Ingi Þór Einarsson fær til sín Dr. Lidon Lashley, einn helsta sérfræðing Guyana í sértækum stuðningi og skóla án aðgreiningar. Lidon er dósent við University of Guyana, forstöðumaður UG-ECCE öndvegisseturs í málefnum ungra barna og formaður starfshóps háskólans um inngildingu, fjölbreytileika og jafnrétti. Að baki hans liggja 24 ár í kennslu og kennaramenntun, doktorspróf frá University of Roehampton, fimm bækur og yfir fjörutíu ritrýndar greinar. Þeir ræða hvað það þýðir í raun að hafa alla með — hvernig námskrá, kennsluaðferðir og íþróttastarf geta útilokað börn án þess að nokkur ætli sér það, hvað Ísland og Guyana geta lært hvort af öðru, og hvers vegna barnavernd og öryggi barna er grunnstoð en ekki viðbót. UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf. UM ÍÞRÓTTARABBIÐ Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu. Samskiptateymi HR hefur umsjón með HR hlaðvarpinu (samskipti@ru.is). HR hlaðvarpið er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum. ------------------ Ingi Þór Einarsson sits down with Dr Lidon Lashley, one of Guyana's leading voices in special and inclusive education. Lidon is a Reader at the University of Guyana, Director of the UG Early Childhood Centre of Excellence and Chair of the university's Inclusivity, Diversity and Equity Task Force — 24 years in teaching and teacher education, a Commonwealth PhD from Roehampton, five books and more than forty peer-reviewed papers. The conversation covers what inclusion actually looks like in practice: how curricula, coaching and PE quietly shut children out without anyone intending it, what Iceland and Guyana can learn from each other, and why safeguarding is foundational rather than an add-on. The RU Sports Chat (Íþróttarabb HR) is an independent series within the RU podcast. The sports science department of the University of Reykjavík hosts the RU Sports Chat, which is produced by the studio and communications teams at RU. This podcast series covers subjects like exercise, sports, competition, teaching and training, and interviews guests such as experts, academics, teachers, athletes, coaches, professionals, other people in the field, and current and former students.