Sigga og Sóla spjalla

Sigga og Sóla

Tvíburasystur sem fá áhugavert fólk í heimsókn og spjalla um hvaða leið það hefur farið í lífinu ásamt því að spjalla um málefni sem eru þeim hugleikin.

Episodes

  1. 10/07/2020

    007... við Söndru Mjöll Jónsdóttur Buch

    Sandra Mjöll er ung kona sem hefur afrekað markt á stuttri ævi. Sandra er doktor í lífeindafræði og í doktorsnámi sínu stundaði hún rannsóknir með góðu fólki á sviði stofnfrumulækninga sem stuðlaði að því að þróa tækni og aðferðir til að gera vísindamönnum kleift að rannsaka og rækta stofnfrumur án þess að nota dýrafurðir. Í kjölfarið á doktorsverkefninu sínu stofnaði hún fyrirtækið Platome Líftækni ásamt Dr. Ólafi Eysteini Sigurjónssyni. Fyrirtækið vann til fjölda verðlauna í nýsköpunarkeppnun og var valið sportafyrirtæki ársins 2017 af Viðskiptablaðinu. Sandra hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín og rannsóknir. Heimssamtök kvenna í nýsköpun (GWIIN) völdu hana sem frumkvöðul ársins 2017 og sama ár var hún einnig valin sem ungur og efnilegur vísindamaður ársins af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Sandra var einnig tilnefnd sem framúrskarandi ungur Íslendingur 2016. Þá hlaut hún hvatningarviðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu árið 2018. Sandra hefur einnig fengið viðurkenningar fyrir störf sín á sviði lífeindatækni og nýsköpunar. Þá er Sandra einnig með svarta beltið í Taekwondo og var meðlimur í landsliðinu um árabil. Í dag vinnur Sandra hjá Florealis sem er lyfjafyrirtæki sem nýtir sér vísindi til að fanga kraft náttúrunnar. Við spjölluðum saman um lífið og tilveruna, taekwondo og nýsköpunarstarfið.

    1h 44m

About

Tvíburasystur sem fá áhugavert fólk í heimsókn og spjalla um hvaða leið það hefur farið í lífinu ásamt því að spjalla um málefni sem eru þeim hugleikin.