Alltaf sama platan

Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson

Hlaðvarp um plötur áströlsku rokkhljómsveitarinnar AC/DC. Smári Tarfur og Birkir Fjalar fjalla um eina plötu í hverjum þætti, frá upphafi ferils sveitarinnar til loka. Gestir kíkja í bolla með þeim félögum og deila upplifun sinni á viðfangsefninu. Hlustið á SPOTIFY, APPLE PODCASTS, POCKET CASTS, PODCAST ADDICT, hér á SIMPLECAST og víðar! Fylgist með á FACEBOOK og INSTAGRAM.

  1. 01/17/2023

    16. Power Up

    MATARBÚÐIN NÁNDIN KYNNIR: Alltaf sama platan 16. þáttur - POWER UP Smári Tarfur og Birkir Fjalar vakna af værum blundi á rúmsjó þeim er liggur eftir sprellibossanna geðþekku í AC/DC.  Báturinn er farinn að leka. Þeir eru áttaviltir, óákveðnir og jafnvel orðlausir. Sextánda og sennilega síðasta platan liggur fyrir og tilfinningarnar eru blendnar. Bæði vegna sveitarinnar sjálfrar og líka vegna þess að þessi tiltekni þáttur táknar endalok þáttaraðarinnar sem kumpánarnir hafa deilt með hlustendum sínum annað veifið í tæp tvö ár. Heyrðum við blautt prump? Sáum við neista? Eiga gamalmennin eitthvað inni eða er komið nóg? Endurreisn, upprisa, ristruflanir? Power Up heitir hún kom heit út úr byssuhlaupinu, það vantaði ekki. Allt í einu voru öll að tala um AC/DC á ný. Þetta var fyrir tveimur árum. Þeim tókst þetta. Magnað þetta langlífi.  Covid var heitt dæmi. Öll eru að tala um dönsku myndina Druk. Tiger King og The Queen's Gambit ríða röftum í sjónvarpi. Billie Eilish, Post Malone og The Weekend eiga sviðið. En einhvernvegin, eins og fyrir kraftaverk sem snúið er í gang af aðdáendum, kemst Power Up í fyrsta sæti á a.m.k. 21 listum hingað og þangað um heiminn, eru tilfefndir til ýmissa tónlistarverðlauna og vinna sjálfsagt einhver þeirra. Og þetta gera þeir með aðalsprautu og leiðtoga undir grænni þúfu, trommarann í réttarsal og heyrnalausan söngvara, svo eitthvað sé nefnt. Það skal viðurkennast að við þáttarstjórnendur stóðum töluvert á gati í þessum þætti. Upptökur voru að þessu sinni ljúfsárar. Við vissum mismikið um AC/DC. Tarfurinn vissi eiginlega allt en Birkir er dæmigerður diet-aðdáandi sem sleppti takinu á sveitinni þegar hann var unglingur. Báður höfum lært margt við gerð þessara þáttaraðar. Við hlustuðum svo mikið á AC/DC og þurftum að endurskoða, aflæra og endurmeta svo mikið af dóti sem við héldum að væri í gömlu pækilstunnum fortíðarinnar. AC/DC gefa nefnilega ekki alltaf út sömu plötuna. Við færðum rök fyrir því, oft og mörgum sinnum. Plötur sem gerðu lítið fyrir okkur þegar við vorum yngri sýna okkur spennandi og ferskar hliðar nú. Það er svo skemmtilegt.  Ef okkur hefur lærst eitthvað sem við viljum deila með ykkur þá er það að AC/DC er sýnd veiði en ekki gefin. Og að nánast öll tónlist ætti að fá gaumgæfilega og einbeitta endurhlustun okkar. Eftir því sem við eldumst, eftir því sem fjarlægðin er meira, því meira nýtt eða grafið heyrum við. Húrra fyrir því! Og húrra fyrir hlustendum! Hjartans þakkir til ykkar allra sem hafið fylgt okkur. Þeim ykkar sem segið öðrum frá þættinum. Þeim ykkar sem við heyrum aldrei frá. Og sérstaklega ykkur sem hafið verið í sambandi og samfloti með ykkur allan þennan tíma. Ykkar skál, elskurnar! We salute you! Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47, Hafnafirði og Básvegi 10 í Keflavík. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Hreinlætisvörur fyrir heimilið og sjálft musterið sem við búum í, sjálfan líkamann. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/ Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið

    2h 17m
  2. 11/25/2022

    15. Rock Or Bust (Ólafur Torfi Ásgeirsson)

    Árið er 2014. Spekingar segja rokkið dautt. Metallica búnir að dobbla það sem sum kalla endurkomu þeirra sveitar. Guns  'N' Roses eru einhvernvegin komnir á kreik, og þó. Taylor Swift skín skærar en nokkur önnur manneskja og engin selur fleiri plötur. Robin Williams, leikarinn dáði, tekur eigið líf. Bill Cosby er opinberaður sem manndrulla.  Platan Rock Or Bust með krökkunum í AC/DC kemur út og gæti verið þeirra næst síðasta. Trommarinn okkar er í neyslutengdu geðrofi, ofsóknaróður og hættulegur. Brian Johnson á þrjú ár í sjötugt en syngur enn, slær sér á lær og segir sögur af gröðum körlum sem kveikja sér í rettu og tala um ungar stelpur. Allt með felldu hér.  En stærsta fréttin í þessu tiltekna sólkerfi er að Malcolm Young glímir við elliglöp og veikindi þeim tengdum og kemur ekki að gerð plötunnar. Er yfirleitt hægt að semja, spila, taka upp, hljóðblanda AC/DC plötu án þessa mikilmennis gítarrokksins? Hann, hryggjarstykki og sál sveitarinnar, að margra mati... Sérstakur gestur þáttarins er Ólafur Torfi Ásgeirsson, sem getur og gerir allt mögulegt í tónlist (spilar, tekur upp, setur út....) og þá iðulega á bak við tjöldin. Spekúlant og lúði eins og þeir gerast bestir. Sérfræðingur og ljúfmenni, þó með ákveðnar skoðanir og eigin sýn á hlutina. Góður gestur það! Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47, Hafnafirði og Básvegi 10 í Keflavík. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Hreinlætisvörur fyrir heimilið og sjálft musterið sem við búum í, sjálfan líkamann. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/ Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.

    2h 44m
  3. 10/08/2021

    11. The Razor's Edge (Salome Hallfreðsdóttir & Ragnar Ólafsson)

    MATARBÚÐIN NÁNDIN KYNNIR:  Alltaf sama platan #11 - The Razor's Edge  Og þarna kemur hún. Hér ægir öllu saman. Flekar mætast og höfin riðlast í stólaleik upp á líf og dauða. Eða bara... AC/DC er komin inn til þín, inn í svefnherbergið, stofuna, bílinn, heilabörkinn þinn hvort sem þér líkar betur eða verr. Thunderstruck og umslagið er límt inn í framrúðu sálar þinnar. Nú verður ekki aftur snúið. Meira að segja AC/DC virðast ekki lengur ráða við AC/DC.  Og hvernig á svo að gera þessu skil? Ekki spyrja Smára Tarf og Birki Fjalar. Þeir eru bara leiksoppar tilfinninga, endurlits og sjúklegra greininga. Það er bara þannig. Engar afsakanir, engar bremsur, bara opin sár og hráar taugar tveggja manna sem eiga rokkinu líf sitt að launa. Fyrir mörg er ellefta útgáfan, tímamótaplata AC/DC (1990) The Razor's Edge, sú skífa sem gerði þau að unnendum sveitarinnar til lífstíðar. Snertifletir plötunnar við fólk um heim gjörvallan eru gríðarstórir og óteljandi. Þegar hér er komið við sögu er AC/DC orðin hluti af erfðaefni afþreyingar- og poppmenningar. Fyrir þær sakir einar má telja hana til sígildra verka. Á The Razor's Edge er að finna lag sem krossar yfir svo mörg og ólíkleg svið og róf að það eitt og sér er efni í rannsókn. Rúmar 43 mínútur af aldamótarokki sem allir og ömmur þeirra virðast eiga hlutdeild í. Tólf lög. The Razor's Edge er laukurinn sem endalaust er hægt að flysja. Hún er eins og spegill kynslóða. Krossgata barna og foreldra - barna sem verða foreldrar. Hún neitaði að víkja af Billboard listanum í 77 vikur. Engin tónleikaferð sveitarinnar hafði hlotið jafn mikla umfjöllun og kynningu og sú sem ýtti þessari plötu úr vör. Fjölmiðlar töluðu um endurkomuplötu AC/DC sem festi þá í sessi á meðal risa rokksins á ný. Og svo voru það Smári og Birkir... Sérstakir gestir þáttarins eru Salome Hallfreðsdóttir og Raggi Ólafsson. Salome er Eskfirðingur --umhverfis- og náttúruverndarriddarinn-- sem leyfir okkur að skyggnast inn í æsku sína og lýsir af mikilli næmni hvernig The Razor's Edge ruddi sér inn í líf hennar. Raggi, tónlistarmaðurinn og söngfuglinn óútreiknanlegi, sem við sjáum hvað oftast með Árstíðum, Ask The Slave og nú síðast í formi einyrkja, mætti í skúrinn og hjálpaði okkur að greina söngstíl- og tækni Brian Johnson og Bon Scott. Afar fróðlegt. Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/ Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.

