Hið yfirnáttúrulega

Ghost Network®

Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.

  1. 1d ago

    114. Afhverju eru þessir vísindamenn að deyja?

    Rúmlega tíu toppvísindamenn með háleynilega öryggisvottun í geimvísindum og kjarnorkutækni hverfa eða finnast látnir við furðulegar aðstæður, spyrja netverjar sig, er þetta tilviljun? Sú staðreynd að eftirlitsnefnd Bandaríkjaþings og FBI þurftu að skerast í leikinn þykir mörgum sanna að stjórnvöld séu að reyna að stýra umræðunni og hylma yfir sannleikanum. Nýjasta tilvikið er hann Joe Felz sem lést núna í sumar, hann safnaði og skjalfesti sjaldgæf fornrit og gamlar biblíur, sem vöktu mikla athygli. Það sem margir þessara vísindamanna og uppljóstrara eiga sameiginlegt er það að margir hafa gert yfirlýsingar um það að þau hafi ekki verið í sjálfsvígshugleiðingum og ef þau myndu finnast látin þá væri það ekki á þeirra vegum heldur einhver annar sem var þeim að bana. Það er stór undarlegt að margir þessara vísindamanna höfðu svipaðar sögur að segja, t.d. með það að fylgst hafi verið með þeim, sum höfðu verið fyrir hljóðbylgju árásum eða verið elt á röndum í einhvern tíma til þess mögulega að láta þau hljóma og líta út fyrir að hafa misst vitið og síðan "framið sjálfsvíg". Er þetta tilviljun? Eru þau öll látin? Eða er mögulega djúpríkið með þau í haldi að plotta eitthvað svakalegt.....? Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á: www.patreon.com/hidyfirnatturulega

  2. Jul 27

    111. Voru risaeðlur kannski bara drekar?

    Við vorum að keyra frá Blönduósi til Reykjavíkur og vorum í svo miklu stuði að ræða um allskonar yfirnáttúrulega hluti að við ákváðum að skella í þátt á leiðinni. Hljóðgæðin eru því ekki þau bestu, en þetta er hrár og ótrúlega skemmtilegur þáttur þar sem við ræðum um stóru spurninguna.....Voru risaeðlur mögulega bara drekar? Ef við setjum upp samsærisgleraugun og skoðum söguna út frá þeirri kenningu að risaeðlur og drekar hafi verið sama fyrirbærið, þá breytist opinbera tímalínan algjörlega. Samsæriskenningin gengur út á það að risaeðlur hafi ekki dáið út fyrir 66 milljónum ára, heldur hafi vísindasamfélagið hulið þann sannleika að menn og risaeðlur lifðu hlið við hlið fram á miðaldir og að þessi dýr hafi einfaldlega verið kölluð „drekar“. Sterkasta vopn þessarar kenningar er sú staðreynd að nánast allir menningarheimar sögunnar, sem höfðu engin samskipti sín á milli, eiga sjálfstæðar sögur og myndir af risavöxnum eðlum. Frá Kína til Evrópu, og frá frumbyggjum Ameríku til Egyptalands, teiknaði fólk skriðdýr með langa hálsa, sterka hala og ógnvænlegar klær löngu áður en nútíma steingerfingafræði hófst á 19. öld. Spurningin sem samsæriskenningamenn spyrja er: Hvernig gátu allar þessar ólíku þjóðir lýst sömu dýrunum svona nákvæmlega ef þær sáu þær aldrei lifandi? Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu til okkar í áskrift þar sem þú færð yfir 100 yfirnáttúrulega þætti! www.patreon.com/hidyfirnatturulega

  3. Jul 13

    108. Cern og áhrif þess á okkur.

    Í dag ætlum við að kafa ofan í einn dularfyllsta og umtalaðasta stað jarðarinnar: CERN, Evrópsku kjarnorkurannsóknastofnunina í Sviss. Þar neðanjarðar hvílir stærsti eindahraðall heims, þetta eru 27 kílómetra löng rör ofan í jörðinni þar sem vísindamenn láta atóm rekast saman á nánast ljóshraða til að skilja uppruna alheimsins og finna hina svokölluðu „guðseind“. En einmitt vegna þess hve rannsóknirnar eru flóknar og framandi, hefur CERN orðið að algjörri gróðrarstíu fyrir villtar samsæriskenningar. Sú lífsegasta segir að verið sé að opna gáttir yfir í aðrar víddir eða samhliða alheima, sem sumir telja þessi vísindatilraun sé að breyta tímalínunni okkar og gæti verið útskýringin á Mandela-effekt. En aðrir óttast að tilraunirnar skapi svarthol sem gætu gleypt jörðina, eða að vísindamennirnir séu að fást við myrk andleg öfl en kenningarnar fengu rækilega byr undir vængi þegar stytta af hindúaguðinum Shiva, guði eyðingarinnar, var reist fyrir utan höfuðstöðvarnar. Hvaða áhrif ætli Cern hafi á jörðina og okkur mannfólkið? Nú hefur verið slökkt á þessu tæki vegna "viðhalds" næstu 4 árin...... og telja margir að það muni valda því að allskonar erfiðir atburðir munu eiga sér stað og að þetta hafi mun meiri áhrif á okkur en vísindamenn vilja meina. Þú getur hlustað á þáttinn í fullri lengd inn á Patreon með því að gerast áskrifandi. www.patreon.com/hidyfirnatturulega

About

Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.

You Might Also Like