Ein Pæling

Thorarinn Hjartarson

Hlaðvarp

  1. #121 Útlendingamál - Umræður á Íslandi eins og í Svíþjóð 2015

    2 DAYS AGO

    #121 Útlendingamál - Umræður á Íslandi eins og í Svíþjóð 2015

    Þórarinn ræðir um útlendinga- og efnahagsmál. Í upphafi þáttar er rætt um stöðu efnahagsins og hvernig breyttur tónn stéttarfélaganna muni koma til með að breyta næstu kjarasamningslotu nú þegar ljóst er að forsendur kjarasamninga eru brostnar. Megináhersla þáttarins er þó á útlendingamál og þá þróun sem Þórarinn telur vera að eiga sér stað á Íslandi í ljósi atburða síðustu viku. Hann fjallar um umræðu tengda ofbeldisverkum og viðbrögð samfélagsins við þeim, og setur íslenskan veruleika í samhengi við þróun í Evrópu undanfarin ár, sérstaklega með hliðsjón af Svíþjóð og Bretlandi. Hann veltir upp spurningum um hvort Ísland sé á svipaðri braut og önnur Evrópuríki og gagnrýnir það sem hann kallar meðvirkni í umræðunni. - Afhverju ætla Þjóðverjar að reka 80% Sýrlendinga til síns heima? - Hvaða áhrif hafa skattahækkanir og efnahagsástand á fyrirtæki og samfélagið? - Afhverju er Ísland eins og Svíþjóð 2015? Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me Happy Hydrate kóði: EINPAELING25

    1hr 8min
  2. #545 Gummi Hafsteins - Bremsur á gervigreind geti þýtt bremsur á framþróun á Íslandi

    3 DAYS AGO

    #545 Gummi Hafsteins - Bremsur á gervigreind geti þýtt bremsur á framþróun á Íslandi

    Þórarinn ræðir öðru sinni við Gumma Hafsteinsson en hann er frumkvöðull sem hefur starfað bæði hjá Google og Apple. Gummi segir ljóst að gervigreind muni valda straumhvörfum á heimsvísu og geta fyrirbærisins kemur honum sífellt meira á óvart. Hann segir skilning stjórnmálamanna vera lítinn en það komi í sjálfu sér ekki á óvart þar sem skilningur flestra sé takmarkaður einfaldlega vegna þess að óvissan er mikil. Í þættinum er spurt að því hvaða gervigreindarforrit sé best, hvort að gervigriend muni auka ójöfnuð, staða nýsköpunar- og hugverkaiðnaðarins á Íslandi, regluverk ESB, hvort Ísland geti tekið þátt í gervigreindarkapphlaupinu og hvernig störf framtíðarinnar munu koma til með að lýta út. Gummi segir mikilvægt að setja ekki of íhaldssamt regluverk í kringum gervigreind og að það geti valdið því að framþróun á Íslandi verði minni en hún gæti orðið. Þrátt fyrir að óvissan sé mikil og að mikilvægt sé að vera með opin augu gagnvart vanköntum gervigreindar er Gummi bjartsýnn fyrir þeim lausnum sem munu fylgja aukinni notkunar gervigreindar. - Vilja Íslendingar búa í framtíðinni? - Getur hið opinbera séð um rekstur gervigreindarlausna? - Mun gervigreind auka ójöfnuð? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me Happy Hydrate kóði: EINPAELING25

    1hr 14min
  3. #544 Ragnar Freyr Ingvarsson - Sjálfstætt starfandi læknar þjónusta tvöfalt fleiri en læknar á opinberum heilsugæslum

    6 DAYS AGO

    #544 Ragnar Freyr Ingvarsson - Sjálfstætt starfandi læknar þjónusta tvöfalt fleiri en læknar á opinberum heilsugæslum

