Fréttir dagsins

Fréttir dagsins

Fréttir dagsins er hlaðvarp sem gefur út helstu fréttir dagsins alla morgna.

  1. 4H AGO

    20.02.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Andrew Mountbatten Windsor, bróðir Karls Bretakonungs, var handtekinn í morgun á heimili sínu í Sandringham í Norfolk. Hann er grunaður um misferli í opinberu starfi. Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot. Honum var gefið að sök að hafa veist að ungri konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. Hann segir þakklátur því að réttlætið hafi náð fram að ganga í málinu. Gedirninas Saulys, litháískur maður, hefur verið sakfelldur fyrir að meiri háttar líkamsárás sem leiddi til dauða samlanda hans á Kiðjabergi í Grímsnesi í apríl 2024. Hann var dæmdur í tíu ára fangelsi í Landsrétti í dag. Landsréttur hefur dæmt Sigurjón Ólafsson, karlmann á sextugsaldri, í níu ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað andlegra fatlaðri konu ítrekað og látið aðra menn sem hann var í samskiptum við nauðga henni. Hann var yfirmaður hennar og neyddi son hennar til að fylgjast með kynferðislegum athöfnum þeirra. Hann hlaut ára dóm í héraði, áfrýjaði sjálfur og Landsréttur þyngdi dóminn um eitt ár. Skipulagsstofnun verður lögð niður og verkefni hennar flutt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) eftir að Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis í dag. Alþingi hefur samþykkt bráðabirgðaákvæði í lögum um sveitarstjórnarkosningar vegna kosninga í Grindavík. Lögin gera það að verkum að þeir Grindvíkingar, sem fluttu lögheimili sín í kjölfar rýmingar þann 10. nóvember 2023, geta nú valið hvort þeir kjósi í nýju sveitarfélagi í kosningum í vor eða í Grindavík. Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) segir það þyngra en tárum taki að börn sem eru í viðkvæmri stöðu þurfi að þola ofbeldi, eins og menn sem dvöldu í Bakkakoti á barnsaldri hafa lýst. Hún tekur undir orð Braga Guðbrandssonar, fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu, að aukið fjármagn myndi hjálpa við að leysa ýmis vandamál, en fleira þurfi til. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  2. 1D AGO

    19.02.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Staða bráðamóttöku Landspítala er óbreytt, viku eftir krísufund starfsfólks þar sem ástandið var sagt ógna lífi og öryggi fólks. Dæmi eru um að sjúklingar hafi legið í gluggalausu geymslurými þar í tíu daga, heilbrigðisráðherra boðar aðgerðapakka og vonast til að þannig leysist vandinn. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu Birtu lífeyrissjóðs að víkja Unni Lilju Hermannsdóttur lögmanni úr stöðu skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play. Birta fór fram á það í desember að Unnur viki vegna meints vanhæfis. Birta var meðal stærstu hluthafa Play. Mikil loftmengun hefur mælst á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga og það sama gæti verið uppi á teningnum næstu daga. Rykbindiefni er ekki til á landinu, ekki er hægt að hreinsa göturnar í frosti og útlit er fyrir áframhaldandi þurrk. Deilur um stöðu og kjör sendla Wolt hafa vaknað eftir að fulltrúar ASÍ gagnrýndu harðlega starfsemi Wolt á Íslandi. ASÍ heldur því fram að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningbundnum réttindum. Wolt hafnar ásökununum og segir útreikninga ASÍ ranga. Bragi Guðbrandsson, sem var forstjóri Barnaverndarstofu í tæpan aldarfjórðung, heyrði fyrst af ofbeldi í garð fósturbarna í Bakkakoti í umfjöllun Kveiks á dögunum. Hann segir að málefni Bakkakots hafi ekki ratað á sitt borð þann tíma sem hann var forstjóri. Hann harmar atburðina og hvetur stjórnvöld til að veita fé í að bæta brotalamir í kerfinu. Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur nú beðist afsökunar á glannalegum ummælum sem hann lét falla í heitum umræðum á þingi í gær um Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag og venju samkvæmt fóru börnin á stjá í alls kyns flottum búningum og söfnuðu sælgæti í poka. Þá var dagskrá í skólum landsins víða með öðru sniði og spenningurinn áþreifanlegur. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  3. 2D AGO

