Lífskastið - Ayurveda á kvennamáli

Heiða Björk Sturludóttir og Guðrún Kristjánsdóttir

Ayurveda lífsvísindin í spjalli þeirra Heiða Bjarkar, ayurveda practitioner hjá Ást og Frið, www.astogfridur.is og Guðrúnar Kristjáns hjá Systrasamlaginu, www.systrasamlagid.is Fjallað er um heilsu og lífið í stóru samhengi með gleraugum þessara 5000 ára gamla heilsukerfis og lífsvísinda.

Episodes

  1. 12/09/2025

    10. Abhyanga. Sjálfsnudd með olíu.

    Abhyanga, eða sjálfsnudd með olíu hefur verið iðkað í Austurlöndum í þúsundir ára og það er góð ástæða fyrir því. Þessi iðkun, abhyanga, er ein mikilvægasta athöfnin í ayurveda lífsvísindunum til að vinna gegn öldrun, næra vefi líkamans og halda dósjunum þremur í jafnvægi, - einkum vata dósjunni. Víða á Indlandi tíðkast að nýbakaðar mæður geri abhyanga og beri einnig olíu á litlu nýfæddu krílin. Þetta er gert til að róa vata dósjuna sem fer á flug og eykst mjög í nýbökuðum mæðrum og í börnunum eftir fæðingu. Allt sem er svona mikil líkamleg áreynsla setur vata dósjuna af stað. Hún eykst í líkama og huga og hana þarf að róa sem fyrst eftir fæðingu barns. Fæðing barns er mikið álag á líkama móðurinn og líka mikið álag á líkama barnsins. Það er ekki sama hvenær olían er borin á líkamann, hversu lengi hún fær að liggja á líkamanum, hvaða tegund af olíu er notuð o.s.frv. Um þetta er fjallað í þessum þætti Lífskastsins. Það er mismunandi hvaða olía hentar hverjum. Hefðin býður að nota sesamolíu enda er sú olía einstaklega næringarrík og sefandi fyrir vata dósjuna. Síðan eru jurtastyrktar olíur það allra besta sem hægt er að nota því þá er búið að hita jurtaseyði úr jurtablöndu og seyðið síðan hitað með olíunni á lágum hita þar til allur vökvinn er gufaður upp og kraftur jurtanna genginn inn í olíuna. Olían hefur þar með öðlast eiginleika jurtanna sem voru valdar. Hér er tengill í video sem sýnir hvernig abhyanga er framkvæmt. https://www.youtube.com/watch?v=pQXVretuxQo&t=3s Mikilvægt er að þvo olíuna af í heitri sturtu eða baði eftir að hún hefur fengið að liggja í a.m.k. 15 mín á húðinni. Það er til að koma í veg fyrir að olían myndi kapha stíflur. En olían hefur kapha eðli og getur skapað slím í rásum líkamans ef hún er ekki. þvegin í burtu með heitu vatni. Allt er þetta útskýrt betur í þættinum. Abhyanga er bara hreinlega nauðsynleg athöfn fyrir þá sem vilja vinna gegn hrörnun líkamans, smyrja frumurnar og vefina, örva blóðrásina, mýkja vöðva og liði, bæta svefn og andlega líðan. Margar vestrænar rannsóknir hafa nú verið gerðar á áhrifum abhyanga og eru niðurstöðurnar á sömu lund og ayurvedafræðin hafa haldið fram. Hér er tengill yfir í stutta umfjöllun um abhyanga á vef Ástar og Friðar https://astogfridur.is/pages/abhyanga-sjalfsnudd-med-oliu-og-ast Hér er grein um abhyanga á vef Systrasamlagsins https://systrasamlagid.is/sjalfsnudd-heilun/ Hér eru upplýsingar um nokkrar olíur sem oft eru notaðar í abhyanga Sesamolía hitandi, nærandi, mjög góð fyrir vata (innihaldsríkaf magnesium, kalk, kopar o.fl. og E vítamíni)Mjög andoxandi, hefur hitandi ogumvefjandi áhrif á vata og kapha. Getur verið of hitandi fyrir pitta. Nær djúpt ofaní vefina og getur þar losað um stíflur. Flytur heilandi kraft annarra jurta mjög vel í sér.Gefur frá sér eigin eiginleika til að gefa eiginleikum annarra jurta pláss. Mjög jarðtengjandi og hefur hreinsandi áhrif á vefi líkamans.Verndar gegn sólbruna. Kókosolía sérlega góð fyrir pitta týpuna og á sumrin þegar heitt erRóar vata og pitta. Hefur kælandi áhrif. Róar Agni. Minnkar brunatilfinningu. Góð fyrir hugann, taugar, minni. Góð fyrir augu, hár, hjarta og lifur. Möndluolía Góð fyrir vata. Hitandi og endurnærandi. Styrkir og mýkir húð. Er mild olía sem hentar oft viðkvæmri húð.Hentar vel ófrískum konum og börnum. Sinnepsolía Góð fyrir kapha. Er örvandi og hitandi og hentar því vel þeim týpum sem eru með hæg efnaskipti og hafa tilhneygingu til að fitna og safna bjúgi. Sólblómaolía Létt, rakagefandi og kælandi. Góð fyrir pitta. Ekki ertandi fyrir viðkvæma húðina á pitta.Avokado Avokado olía er ögn kælandi en mjög nærandi og góð fyrir bæði vata og pitta.Systrasamlagið selur margvíslegar vörur tengdar ayurveda eins og olíur fyrir abhyanga. Sjá nánar https://systrasamlagid.is/voruflokkur/ayurveda-vorur/

