaðsins og mbl.is með Höllu Tómasdóttur á Park Inn by Radisson í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Þetta var síðasti forsetafundurinn en í næstu viku verða haldnar forsetakappræður á vegum Morgunblaðsins og mbl.is.
Halla hefur verið á flugi í skoðanakönnunum að undanförnu og munar núna innan við sex prósentustigum á henni og Katrínu Jakobsdóttur, sem er með mesta fylgið, í skoðanakönnun Prósents sem kom út á mánudag. -
#30 - Akureyri Katrín Jakobsdóttir
Forsetafundur Morgunblaðsins á Græna hattinum á Akureyri með Katrínu Jakobsdóttur var fjölsóttur, en á annað hundrað manns gerðu sér leið þangað.
Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýrðu fundinum og spurðu Katrínu ýmissa spurninga um embætti forseta Íslands og hvernig hún hygðist haga setu sinni í embættinu. -
#29 - Selfoss Baldur Þórhallsson
Hátt í 200 manns sóttu forsetafund Morgunblaðsins með Baldri Þórhallssyni á Hótel Selfossi þar sem líflegar umræður sköpuðust um ýmis mál.
Í upphafi fundar voru álitsgjafar fengnir til að ræða stöðuna og spá í spilin um forsetakosningarnar. Kjartan Björnsson, rakarameistari og forseti bæjarstjórnar Árborgar, og Aldís Hafsteinsdóttir sveitarstjóri Hrunamannahrepps voru álitsgjafarnir að sinni og voru sammála um að um mjög spennandi kosningar væri að ræða. -
#28 Patreksfjörður - Með heilan spítala í fanginu
Rebekka Hilmarsdóttir og maður hennar, Örn Hermann Jónsson, tókust á hendur það verkefni árið 2014 að gera upp gamla spítalann á Patreksfirði sem reistur var á Geirseyrinni árið 1901. Þau standa enn í þeim stórræðum og halda því reyndar fram að verkefninu muni sennilega aldrei ljúka. Morgunblaðið tók hús á þeim á kyrrlátu kvöldi við fjörðinn.