    18.02.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna verður fram haldið í svissnesku borginni Genf í dag með milligöngu Bandaríkjamanna. Hægt virðist miða í samkomulagsátt. Viðræðurnar hófust að nýju í gær og engin merki virtust um að þokaðist í samkomulagsátt til að ljúka þessum mannskæðustu átökum í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Þriggja daga opinber heimsókn Friðriks Danakonungs tíunda til Grænlands hefst í höfuðstaðnum Nuuk í dag. Hann boðaði til heimsóknarinnar í janúarlok og lýsti þá yfir stuðningi við málstað Grænlendinga. Á morgun heldur Friðrik í 150 kílómetra ferðalag til norðurs og heimsækir bæinn Maniitsoq, sem stendur á eyju skammt frá fjöllum á meginlandinu með demanta-, rúbína- og asúrsteinsnámum. Á föstudaginn sækir Friðrik konungur danska heimskautahermenn heim sem dvelja í æfingabúðum í bænum Kangerlussuaq, enn norðar á Grænlandi. Í tilkynningu frá hirðinni segir að tilgangur konungsheimsóknarinnar sé að sýna Grænlendingum stuðning vegna ásælni Donalds Trump Bandaríkjaforseta í landið. Kvikusöfnun undir Svartsengi nálgast nú eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá því eldgos hófust á Sundhnúksgígaröðinni. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 22 milljónir rúmmetra af kviku safnast þar fyrir frá síðasta eldgosi í júlí. Samkvæmt vef Veðurstofunnar er kvikusöfnun hæg en stöðug. Á meðan kvikusöfnun heldur áfram og þrýstingur í kerfinu hækkar er líklegast að næstu vikurnar hlaupi kvika frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti endað með eldgosi. Leikskóla-leiðin í Reykjavík hefur verið samþykkt í borgarstjórn. Breytingarnar fela í sér umtalsverðar breytingar á gjaldskrá fyrir leikskóla. Boðið verður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa vistun, hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun og afslátt fyrir einstæða foreldra og efnaminni fjölskyldur. Aftur og aftur reyndu börn og fullorðnir að tilkynna að ekki væri allt með felldu á sveitabænum Bakkakoti á Suðurlandi þar sem þau voru í vist. Árið 2002 viðurkenndi þáverandi húsfreyja á bænum, Þóra Bernódusdóttir, að hafa barið einn drengjanna – Svavar Þór Georgsson. Samt sendi Reykjavíkurborg börn í sumardvöl á bænum allt fram til ársins 2005 og samt var barn á vegum Kópavogsbæjar ekki tekið af bænum fyrr en tveimur mánuðum eftir ofbeldið. Breytingar á útlendingalögum voru samþykktar á Alþingi í gær og nú hafa stjórnvöld heimild til að afturkalla alþjóðlega vernd ef útlendingur fremur alvarleg eða ítrekuð brot eða telst ógn við öryggi ríkisins. Samkvæmt alþjóðalögum má ekki senda fólk til landa þar sem öryggi þess er ógnað. Deilur um stöðu og kjör sendla Wolt hafa vaknað eftir að fulltrúar ASÍ gagnrýndu harðlega starfsemi Wolt á Íslandi. ASÍ heldur því fram að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningbundnum réttindum. Wolt hafnar ásökununum og segir útreikninga ASÍ ranga. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  4. 3D AGO

    17.02.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Ríkisstjórnin hyggist tengja almannatryggingar við launavísitölu. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt lagabreytinguna. Áhyggjurnar snúast meðal annars um það hvort verið sé að búa til tvöfaldan lás þar sem bætur, eða lífeyrir, geti vaxið og vaxið óháð því hvernig árar og jafnvel farið fram úr launum í einhverjum tilfellum – sem dragi úr hvata fólks til að fara aftur á vinnumarkað. Íslenski alpagreinaskíðamaðurinn Jón Erik Sigurðsson stóð sig frábærlega í svigkeppni Vetrarólympíuleikanna þegar hann náði 25. sætinu. Þetta er besti árangur Íslendings á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina til þessa og sá besti í tvo áratugi í svigi. Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga var samþykkt einróma á Alþingi í dag. Með lagabreytingunum verður stjórnvöldum heimilt að afturkalla alþjóðlega vernd þegar útlendingur hefur framið alvarleg eða ítrekuð brot, sem og þeirra sem ógna öryggi ríkisins. Hildigunnur Svavarsdóttir hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri frá og með deginum í dag vegna ákvörðunar heilbrigðisráðherra að auglýsa stöðu forstjóra að loknum fimm ára skipunartímabili hennar. Styrkur svifryks á höfuðborgarsvæðinu mælist hár. Á hádegi var gildið fyrir gróft svifryk 178,9 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Grensásveg, til samanburðar eru sólarhringsheilsuverndarmörkin 50 míkrógrömm á rúmmetra. Klukkan 14 mældist gróft svifryk 216,0 míkrógrömm á rúmmetra. Anahita Babaei og Elissa May Philipps hafa verið sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip í mótmælaskyni árið 2023 og dæmdar til 200 þúsund króna sektargreiðslu. Aldraðir og aðstandendur þeirra segja sorglegt að fólk sé geymt mánuðum saman á Landspítalanum vegna skorts á hjúkrunarrýmum. Þau furða sig á að ekki sé búið að bregðast við ástandinu fyrir löngu síðan. Stjórnandi á stofnun fyrir aldraða segir fólk þar óttast að leggjast inn á spítala vegna hættu á að festast þar inni. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  5. 4D AGO

