Ein Pæling

Thorarinn Hjartarson

Hlaðvarp

  1. #526 Sólveig Anna og Villi Birgis - Við viljum ekki "gated community" fyrir Kardashian pakk

    1 DAY AGO

    #526 Sólveig Anna og Villi Birgis - Við viljum ekki "gated community" fyrir Kardashian pakk

    Þórarinn ræðir við Sólveigu Önnu og Villa Birgis um stöðu íslensk verkafólks. Í upphafi þáttar er rætt um leikskólamál og mótmæli leikskólastjóra. Sólveig segir spikfeita millistétt vera þeir einu sem að tali gegn því að fyrirkomulaginu sé breytt og að ef nýtt kerfi yrði tekið upp í Reykjavík myndi fólk aðlaga sig að því. Því næst er rætt um jöfnuð og verkafólk. Villi og Sólveig telja bæði að mikilvægt sé að auka tekjur hinna lægst settu og að kjarasamningar séu ólíklega að fara að halda. Kæmi til þess að endurskoða kjarasamninga muni þau krefjast krónutöluhækkana þar sem hinir lægst settu ættu að fá betri kjör sem aðrir ættu ekki að þurfa. - Er stjórnvöldum sama um íslenskt verkafólk? - Þarf menntaelítan og spikfeita millistéttin hærri laun? - Lifum við á tímum víggirtra samfélaga í Kardashian stíl? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Drifa.is Palssonfasteignasala.is Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur (kynningartilboð): 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me

    1h 29m
  2. #523 Sölvi Tryggva - Heilbrigt fólk er ekki líklegt til að vera í vókinu

    8 FEB

    #523 Sölvi Tryggva - Heilbrigt fólk er ekki líklegt til að vera í vókinu

    Þórarinn ræðir við kollega sinn, Sölva Tryggvason um heilsu, óhollustu, stjórnlyndi, ríkið, sundrungu og stjórnmálamenn. Sölvi telur að vókið sé tilkomið vegna óheilbrigðis. Hann segir að það sé ólíklegt að fólk sé vók sé það heilbrigt. Hann setur þetta í samhengi við faraldurinn og segir að fólk sem hafði sig mest frammi í því að viðhalda aðgerðum stjórnvalda var fólk sem var ólíklegt til þess að vera við hestaheilsu. Hann segir stjórnmálamenn hafa farið varfarin skref á faraldursárunum til þess að passa upp á eigin stöðu og að það hafi valdið því að aðgerðir stjórnvalda hafi verið svo lengi líkt og raun bar vitni. - Afhverju er óheilbrigt fólk líklegra til að vera vók? - Hvert er hlutverk ríkisins? - Afhverju voru stjórnmálamenn svona meðvirkir á faraldursárunum?  Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Drifa.is Palssonfasteignasala.is Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur (kynningartilboð): 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me

    1h 15m
  3. #522 Jakob Bjarnar - Eru Temufjölmiðlar framtíðin?

    5 FEB

    #522 Jakob Bjarnar - Eru Temufjölmiðlar framtíðin?

    Þórarinn ræðir við Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamann með meiru, um stjórnmálin, fjölmiðla, rétttrúnaðinn, menntamál og andverðleikasamfélagið. Jakob telur hugmynd almennings um einkenni og hlutverk fjölmiðla vera brenglað. Hann segir að hlaðvörp séu að sjálfsögðu ekki fjölmiðlar og það að endurtaka fréttir annarra geri menn ekki að blaðamönnum. Þá sé það sérstaklega einkennilegt þegar slíkir einstaklingar eru jafnvel að þiggja fjölmiðlastyrki. Einnig er rætt um sérkennilegt verðmat á fjölmiðlum þar sem hið opinbera plokkar frambærilega blaðamenn úr fjölmiðlastéttinni til þess að gerast almannatenglar eða annað fyrir stofnanir.  Inga Sæland veður nú í menntaelítuna og ætlar hún sé stóra hluti í þeim efnum. Rætt er um það í samhengi við læsi og fleira. Er hamingjusama hóran til? Því er svarað hér og fjallað um aðför rétttrúnaðarins að Stefáni Einari Stefánssyni, blaðamanni hjá Morgunblaðinu nú nýverið þegar hann gerði gys á kostnað Nönnu Rögnvaldar sem féll illa í kramið hjá sumum. - Er hamingjusama hóran til? - Er Samstöðin fjölmiðill eða hlaðvarp á sterum? - Lifum við í andverðleikasamfélagi? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Drifa.is Palssonfasteignasala.is Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur (kynningartilboð): 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me

    1h 14m

About

Hlaðvarp

You Might Also Like