    58 min
  2. 11/17/2025

    9. Tungumál líkamans

    Í þessum þætti er fjallað um það hvernig líkaminn lætur okkur vita þegar eitthvað er að í starfseminni og að við þurfum að bregðast við. Þegar einhver af dósjunum þremur eykst úr hófi fram (Vata, Pitta eða Kapha) veldur það vandræðum í líkama og huga og við finnum fyrir einkennum. Með því að þekkja tungumál líkamans getum við brugðist við áður en einkennin þróast yfir í slæm veikindi sem erfitt er að vinda ofan af. Sem dæmi, þá veldur aukning á vata lífskraftinum loftgangi, hægðatregðu, þurrki í húð, augum, munni, hári o.s.frv. og fólk getur byrjað að þjást af svefnleysi eða grunnum svefni. Einkennin geta líka birst í huganum, t.d. sem óöryggi og kvíði. Þegar lífskrafturinn Pitta eykst mikið getur fólk byrjað finna fyrir hitavellu eða auknum svita, þorsta, sterkri líkamslykt og linum hægðum eða niðurgangi svo eitthvað sé nefnt. Einnig getur fólk fundið fyrir auknum pirring og reiði eða stjórnsemi því aukning á einhverri af þessum. þremur dósjum hefur ekki eingöngu áhrif á líkamnn heldur líka á hugann og hvernig okkur líður tilfinningalega. Þegar kapha lífsorkan eykst úr hófi fram finnum við fyrir því með hægari efnaskiptum og við getum farið að þyngjast og fengið bjúg og aukna slímmyndun. Einnig getum við fundið fyrir auknum andlegum þyngslum og sleni. Þróunin á sér stað í 6 þrepum. Á fyrstu þremur þrepum sjúkdómsþróunar nægir að við breytum til í lífsstíl og mataræði. Eftir það verður það flóknara og getur krafist inngrips ayurveda sérfræðings eða með því að fara í panchakarma meðferð sem er sértæk lækningarmeðferð innan ayurveda. lífsvísindanna. Sjúkdómar og raskanir eru í grunninn vata, pitta eða kapha. Þannig eru taugaraskanir eins og tourettes og parkinson kallaðar vata vandamál og minnissjúkdómurinn alzheimer líka. Sjúkdómarnir rósaroði og lifrarsjúkdómurinn gula, gallblöðrusýking og magasár eru pittavandamál í grunninn. Efnaskiptasjúkdómar eins og sykursýki, hátt kólesteról og offita eru kapha veikindi í grunninn. Í bókinni Ayurveda. Listin að halda jafnvægi í óstöðugri veröld sem kom út 2023, er fjallað um tungumál líkamans. Hvaða einkenni tilheyra hverri dósju eða lífsorku og hvernig hægt er að vinda ofan af einkennunum með því að róa þá dósju sem komin er í ójafnvægi (dósjuna/lífskraftinn sem hefur aukist úr hófi fram)

