hún hlaðvarp

Erna Hrund Hermannsdóttir

Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.

Episodes

  1. MAR 10

    hún hlaðvarp með Ernu Hrund - KYNNING

    Hvað er svo næst? spurning sem ég hef fengið ótrúlega oft undanfarnar vikur. Eftir að hafa hrisst all verulega upp í lífinu í leit að þroska og nýrri þekkingu með það í huga að langa að gera heiminn að betri stað varð til hún hlaðvarp. Í þessum kynningarþætti langar mig að gefa ykkur innsýn í það hvert ég ætla með þetta ferðalag og afhverju, ég reyni að gera þetta fyrst og fremst af einlægni og hreinskilni og með það í huga að við séum alltaf sterkari saman og sérstaklega þegar við leitum ráða hver hjá annarri. Í hverjum þætti fær ein kona sviðsljósið, við heyrum um þeirra ferðalag og lærdóm og verðum vonandi fróðari eftir hlustun. Inn á milli koma svo styttri þættir þar sem ég ætla að deila með ykkur mínum lærdómi. Markmiðið er að gefa konum innblástur og innsýn í ferðalag annarra kvenna, fá tækifæri til að spegla sig og þannig fá aukið sjálfstraust í að sækjast eftir tækifærum. Fá að heyra sögur af erfiðum ákvörðunum eða áskorunum sem þær hafa mætt og þroskað þær á sínu ferðalagi. Mig langar að opna umræðu um konuna sem vill ná langt, sem vill skapa sér sterkan stað í íslensku atvinnulífi og hafa áhrif. Eflaust hafa margar konur upplifað að þær þurfi að velja á milli fjölskyldu og starfsferilsins en er hægt að gera bæði eða má gera bæði? Í þáttunum kynnumst við ólíkum stjórnendastílum, hugsungargangi og hvernig viðmælendur hafa þróað sinn stíl yfir ferilinn.

    9 min

About

Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.

You Might Also Like