    16.02.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Lilja Dögg Alfreðsdóttir var í dag kosin formaður Framsóknarflokksins eftir að hafa verið varaformaður flokksins í tæpan áratug. Hún er fyrsta konan sem er kosin til embættisins. Valgerður Sverrisdóttir var fram að þessu eina konan sem gegnt hafði formennsku í Framsókn en hún tók við embættinu sem varaformaður þegar Guðni Ágústsson sagði af sér. Norski skíðagöngukappinn Johannes Høsflot Klæbo varð í dag sigursælastur í sögu Vetrarólympíuleikanna. Hann vann sín níundu gullverðlaun er Noregur vann í boðgöngu karla. Yfirburðir hins 29 ára Klæbo hafa verið miklir frá hans fimmtu leikum árið 2018. Sóley Eiríksdóttir ítrekar ósk sína og fleiri Flateyringa um að stjórnvöld láti rannsaka snjóflóðið á Flat­eyri 1995 með svipuðum hætti og gert var í rannsókn á snjóflóðinu í Súðavík. Sóley segir að með ákvörðun sinni um að láta rannsaka Súðavíkursnjóflóðið hafi verið viðurkennt að slíkir atburðir réttlæti opinbera rýni, ekki síst með tilliti til lærdóms og trausts til stjórnkerfisins. Hæð yfir Grænlandi og lægðir vestur af Noregi halda áfram að draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga. Gera má ráð fyrir frosti þremur til átján stig í dag þar sem kaldast verður inn til landsins. Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði kom hópi fólks til bjargar á Fjarðarheiði í nótt þar sem það hafði lent í vanda sökum ófærðar. Fimm voru í bílnum og voru allir fluttir á Seyðisfjörð þar sem fólkinu var komið í gistingu. Bíllinn var skilinn eftir. Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, segir að til að bæta ástandið á Bráðamóttökunni þurfi að huga að rót vandans. Það sé allt of hæg uppbygging hjúkrunarrýma. Í fimm ára áætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma 2019-2024 var lagt upp með að hjúkrunarrýmum á landsvísu myndi fjölga um rúmlega 540 en raunin varð sú að þeim fjölgaði einungis um 69 á þessu tímabili. Júlía Kristín Jóhannesdóttir sló í gær 30 ára gamalt met Guðrúnar Arnarsdóttur í 60 metra grindahlaupi. Júlía hljóp á 8,25 sekúndum en Guðrún hljóp á 8,31 sekúndu árið 1996. Hún segist hafa haft eitt í huga fyrir hlaupið; að bæta metið. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  6. 5D AGO

    15.02.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Netþrjótar komust í upplýsingar um tugi þúsunda fyrrverandi og núverandi skjólstæðinga, starfsmanna og aðstandenda á Grundarheimilum þegar þeir réðust á netþjóna hjúkrunarheimilanna í desember. Interpol og Europol koma að rannsókn málsins ásamt lögreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson gerði uppgang popúlista og öfga að umfjöllunarefni sínu í sinni hinstu ræðu sem formaður Framsóknarflokksins á 38. flokksþinginu sem fer fram í dag og á morgun. Eitrað var fyrir Alexei Navalní helsta andstæðingi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta með froskaeitri. Þetta segja yfirvöld í Bretlandi en eitur þetta mun bera nafnið epibatidine og mun það hafa fundist í sýnum sem tekin voru af líki Navalní, eftir að hann lést í fanganýlendu í Rússlandi fyrir um tveimur árum. Fjórir eru grunaðir um að hafa í síðasta mánuði svipt mann frelsi sínu, misþyrmt honum í bíl og skilið hann eftir utandyra. Maðurinn var þungt haldinn þegar hann fannst. Esa, Eftirlitsstofnun EFTA, krefur íslensk stjórnvöld upplýsinga um leyfi veitt til sjókvíaeldis hér á landi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota liggi fyrir. Lucas Pinheiro Braathen vann fyrsta Ólympíugull Brasilíu í sögu Vetrarleika í dag. Hann fagnaði sigri í stórsvigi þar sem okkar maður Jón Erik Stefánsson var á meðal keppenda. Kjartan Guðmundsson er kominn heim til Íslands rúmum átta vikum eftir að hann lenti í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku. Móðir hans og dóttir létust í slysinu. Hann flaug í sjúkraflugvél ásamt bróður sínum og ferðalagið tók hátt í sólarhring. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  7. 6D AGO