    1h 13m
  3. 08/30/2025

    8. Lífskastið - Heilinn, hugurinn og svefninn

    Í þessum þætti er fjallað um heilann og hugann og hvaða aðferðum ayurveda lífsvísindin búa yfir til að styrkja þessa tvo pósta sem eru grunnurinn að góðri andlegri heilsu, einbeitingu, minni og svefninum. Sérstakur gaumur er gefinn að svefninum. (Þáttur 7 er á leiðinni en þar er fjallað um breytingaskeiðið. Það komu upp tæknileg vandamál sem gætu haft áhrif á hljómgæðin í þætti 7 og 8. ) Hugleiðslan KIRTAN KRIYA er alveg mögnuð leið til að vinna með taugakerfið - svefn, minni og einbeitingu. Fallegt lag til að kyrja með kirtan kriya https://www.youtube.com/watch?v=Zg9NOOM2neA&list=RDZg9NOOM2neA&start_radio=1 Hér eru leiðbeiningar til að gera Kirtan Kriya hugleiðsluna, þar sem það er sýnt hvernig fingrunum er þrýst saman um leið og SA TA NA MA er kyrjað. https://www.youtube.com/watch?v=zdKHs4xx6ow Hér er lýsing á Nadi Shodhana önduninni sem er sú allra besta til að róa vata dósjuna. Þessi öndun virkar líka hreinsandi á orkurásir líkamans. https://www.youtube.com/watch?v=TKNITh99roA Hér er önnur lýsing á Nadhi Shodhana https://www.youtube.com/watch?v=ONMwbQETrYI Brahmari öndunin sem styrkir heilann og eykur framleiðslu á NO. Örvar vagus taugina. https://www.youtube.com/watch?v=hR2ewXJIZSo Ujjay öndunin sem er svo róandi og eykur blóðflæði til heilans. https://www.youtube.com/watch?v=JCAhmvfGuI4 Gúnurnar þrjár - Sattva, Rajas og Tamas stýra persónuleika okkar frá degi til dags. Við viljum að Sattva gúnan sé ríkjandi þó við þurfum á öllum þremur að halda. Sattva gúnan gefur okkur friðsæld, kærleik, sátt og samhygð í hugann. Við erum nóg eins og við erum. Við þurfum ekki að reyna að breyta okkur til að öðlast hamingju og falla í kramið. Það er Rajas gúnan sem knýr þá þörf. Vera ríkari, fallegri, með stærri varir, stærri brjóst, unglegri, frægari o.s.frv. En lífsstíllinn í dag er mjög rajas ríkur og flestir stýrast að mestu af rajas gúnunni. Hún krefst örvunar á skilningarvitin eins og í gegnum fæðu , kynlíf, kaffi og alkohól til að vera alltaf í stuðinu og örvuð. Tamas gúnan er síðan sú sem dregur okkur niður í kyrrstöðu og sljóleika. Gjörunninn matur, dóp, gamall matur og matar-afgangar og fleira ýtir undir Tamas gúnuna. JURTIR FYRIR HUGA OG HEILA Brahmi, tulsi, ashwaganda eru nokkrar af þeim jurtum sem eru hjálplegar til að skýra hugann, og koma þar á jafnvægi.

