Leiðin okkar allra

Kirkjuvarpið

Öll erum við á andlegri vegferð þar sem áföll, vegtyllur, skóleysi og skringilegar tilviljanir bæði leiða okkur í villur eða koma okkur á sporið; svo við rötum aftur leiðina heim. Ása og Bolli fá til sín ólíkt fólk úr ýmsum áttum, sem þó eiga svo margt sameiginlegt - eins og raunin er með okkur flest - í yfirveguðu spjalli um það sem þroskar manninn þó á hann reyni líka. Sögur af vonum sem veita nýja sýn á trú og tilgang, brot úr veruleikanum sem hafa þá tilhneigingu til að raðast saman þannig að einhvernveginn stækkar allt við það eitt að maður reyni að skilja eitthvað í því. Sögur af kjarki, kærleika og þeirri kyngi sem fylgir því að finna Krist á veginum, hvort sem hann bara kallaði til manns eða reisti óvænt við - þið vitið. Umsjónarmenn eru Arnaldur Máni Finnsson, Ása Laufey Sæmundsdóttir og Bolli Pétur Bollason. Þátturinn er tekinn upp í Stúdíó Stað og gefinn út af Kirkjuvarpi Þjóðkirkjunnar, Katrínartúni, Reykjavík. Upphafsstef og söngur, Þorsteinn Einarsson. Þakkir Einar Georg Einarsson. Öll réttindi áskilin. 2022 - Þjóðkirkjan

Episodes

  1. 12/19/2021 · BONUS

    Á leiðinni heiman og heim: Kynning

    Hlaðvarpsþátturinn „Leiðin okkar allra“ tekur á því að mæta fólki á ferð - og huga að. Það er horft aftur um lífsleiðina og velt fyrir sér vægi hinnar andlegu vegferðar í því ferli að halda jafnvæginu. Eins og segir í ljóði Einars Georgs Einarssonar, þá geta örlögin valdið því að einn daginn verður maðurinn að halda af stað. Við getum aldrei vitað hvað mun mæta okkur á morgun, svo það er kannski bara ágætt að velta aðeins vöngum yfir lífsgildum sínum áður en lagt er af stað. Í þessum mannlegu þáttum Kirkjuvarpsins, í umsjón Arnaldar Mána, velta Bolli Pétur og Ása Laufey því fyrir sér ásamt viðmælendum sínum hvað það kann að vera sem fær manninn til að velta vöngum yfir tilgangi lífsins leiðina á enda. Það eru sem áður ljós og skuggar, brekkur og sléttur, einn Guð og allir - eða enginn; það er fjallað um trú og trúleysi, um heilbrigðar og óheilbrigðar guðsmyndir, rýnt í sjálfið og sjálfsvitundina, hið ómeðvitaða og meðvitaða. Umfjöllunarefnið er ekki síst reynsla mannsins í stóra samhenginu, súrir og sætir sigrar og dauðadjúpar sorgir. Einhvernveginn kemur allt saman á tilviljunarkenndan en jafnframt með merkingarbærum hætti í því sem við köllum sammannlegt. Eða það segir Bolli allaveganna. Við tæklum ekki hið huglæga aðeins á hlutlægan hátt, það er gömul saga og ný; það þarf að mæta raunum sálar með hjálp í sjálfum andanum. Hvernig gerir fólk það, hver eru bjargráðin? Hér er spurt um það hvað hafi stutt við viðmælendur Leiðarinnar okkar allraen þeir koma úr ólíkum áttum, með ólíkan bakgrunn, ólíkar væntingar og þrár, ólíka menntun og reynslu. Leiðin markast alltaf af lífsreynslu okkar, undirstöðunum og þránni - en ekki síst af því hvernig leiðir við nýtum okkur til að vinna úr því sem á reynir. Ása er mikil áhugamanneskja um þær leiðir. Fróðlegt hlaðvarp um hina andlegu vegferð þar sem áföll, vegtyllur, skóleysi og skringilegar tilviljanir bæði leiða okkur í villur og koma okkur á sporið; svo við rötum aftur leiðina heim. Ása Laufey Sæmundsdóttir og Bolli Pétur Bollason eru sálgætar og prestar sem starfa í söfnuðum á vegum Þjóðkirkjunnar, en fá í þessum þáttum til sín fólk úr ýmsum áttum sem á þó merkilega margt sameiginlegt. Umsjónarmaður og hljóðsnyrtir er Arnaldur Máni Finnsson. Þátturinn er tekinn upp í Skrúðhúsinu, Katrínartúni 4 og gefinn út af Kirkjuvarpinu, hlaðvarpsveitu Þjóðkirkjunnar. Upphafsstef og söngur: Þorsteinn Einarsson. Ljóðið „Leiðin okkar allra“ er eftir Einar Georg Einarsson Ljósmynd í logoi þáttarins á Völundur Jónsson Þakkir til þeirra þriggja - og fararblessun þér til handa á leiðinni!

    14 min
  2. 12/17/2021

    Að þekkja skugga sinn og drauma: Haukur Ingi Jónasson

    Haukur Ingi Jónasson er lektor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og formaður stjórnar MPM-náms skólans. Hann hefur komið að margþættum rannsóknum á sviði stjórnunarfræða og er meðhöfundur sex bóka á íslensku (JPV) og fimm bóka á ensku (Routledge/Taylor and Francis). Haukur lauk doktorsnámi sínu við Union Theological Seminary í New York en þar las hann sálarfræði, geðsjúkdóma- og geðlæknisfræði, sálgreiningu, analýtíska sálfræði í sögu og samtíð, og hagnýta og kennimannlega guðfræði með sérstakri áherslu á beitingu hennar í klínískri vinnu, við kennslu, í atvinnulífi og í nútíma samfélagi. Samhliða doktorsnámi stundaði Haukur klínísk nám við Harlem Family Institute, Health Care Chaplaincy og Lenox Hill-sjúkrahúsið í New York. Í doktorsritgerð sinni In a Land of a Living God, The Healing Imagination and the Icelandic Heritage, setur Haukur fram kenningu sem útskýrir virkni ímyndunaraflsins í mannshuganum. Ímyndunaraflið er skilgreint sem samsetning (e. synthesis) sálræn efnis í nýjar hugmyndir þannig að til verða táknmyndir sem standa fyrir fjarverandi hluti, geðhrif, líkamlega virkni, líkamlegt ástand, minningar, hneigðir, hvatir. Afurðir þessa eru myndir, tákn, órar, draumar, hugmyndir, hugsanir og/eða hugtök. Þá heldur hann því fram að ímyndunaraflið sé frábrugðið órum að því leiti að í stað þess að vera á skjön við veruleikann þá nýtist heilbrigt ímyndunarafl til virkrar aðlögunar að veruleikanum til dæmis í sköpun og nýsköpun ýmiskonar.

    1h 7m

About