Konungssinnar í Kísildal

RÚV Hlaðvörp

Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í febrúar. Frá því að hann tók við embætti forseta hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið. Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar. Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf að byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir. Í þessum þáttum sökkvum við okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal. Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Episodes

  1. 06/05/2025

    10. Sæðisgjafinn Elon Musk

    Elon Musk hefur lýst yfir mikilli vanþóknun á nýju frumvarpi Bandaríkjaforseta, Big, Beautiful Bill, því það mun auka ríkisútgjöld og vinna gegn þeirri miklu niðurskurðarvinnu sem Musk og liðsmenn hans í DOGE, hagræðingahópnum, hafa staðið í síðastliðna 130 daga. Hvort þetta þýði að áhrif Musks fari minnkanndi í Hvíta Húsinu á eftir að koma í ljós. En fyrir hvað stendur hann, fyrir hverju berst hann og á hvað trúir hann? Hvernig tengist nýlenda á Mars börnunum 14? Efni sem var notað við gerð þáttarins: Ævisagan Elon Musk eftir Walter Isaacson (2023) Viðtöl við Elon Musk og fleira: Elon Musk: War, AI, Aliens, Politics, Physics, Video Games, and Humanity | Lex Fridman Podcast #400  https://www.youtube.com/watch?v=JN3KPFbWCy8 Elon Musk at Qatar Economic Forum https://www.youtube.com/watch?v=76nZJbiSTqQ Joe Rogan Experience #2281 - Elon Musk  https://www.youtube.com/watch?v=sSOxPJD-VNo Elon Musk delivers SpaceX update on Starship, Mars goals and more at Starbase https://www.youtube.com/watch?v=0nMfW7T3rx4 Í ljósi sögunnar:  Ættir og ævi Elon Musk https://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/b78sch  Elon Musk í Norður-Ameríku https://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/b78sci Annað efni: We Went To The Town Elon Musk Took Hostage  https://www.youtube.com/watch?v=5cZEZoa8rW0 The Tactics Elon Musk Uses to Manage His ‘Legion’ of Babies—and Their Mothers https://www.wsj.com/politics/elon-musk-children-mothers-ashley-st-clair-grimes-dc7ba05c On the Campaign Trail, Elon Musk Juggled Drugs and Family Drama https://www.nytimes.com/2025/05/30/us/elon-musk-drugs-children-trump.html Longtermism https://www.williammacaskill.com/longtermism Áhrifarík umhyggja - umfjöllun í Lestinni https://www.ruv.is/utvarp/spila/lestin/23619/b72p37/georg-ludviksson-um-effective-altruism  Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1h 12m
  2. 05/26/2025

    9. Guðfræðingurinn J.D. Vance

    Varaforseti Bandaríkjanna er kaþólskari en Páfinn. Hann fann trúna fyrir örfáum árum, skírðist til kaþólskrar trúar og segir það móta mjög sýn sína á pólitík. Áður en J.D. Vance hélt inn á hið pólitíska svið var hann metsöluhöfundur. Árið 2016 gaf hann út Hillbilly Elegy, þar sem hann lýsir uppvexti sínum í Ohio og Kentucky, þar sem hann bjó við óöruggar heimilisaðstæður en með hjálp ömmu sinnar og afa rættist úr honum. Það rættist ansi vel úr honum, eftir fjögur ár í hernum og tvö í háskóla hlaut Vance inngöngu í laganám hins virta Yale-skóla. Þar kynntist hann örlagavaldi í sínu lífi, fjárfestinum Peter Thiel. Vance á marga vini í Kísildalnum og það mætti segja að hann tengi saman tæknigeirann og þjóðernispopúlistana sem fylkja sér á bak við Trump. Efni sem var notað við gerð þáttarins: Sjálfævisagan Hillbilly Elegy eftir J.D. Vance (2016) Aðrir textar og viðtöl við J.D. Vance: How I joined the resistance - https://thelampmagazine.com/blog/how-i-joined-the-resistance JD Vance speaks at private Teneo Network Event, Sept 21 https://www.youtube.com/watch?v=XU7n4id7uSM JD Vance on his faith and Trumps most controversial policies https://www.nytimes.com/2025/05/21/opinion/jd-vance-pope-trump-immigration.html Regime Change and the Future of Liberalism | Patrick Deneen, JD Vance Kevin Roberts & Christine Emba https://www.youtube.com/watch?v=2ZbsiKEhy-8&t=2943s Ræða á American dynamism-conference https://www.presidency.ucsb.edu/documents/remarks-the-vice-president-the-american-dynamism-summit Greinar um J.D. Vance og hugmyndir hans: How (and why) J.D. Vance does it https://www.economist.com/united-states/2025/04/03/how-and-why-jd-vance-does-it What is postliberalism? How a Catholic intellectual movement influenced JD Vance’s political views https://www.pbs.org/newshour/politics/what-is-postliberalism-how-a-catholic-intellectual-movement-influenced-jd-vances-political-views Pope Francis and JD Vance clash over “ordo amoris” https://www.ncregister.com/cna/pope-francis-vance-clash-over-ordo-amoris The rise of pronatalism https://www.theguardian.com/us-news/2025/mar/11/what-is-pronatalism-right-wing-republican The talented J.D. Vance https://www.theatlantic.com/magazine/archive/2025/07/jd-vance-reinvention-power/682828/ J.D. Vance's short career in venture capital https://www.axios.com/2024/07/16/jd-vance-venture-capital-career Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    57 min

About

Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í febrúar. Frá því að hann tók við embætti forseta hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið. Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar. Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf að byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir. Í þessum þáttum sökkvum við okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal. Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

You Might Also Like