INNÁVIÐ

Innávið

INNÁVIÐ X JÓHANNA JÓNASAR ORKUÞERAPISTI RÆÐA UM ALLT SEM TENGIST ÞAKKLÆTI, ANDLEGRI VÖKNUN, MIKILVÆGI ÞESS AÐ LIFA MEÐ OPIÐ HJARTA OG HVAÐ ÞAÐ ÞÝÐIR AÐ LIFA INNIHALDSRÍKU OG HAMINGJURÍKU LÍFI.

Episodes

  1. 07/28/2021

    Endurforritun taugakerfisins: Vinna með innra barnið.

    Í þessum þætti fjalla Bjarni Snæbjörnsson og Jóhanna Jónasar áfram um hvernig við getum Vaknað til betra lífs út frá hugmyndum um þakklæti og þakklætisiðkun.  Hér fjalla þau um endurforritun taugakerfisins og mikilvægi þess í allri sjálfsvinnu og vakningu. Hvernig með ákveðnum aðferðum er hægt að endurforrita hvernig við horfum á lífið og hver raunveruleiki okkar er. Grunnhugmyndina má finna í fræðum um innra barnið og hvernig ósjálfráða kerfið okkar og undirmeðvitundin er mótuð á fyrstu árum ævinnar. Þau fara yfir hvers vegna er mikilvægt að fara í þessa endurforritun á okkar innri hugformum, eða innra barni til þess að geta lifað heilbrigðu og hamingjusömu lífi. Þátturinn er stútfullur af upplýsingum um þessa vinnu, hvernig má gera hana á alls konar vegu og hvers vegna hún er mikilvæg. Jafnframt ræða þau um mikilvægi þess að átta okkur á hvaða heilabylgjur ráða í okkar daglega lífi og hvernig við getum haft meiri áhrif á það hvernig okkar daglega líf lítur út og hvernig þakklætisiðkun hefur jákvæð áhrif á þessa endurforritun. Jóhanna ræðir jafnframt um áhrif þess að fara á fjölmenna og streitumikla staði eins og Kringluna og hvernig við getum átt jákvæða upplifun af því að fara inn í streitumikið umhverfi með þakklætisiðkun og endurforritun taugakerfisins. Í þessari seríu VAKNAÐ TIL BETRA LÍFS Innávið x Jóhanna Jónasar er áherslan sett á þakklæti og þakklætisiðkun. Hvað gerist þegar við opnum hjartað og lifum út frá hjartanu og hvernig getum við gert það á heilbrigðan hátt og út frá tengingu við okkur sjálf. Fylgið okkur: Vaknað til betra lífs: https://www.instagram.com/vaknadtilbetralifs/ Innávið: https://www.instagram.com/inn.a.vid/ Bjarni Snæbjörnsson: https://www.instagram.com/bjarni.snaebjornsson/ Jóhanna Jónasar: https://www.facebook.com/brennanheilunjohannaj/

    19 min
  2. 07/21/2021

    Þarf alltaf að "krassa" eða fara á botninn til þess að vakna andlega?

    Í þessum þætti fjalla Bjarni Snæbjörnsson og Jóhanna Jónasar áfram um hvernig við getum Vaknað til betra lífs út frá hugmyndum um þakklæti og þakklætisiðkun.  Hér fjalla þau um það að "krassa" eða fara á botninn og hvort það sé nauðsynlegur hluti af því að geta vaknað andlega og lifað í meðvitund. Þau ræða aðeins um sína eigin upplifun á því að fara á botninn og hvernig það gæti verið mögulega auðveldara fyrir yngri kynslóðir að "sleppa" við þetta "krass" á leiðinni að betra og meðvitaðara lífi. Hvort það sé mögulega auðveldara í dag að nálgast uppýsingar um það að lifa í meðvitund og sleppa við það að "hrynja á botninn". Jóhanna minnist meðal annars á Joe Dispenza og Eckhart Tolle sem báðir hafa hjálpað þúsundum að vakna til betra lífs með kenningum sínum og leiðbeiningum.  Í þessari seríu VAKNAÐ TIL BETRA LÍFS Innávið x Jóhanna Jónasar er áherslan sett á þakklæti og þakklætisiðkun. Hvað gerist þegar við opnum hjartað og lifum út frá hjartanu og hvernig getum við gert það á heilbrigðan hátt og út frá tengingu við okkur sjálf. Fylgið okkur: Vaknað til betra lífs: https://www.instagram.com/vaknadtilbetralifs/ Innávið: https://www.instagram.com/inn.a.vid/ Bjarni Snæbjörnsson: https://www.instagram.com/bjarni.snaebjornsson/ Jóhanna Jónasar: https://www.facebook.com/brennanheilunjohannaj/

    11 min

About

INNÁVIÐ X JÓHANNA JÓNASAR ORKUÞERAPISTI RÆÐA UM ALLT SEM TENGIST ÞAKKLÆTI, ANDLEGRI VÖKNUN, MIKILVÆGI ÞESS AÐ LIFA MEÐ OPIÐ HJARTA OG HVAÐ ÞAÐ ÞÝÐIR AÐ LIFA INNIHALDSRÍKU OG HAMINGJURÍKU LÍFI.