    Þórarinn ræðir við Ragnar Frey Ingvarsson, formann Læknafélags Reykjavíkur, um stöðu heilbrigðismála á Íslandi. Ragnar telur opinberan heilbrigðisrekstur vera ósveigjanlegan og það sé ástæðan fyrir því að sama hversu miklu fé sé varið í þjónustuna sé sífellt aukin þörf á meiru. Hann segir opinberar heilsugæslustöðvar hitta tvöfalt færri sjúklinga en þær sem reknar eru í einkarekstri og því mikill afkastamunur.  Í þættinum er rætt um DRG kerfið og hvernig megi auka afköst á Landspítala. Ragnar segir að einkareknar heilsugæslur og klíníkin gæti komið til með að auðvelda störf Landspítalans og að auka þurfi sjálfstæði lækna innan allra kerfa. Auk þessa er rætt um kjaramál hjúkrunarfræðinga, núning milli lækna og hjúkrunarfræðinga, hvaða áhrif það hefur að hjúkrunarfræðingar hafi betur upp úr því að sinna bókhaldsvinnu og hvort að útvista eigi fleiri verkefnum til einkarekinna aðila til þess að bæta störf bráðamóttökunnar og annarra deilda á Landspítala. - Afhverju afkasta einkareknar heilsugæslur tvöfalt meir heldur en þær sem reknar eru af hinu opinbera? - Eiga læknar að vera á hærri launum en hjúkrunarfræðingar? - Eru heilbrigðisstarfsmenn best til þess fallnir að sinna bókhaldsverkefnum spítalans? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me Happy Hydrate kóði: EINPAELING25

    1hr 16min
  4. #542 Þórður Pálsson - Mikilvægt að koma skólakerfinu í lag til að forða drengjum frá Manosphere

    29 MAR

    #542 Þórður Pálsson - Mikilvægt að koma skólakerfinu í lag til að forða drengjum frá Manosphere

    Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson enn á ný. Í upphafi þáttar er rætt um evrópuvegferð ríkisstjórnarinnar og það sett í samhengi við það hvort að Ísland eigi að taka upp aðra mynt. Þórður telur evruna vera sístu ástæðu þess að Ísland ætti að ganga í ESB og að betur færi á því að sleppa því að taka upp evru ef Ísland á annað borð færi inn í ESB. Hann setur þetta í samhengi við verðbólgu og lífskjör í álfunni í samanburði við á Íslandi og að teikn séu á lofti á ýmsum sviðum efnahagsins en ekki síður stjórnmálanna sem ættu að reynast Íslandi til varnaðar. Að þeim kafla loknum er rætt um ríkisstjórnina, almannatryggingafrumvarpið, Seðlabankann, húsnæðisverð, verðskyn almennings, vöruhækkanir, skólakerfið, Manosphere, menningu og margt fleira. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me Happy Hydrate kóði: EINPAELING25

    1hr 21min
  5. #541 Hilmar Veigar Pétursson - Hugverkaiðnaðurinn á Íslandi er takmarkalaus

    27 MAR

    #541 Hilmar Veigar Pétursson - Hugverkaiðnaðurinn á Íslandi er takmarkalaus

    Þórarinn ræðir við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra CCP.  Hilmar hefur áhyggjur af nýsköpunarumhverfi á Íslandi en telur samt sem áður að með einföldum ákvörðunum sé hægt að margfalda afköst hans. Hann segir að með núverandi ríkisstjórn hafi áherslurnar beyst sem hafi haft áhrif á menningu innan iðnaðarins. Hann segir að með lítilli breytingu á fyrirkomulagi lífeyrissjóða væri hægt að skapa nýja lífæð fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem að með réttum hvötum sé í raun takmarkalaus.  Menningin innan geirans hafi dalað og að það hafi meiri áhrif en margan grunar og að "stemningin" innan geirans hafi mikil áhrif á það hvort að hann blómstri eður ei. Einnig er rætt um Eve-online en það er að sjálfsögðu langstærsta afurð CCP. Rætt er um leikinn í samhengi við hagkerfi heimsins og hvaða skörun er á milli hagkerfisins í leiknum og hagkerfisins á Íslandi.  Að lokum er rætt um orkumál, bæði hérlendis en einnig í Evrópu. Hilmar segir að orka sé mikilvæg stoð í nýjum heimi gervigreindar og að hægt væri að nota innviði álveranna í gagnaver en það gæti einnig verið til hagsbóta í öðrum kimum heimsins eins og í Afríku. - Hvernig geta orkumál valdið samfélagslegu harakiri? - Afhverju er lífeyrissjóðakerfið að mestu leyti að fjármagna nýtækniiðnað í Bandaríkjunum? - Hver eru sameiginleg einkenni hagkerfa Eve-online og Íslands? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me Happy Hydrate kóði: EINPAELING25

    1hr 29min

About

Hlaðvarp

You Might Also Like