    59 min
  4. 08/29/2025

    7. Lífskastið - Breytingaskeiðið

    (Þáttur 7 var lengi í lagfæringum til að lappa upp á hljóðgæði og fer því í loftið á eftir þætti 8. ) Í þessum þætti er fjallað um breytingaskeiðið og þau vandamál sem konur geta upplifað á þessu merkilega umbreytinga tímabili. Breytingaskeið karla fær lítið pláss en þó er fjallað stuttlega um þau einkenni sem karlar geta upplifað. Það er munur á upplifun kvenna af breytingaskeiðinu á Vesturlöndum og þróunarlöndunum. Konur í þróunarlöndunum virðast sjaldnast upplifa sama vanda og Vestrænar konur þegar frjósemin og blæðingar hætta. Á Vesturlöndum hefur enda viðhorfið verið mikil æskudýrkun og þar með eru konur gjaldfelldar þegar breytingaskeiðinu er náð en það er þveröfugt í t.d. Austurlöndum og almennt í þróunarlöndunum. Þar öðlast kona aukna virðingu með aldrinum. Í ayurveda er sjónarhornið ólíkt því sem tíðkast í Vestrænum lækningum. Þetta þykir gæfuskeið. Konan tapar líkamlegri frjósemi en öðlast aukna andlega frjósemi í staðinn. Æviskeiðin eru þrjú: Kapha æviskeiðið þegar við erum að þroskast og vaxa úr grasi; Pitta æviskeiðið sem er miðbik ævinnar og þá erum við á barneignaraldri og hormónaframleiðslan er öflug; Vata æviskeiðið sem er síðasta æviskeiðið þegar framleiðsla hormóna minnkar og almennt hægir á efnaskiptum og þurrkurinn í vefjunum eykst. Fínlegri orka (Vata) fer að að ríkja í okkur í auknum mæli eftir því sem við eldumst. Til að minnka neikvæð áhrif breytingaskeiðsins eins og hitakóf, svefnleysi, bjúg og pirring eru ayurvedafræðin með ýmis verkfæri sem farið er í í þættinum. Nokkrar jurtir eru góðar og þar á meðal eru það rhodiola, shatavari, ashwaganda, tulsi og aloe vera.

    52 min
  5. 06/24/2025

    3. Lífskastið - Hver er þín meðfædda líkams- og hugargerð (Prakriti)?

    Við fæðumst öll með ákveðna líkams- og hugargerð sem kallast PRAKRITI í ayurveda lífsvísindunum. Öll erum við einstök og engir tveir eru með sama prakriti. Prakriti er það magn sem við höfum af vata, pitta og kapha við fæðingu og hvernig þessir lífskraftar dreifast um líkama okkar og huga. Prakriti er eins og erfðamengið okkar. Það breytist ekki yfir ævina. Til að vita hvað hentar okkur í fæðu og lífsstíl þurfum við að þekkja hvert okkar prakriti er. Það er eins og að fá nafnskírteini og ökuskírteini að þekkja meðfæddu líkams- og hugargerðina sína. Þú veist hver þú ert og öðlast þá hæfni til að aka af mýkt í gegnum lífið og forðast árekstra. Til að komast að því hver þín meðfædda líkams- og hugargerð er (prakriti) getur þú svarað spurningalista sem er í bókinni Ayurveda. Listina að halda jafnvægi í óstöðugri veröld eða farið inn á vef Ástar og Friðar, www.astogfridur.is, skrollað niður að fyrirsögninni Hvernig manneskja ert þú? Þar undir finnur þú spurningalistann í pdf formati. Það er grundvallar atriði að þekkja sitt prakriti. Út frá því veistu hvort það hentar þér að nota sterk krydd eins og hvítlauk, engiferrót og cayenne pipar; hvort það henti þér að borða mikið af kjöti, rjóma og mjólkurvörum eða hvort það sé afar óheppilegt fyrir þig að stunda köld böð. Þetta eru aðeins örfá dæmi um það hvernig það skiptir máli dósjan sem er ríkjandi í þér sé vata, pitta eða kapha. Nánari upplýsingar um prakriti og líkamsgerðirnar finnur þú í bókinni um ayurveda eftir Heiðu Björk og á vef Ástar og Friðar.

    50 min

About

Ayurveda lífsvísindin í spjalli þeirra Heiða Bjarkar, ayurveda practitioner hjá Ást og Frið, www.astogfridur.is og Guðrúnar Kristjáns hjá Systrasamlaginu, www.systrasamlagid.is Fjallað er um heilsu og lífið í stóru samhengi með gleraugum þessara 5000 ára gamla heilsukerfis og lífsvísinda.