    3h 41m
  4. 09/27/2021

    10. Alltaf sama platan - Blow Up Your Video (Alison McNeil)

    Að mati Smára og Birkis þá erum við komin hér í einskismannsland AC/DC. Hvað þýðir það? Blow Up Your Video er lágt skrifuð á meðal svo margra og sagan hefur ekki farið fögrum höndum um þessa tíundu (1988) plötu rokkaranna. Þolir hún yfirleitt endurmat þáttarstjórnenda?  Ef Fly On The Wall var vandræðabarnið hvað er þá þessi skífa? Er tími Blow Up Your Video loks kominn? Það er að mörgu að hyggja þegar á að flysja svona lagið svo vel sé. Hvað er gott, hvað er slæmt, hvað var eiginlega í gangi, er eitthvað varið í tónlistina yfirleitt? Var fólk einfaldlega með skít í eyrunum og skidi ekki hvað AC/DC "voru"? Eða skilur fólk plötuna betur nú?  Misskilið útspil sem við erum nú loks farin að skilja, áratugum síðar? Svo mikið af spurningum.  Það þurfti hvorki meira né minna en þrjár atrennur við þennan þátt. Við óttuðumst að hann yrði stuttur og snubbóttur því platan þótti ómerkilegur pappír. Smári velti fyrir sér hvort við myndum yfirleit ná einni klukkustund úr þessu. Birkir þóttist halda að það hefðist en með naumindum þó. Þegar upp var staðið vorum við ískyggilega nálægt þremur klukkustundum! Jáhá! Hver hefði grunað? Með okkur í Blow Up Your Video vandamálinu var engin önnur en Alison McNeil sem spilar um þessari mundir í fádæma skemmtilegri hljómsveit sem heitir Laura Secord. Hún var áður í Kimono, uppáhaldshljómsveit Birkis. Og það fer ekkert á milli mála. Nema hvað, hennar samband við Blow Up Your video er það eftirtektarvert að við óskum hér með eftir að einhver handritshöfundur geri þeirri sögu skil með kvikmynd í huga. Andskotinn hafi það. Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/ Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.

    2h 47m
  5. 08/20/2021

    09. Alltaf sama platan - Fly On The Wall (Arnar Eggert Thoroddsen)

    Þátturinn snýr aftur eftir langt sumarfrí og það er sem blessun í ekki-svo-góðu-dulargervi að hin umdeilda Fly on The Wall liggi til grundvallar. Ekki bara það að Smári og Birkir hafi safnað upp mikilli þörf til að pústa og tjá sig um hvað geri þessa plötu svona sérstaka í hugum aðdáenda AC/DC hvort sem fólk hatar hana, elskar eða sé þarna einhversstaðar á milli. Hvar standa strákarnir í þessum efnum og umfram allt gesturinn? Með okkur í Bedlam in Belgium stofunni var enginn annar en Dr. Arnar Eggert Thoroddsen, blaðamaður, poppfræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands. Hann er aukinheldur stoltur bakhjarl Fly on The Wall og æsingurinn keyrir um þverbak þegar hann hittir afmælisbróðir sinn og gamlan vin Birki Fjalar en Smári Tarfur reynir eftir bestu getu að halda lestinni á teinunum af sinni alkunnu ró- og röksemd. Fly on The Wall kom út árið 1985, tveimur árum eftir Flick The Switch. Tíu lög á fjörtíu mínútum. Þegar hér er komið við sögu hafa tónleikaferðalögin orðið æ lengri og betur sótt með hverri plöttunni frá og með Let There Be Rock. AC/DC eru orðnir kjölturakkar MTV, dæla út tónlistarmyndböndum og hafa aldrei verið þéttari á tónleikum. Allt er eins og það á að vera, nema kannski platan sjálf, Fluga á veggnum. Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/   Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið. Alltaf sama platan er framleidd af Snæfugli.

    2h 17m

About

Hlaðvarp um plötur áströlsku rokkhljómsveitarinnar AC/DC. Smári Tarfur og Birkir Fjalar fjalla um eina plötu í hverjum þætti, frá upphafi ferils sveitarinnar til loka. Gestir kíkja í bolla með þeim félögum og deila upplifun sinni á viðfangsefninu. Hlustið á SPOTIFY, APPLE PODCASTS, POCKET CASTS, PODCAST ADDICT, hér á SIMPLECAST og víðar! Fylgist með á FACEBOOK og INSTAGRAM.