Bíófíklar

Bíófíklar Hlaðvarp

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson, Atli Freyr Bjarnason og Tómas Valgeirsson.

  1. 1d ago

    The Batman (2022)

    Enn ein Batman endurræsingin eða kannski bara 'útskriftarmyndin'? Á þessum tímapunkti mætti léttilega halda að meira eða minna allt hafi verið sagt og gert hvað Leðurblökumanninn á hvíta tjaldinu varðar. Að vísu er um að ræða eina vinsælustu hetjuna í sögu dægurmenningar í allri sinni mynd, sem hefur verið sundurtekin, sett saman og tækluð á allan mögulegan máta í myndasögum, sjónvarpsþáttum og tölvuleikjum. Hafsjórinn er gífurlegur en nýir vinklar eru alltaf velkomnir. Gömlu túlkanirnar hverfa ekki og það telst til hins besta máls ef eitthvað getur verið í boði fyrir alla, hvort sem áhorfandinn vill sinn LEGO-Batman, ýktari Batman, kjánalegri Batman, stílískari Batman, reiðari Batman í túlkun Zacks Snyder eða raunsærri Batman-sögu í anda Heat, svo dæmi séu nefnd. Hér er allavega kvikmynd sem hefur vel unnið fyrir því að vera með greini í titlinum. The Batman er satt að segja fyrsta kvikmyndin um þessa fígúru sem hefur eitthvað fyrir stafni og almennilegt að segja um sjálfan Batman! Ekki bara Bruce Wayne; markmiðið, óttann, sorgina, græjurnar eða illmennin, heldur hvað kryddar mótiveringuna, geðshræringuna, hvað lætur kuldalega einstaklinginn tifa og hvernig Batman sem fígúra er í sjálfu sér flótti hjá tilfinningalega lokuðum Bruce Wayne til að hefna sín á krimmahyski borgarinnar, og þá miskunnarlaust með óttastjórnun sem útrás fyrir áfallið að hafa misst foreldra sína. Það er ekkert hetjulegt við Batman á hans upphafsstað í þessari sögu, þrátt fyrir að hafa gegnt markmiði sínu í tvö ár. Innkoma hans í augum andstæðingana og vegfarenda er líkari hryllingsfígúru en hetju með siðgæðisreglurnar eða prinsippin á hreinu. Ýmist er til þess að skoða við þessa hundlöngu en stórlega athyglisverðu endurræsingu. Bíófíklarnir Kjartan, Atli og Tommi fengu DC-prófessorinn Magnús Frey Magnússon aftur i sttúdíóið til að rannsaka og rökræða betur allt sem Matt Reeves, Robert Pattinson og stærra teymið hafa fram að færa með þessum 'Se7en/Zodiac' vinkli á Batman-sögu. Smellum á okkur grímurnar, upp með hafnarboltakylfurnar og blöstum hljóðkerfinu í Batman-bílnum; þetta verður djöfulsins fjör! Efnisyfirlit: 00:00 - Slasher-Batman! 17:29 - Pattinson og Bruce 27:21 - Ráðgátan og spillarnir 36:24 - Hasar og ofbeldi 48:44 - "Útskriftarverk" 56:21 - Hvað veit Riddler? 01:08:41 - Hvað framundan er...

    The Batman (2022)
  2. Oct 23

    Súrt og svarað: Besta hótelið í hryllingsmynd

    Hver er besta Halloween myndin sem gengur undir titlinum 'Halloween'? Hvaða tónskáld í samtímasögu kvikmynda hafa staðið upp úr og með hvaða leikstjórum? Hvaða fígúra myndi hræða þig mest í svefnherberginu þínu? Hvaða trúður ætti helst ekki að vera í barnaafmæli? Hvað er það sem gerði Digger svona umdeilda og óvinsæla? Og af hverju Kevin?! Fyrir utan hentugt og spaugilegt hrekkjavökuþema þá vill svo skemmtilega til að hlustendur og notendur spjallvettvangs Bíófíkla á Facebook sömdu allflestar spurningarnar að sinni. Sumar þeirra mátulega pönnusteiktar og gallsúrar, og þá er það undir mönnunum við míkrafónana komið að svara þeim. Í svokallaða heita- og gestasætinu er kvikmyndakeisarinn og reynsluþjarkurinn Þórarinn Þórarinsson, betur þekktur sem Tóti úr hlaðvarpinu Tveir á toppnum. Tóti svarar þarna með prýðum í stúdíó Podcaststöðvarinnar með Atla Frey og Tomma þó vissulega gangi liðurinn út á það að aldrei eru nein rétt eða röng svör; Bara skemmtileg og leiðinleg svör! Þú vilt heyra þetta sprell. Efnisyfirlit: 00:00 - Tóm krús og Digger 06:33 - Hvort er betra kombó? 09:59 - Þrjár samnefndar... 14:21 - Kruger eða Klippikrumla 17:41 - Framúrskarandi og tímalaus 20:15 - Af hverju Kevin? 24:45 - Hótelpælingar 27:17 - Trúðaleg umræða 29:45 - Gervigreindarmörk 35:55 - Bregðusenuhopp 49:20 - Yfirnáttúruleg reynsla

    Súrt og svarað: Besta hótelið í hryllingsmynd
  3. Oct 12

    Hedwig and the Angry Inch (2001)

    “Ég er nýi Berlínarmúrinn, beibí! Rífðu mig niður!” Hedwig and the Angry Inch er költsöngleikur úr smiðju John Cameron Mitchell og Stephen Trask. Þar er sjálfsmynd, kyngervi og hinseginleiki könnuð í gegnum ærslafull og angurvær rokklög sem oft fylgja teiknaðar senur. Myndin er byggð á Off-Broadway söngleik og var gerð af sömu mönnum og skrifuðu söngleikinn. John Cameron Mitchell sem leikur Hedwig leikstýrði henni meira að segja! Hún græddi lítið í bíó en þegar á vídjóleigurnar var komið fann hún sinn aðdáendahóp eins og gengur og gerist með költmyndir. Ásamt því hefur söngleikurinn notið meiri vinsælda í gegnum tíðina, sérstaklega eftir að Neil Patrick Harris söng hlutverk Hedwig á Broadway 2014.  Íris fær Hauk Heiðar Steingrímsson til sín í stúdíóið enn á ný en í þetta skiptið dregur hann eiginmann sinn og rokksöngleikjaáhugamanninn Jón Baldur Bogason með sér. Þar kryfja þau atburðarrás myndarinnar ásamt lögunum. Þar kviknuðu upp margar spurningar: Hvaða lag var best? Hvað er kyngervi Hedwig? Er Yitzhak karl eða kona og hvernig á maður að bera fram þetta nafn? Hver er í rétti, Hedwig eða Tommy Gnosis?  Taktu hárkolluna úr kassanum því nú ætla þau að leiða þig í gegnum þennan grimma, litla bæ. Efnisyfirlit: 00:00 - Þættir og bíóuppeldi 10:10 - Pönkið í Hedwig 18:01 - Geggjuð tónlist 31:22 - Litríkar aukapersónur 40:10 - Um ákvörðunarrétt 46:04 - Hvað með þennan endi? 52:04 - Samantekt

    Hedwig and the Angry Inch (2001)

About

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson, Atli Freyr Bjarnason og Tómas Valgeirsson.

You Might Also Like