    14.02.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Heilbrigðisráðuneytið, Landspítali og einkarekna læknamiðstöðin Klíníkin eiga í viðræðum um hvort sú síðastnefnda geti tekið við sjúklingum frá Landspítala vegna neyðarástands sem þar ríkir. Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir að nú þegar séu yfir tuttugu rúm laus. Heilbrigðisráðherra segir að aldrei hafi verið brugðist eins hratt við stöðunni. 23 einstaklingar frá Bakkakoti og 15 frá öðrum vistheimilum hafa formlega veitt lögmannsstofunni Solidum umboð til að sækja sanngirnisbætur frá ríkinu. Lögmaður stofunnar segir lýsingar þeirra sem þangað hafa leitað sláandi. Yfir 50 manns eru með stöðu sakbornings í máli þar sem fimm menn er grunaður um að hafa nýtt sér kerfisvillu hjá reikningsstofu bankanna til að komast yfir hundruð milljóna króna frá Landsbankanum. Von er á að enn fleiri bætist í hóp sakborninga á næstunni. Drögum að frumvarpi um fullnustu refsinga, sem varðar brottvísun og afplánun erlendra fanga hefur verið dreift í samráðsgátt stjórnvalda. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir tímabundinni heimild til að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar aðeins einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Samkvæmt gildandi lögum þarf helmingi afplánunar að vera lokið til að veita megi reynslulausn, en frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að viðkomandi verði vísað úr landi þegar í stað við reynslulausn. Forsætisráðherra vísar gagnrýni ASÍ og SA á bug um að óráðlegt sé að tengja launavísitölu við elli- og örorkubætur líkt og kemur fram í frumvarpi um breytingar á almannatryggingum. Um sé að ræða réttlætismál sem ríkisstjórnin sé einhuga um. Breytingin kunni að valda verðbólguþrýstingi ef hún leiði til hækkunar bóta. Það eigi líka við um aðrar launahækkanir. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segir að fundur hennar og Jens-Frederik Nielsen, formanni landsstjórnar Grænlands, með Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi verið uppbyggilegur. Þau eru stödd á öryggisráðstefnunni í München, sem hófst í dag. Stjórnvöld ríkjanna hafa nýverið átt í viðræðum í kjölfar tíðra fullyrðinga Bandaríkjaforseta um að Bandaríkin verði að eignast Grænland. Ekkert rykbindiefni er til á landinu og er því ekki hægt að bregðast við mikilli svifryksmengun í borginni. Þau sem eru mjög viðkvæm ættu að íhuga að halda sig inni, segir heilbrigðisfulltrúi. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  8. FEB 13

    13.02.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Forstjóri Landspítalans segir virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni þegar það skoðar hvernig eigi að taka á stöðu bráðamóttökunnar. Alma Möller, þá landlæknir, sagði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra árið 2022 að staðan á bráðamóttökunni væri svo slæm að ef það væri ekki eina bráðamóttakan á landinu myndi hún mæla með því að henni yrði lokað tímabundið. Samanlagður hagnaður bankanna þriggja í fyrra, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, nemur nærri 94 milljörðum króna. Íslandsbanki birti uppgjör síðasta árs í dag. Þar kemur fram að arðsemi eigin fjár hafi verið 10,5 prósent í fyrra og að vaxtatekjur hafi aukist töluvert. Sendiherraefni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í stöðu sendiherra á Íslandi, William Long, baðst afsökunar á ummælum sínum um að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna þegar hann kom fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins í gær. Long vafðist tunga um tönn í fyrstu í svari sínu en sagði svo: „Þetta var þriggja manna tal. Einhver sagði eitthvað og annar sagði annað, og já, ég bætti þessu við með 52. ríkið sem var algerlega óviðeigandi en það var not eitthvað sem ég sagði sem alvarleg yfirlýsing. Hann bætti svo við að hann vonaðist eftir því að Íslendingar myndu gefa honum annað tækifæri. Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu. Þetta verður gert í gegnum sérstakt verkefni á vegum Atlantshafsbandalagsins, þar sem vopn eru keypt frá Bandaríkjunum og send til Úkraínu. Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í stærsta kristal-metamfetamínsmáli Íslandssögunnar. Sigurður Ragnar Kristinsson hlaut þyngstan dóm sex sakborninga, átta ára fangelsi. Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti í dag að hækka skrásetningargjald háskóla landsins um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári. Fulltrúar stúdenta mótmæltu fyrirhugaðri hækkun í aðdraganda fundarins en höfðu ekki erindi sem erfiði. Flugsveit sænska flughersins mun næstu vikurnar sinna loftrýmisgæslu í íslenskri lofthelgi en verkefnið er á vegum NATO og unnið í samvinnu við varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar. Yfirliðsforingi í sænska flughernum segir rússneskar sprengjuflugvélar helstu ógnina og að móttökurnar hér á landi hafi verið afar góðar. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min

About

Fréttir dagsins er hlaðvarp sem gefur út helstu fréttir dagsins alla morgna.