Video rekkinn Ragnar Aðalsteinn Guðjónsson og Hildur Evlalía Unnarsdóttir
-
- TV & Film
-
Hildur og Ragnar fjalla um spóluna sem er í tækinu, farið er í huganum á leiguna og rekkarnir skoðaðir og ákveðið þema birtist þeim.
-
#18 Nicolas Cage - The Unbearable Weight Of Massive Talent
Kvikmyndastjarna leggur leið sína til Mallorca til að taka þátt í afmælishátíð óþekkts milljarðamærings. En allt er ekki sem sýnist; áður en langt um líður, er stjarnan komin á kaf í flókinn lygavef bandarísku leyniþjónustunnar og reynir í örvæntingu að bjarga dóttur pólitíkuss.
Myndin er á sama tíma spennuþrungin hasarmynd, ævintýraferð, gamanmynd, djúpstæð drama, andrúmsþrungin spennumynd og rómantísk ástarsaga. Allt þetta og meira til í þessum þætti Video Rekkans. -
#17 Nicolas Cage - The Pig
Einsetubúi nokkur lendir í kröppum dansi þegar trufflusvíninu hans er stolið um miðja nótt, af óprúttnum aðilum, og hann neyðist til fara aftur til borgarinnar í samfélag mannanna í leit að sínu ástkæra svíni.
Það mætti að segja að hér væri á ferðinni endurgerð af John Wick, nema núna er hann kokkur og leynisvopnið hans eru bragðlaukar frekar en ofbeldi. -
#16 Nicolas Cage - Mandy
Skógarhöggsmaður lendir í kröppum dansi þegar ofsatrúarhippacult fær afbriðgilegan áhuga á konunni hans. Hér blandast saman stórkostleg tónlist Jóhanns Jóhannssonar og listileg kvikmyndataka Panos Cosmatos.Hér eru ofboðslega mikið af litum, ofboðslega mikið af blóði, ofboðslega mikið af litaleiðréttingu, ofboðslega mikið að dauða og myrki.Hér er mynd sem engin hefði/ætti að láta framhjá sér fara og svo náttúrulega hlusta á þennan þátt :)
-
#15 Nicolas Cage - Sorcerer's Apprentice
Lærlingur Merlins fær það verkefni að finna arftaka læriföður síns, en það er eina leiðin til að bjarga heiminum frá glötun. Þetta er í senn ástarsaga og ævintýri, hvað gæti mögulega klikkað!Þið getið komist að því í nýjasta þætti Video Rekkans.
-
#14 Nicolas Cage - Next
Töframaður með ofurkrafta verður miðdepill aðgerða FBI til að stöðva kjarnorkusprengju sem hryðjuverkamenn ætla að sprengja í miðborg Los Angeles. Hér er olíuborinn húð, brjóstaskorurnar halda áfram, hárið heldur áfram að vera furðulegt og síðast en ekki síst ekki örvænta, vondu kallarnir eru þýskir...Allt þetta og meira til í þessum þætti!
-
#13 Nicolas Cage - Ghost Rider
Bældur drengur í tilvistarkreppu gerir svona eiginlega næstum því samning við kölska, sem á eftir að draga dilk á eftir sér, svolítið eins og Sæmundur Fróði í Svartaskóla.En í þessari sögu birtast okkur magavöðvar, brjóstaskorur, biblíusögur, voldugt yfirvaraskegg og margt fleira.Allt þetta og meira til í þessum þætti af Video Rekkanum