Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu

Margrét Gunnarsdóttir

Ferðalög til Ítalíu og ferðatilboð þangað hafa aukist verulega á undanförnum árum. Hlaðvarpið ”Ítalía heillar” er tileinkað þér sem hefur nú þegar ferðast um landið eða hefur Ítalíu á óskalistanum. Ég heiti Magga — ég er menntaður tónmenntakennari og upplýsingafræðingur. Í hlaðvarpinu ætla ég að deila fróðleiksmolum fyrir ferðalanga um Ítalíu, Ítali, ítalska menningu, borgir og bæi, eyjar, héruð, fegurðina, sérviskuna og ótalmargt fleira en líka litlu augnablikunum sem sjaldnar eru dregin fram. Ítalía hefur verið hluti af lífi mínu í áratugi. Ég bjó þar fyrst sem skiptinemi, eignaðist fjölskyldu og vini fyrir lífstíð og leiðin hefur legið aftur og aftur til þessa fallega lands. Meðfram starfi mínu sem upplýsingafræðingur, varði ég mörgum sumarleyfum sem fararstjóri íslenskra ferðahópa á Ítalíu, þar sem nánast hver vegur, hvert stræti leiðir mann að einhverju ógleymanlegu. Heimildir fyrir efni þáttanna eru fengnar víða. Ég vitna í eigin reynslu, reynslusögur annarra, leiðbeiningar virtra ferðafrömuða og margt fleira. Njótið – ciao ciao.

Episodes

  1. 1d ago

    5. Hvað er til ráða ef þú veikist á Ítalíu?

    Í þessum þætti er farið yfir hvernig þú getur fengið aðstoð á Ítalíu, hvort sem um er að ræða væga kvilla eða neyðrartilvik. Fyrir brottför ættir þú að sækja um Evrópska sjúkratryggingakortið (EHIC) hjá Sjúkratryggingum Íslands, skoða þær tryggingar sem fylgja kreditkortinu þínu og mögulega fá þér góða ferðatryggingu. Fyrsti viðkomustaður fyrir minni háttar veikindi ætti oftast að vera apótek (Farmacia). Ítalskir lyfjafræðingar geta ráðlagt um lausasölulyf og vísað áfram til læknis ef þörf krefur. Sýklalyf færðu aðeins gegn lyfseðli. Við alvarleg veikindi eða slys skaltu fara á bráðamóttöku (Pronto Soccorso) eða hringja í neyðarnúmerið 112. Fyrir vandamál sem eru ekki alvarleg er hægt að hafa samband við læknavaktina, Guardia Medica, í síma 116117, eða nýta sér einkareknar læknastofur og fjarheilbrigðisþjónustu. Slík þjónusta er yfirleitt fljótlegri, en kostnaður fæst ekki alltaf endurgreiddur. ****** Evrópska sjúktratryggingakortið og staðfesting á sjúkratryggingu Vefsíða: https://island.is/s/sjukratryggingar SSN – Servizio Sanitario Nazionale – Opinber heilbrigðisþjónusta á Ítalíu Imodium – lausasölulyf gegn niðurgangi Pronto Soccorso – bráðamóttaka í opinbera kerfinu Símanúmer sem gildir í mörgum héruðum til að fá samband við Guardia Medica: 116117 (0039 116117) Guardia Medica – Læknavakt Guardia Medica turistica – læknavakt fyrir ferðamenn Farmacia – apótek Farmacia di turno – vakthafandi apótek Fjarheilbrigðisþjónusta: Doctorsinitaly.com og pyllola.com Parla inglese, per favore? – Talið þér ensku? Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

  2. Jul 29

    4. Lago di Garda – Gardavatnið og töfrar þess sem heilla ferðalanga

    Lago di Garda – Lake Garda – Gardavatnið Gardavatn (Lago di Garda), stærsta vatn Ítalíu. Lýst er einstakri fegurð vatnsins, þar sem snævi þaktir Alpatoppar mæta pálmatrjám, ólífutrjálundum og Miðjarðarhafsgróðri og skapa landslag sem á sér engan líka annars staðar í Evrópu. Komið er víða við og m.a. fjallað um bæina Sirmione, Malcesine, Limone sul Garda og Riva del Garda. Gardavatn er miklu meira en fallegur áfangastaður: það er staður þar sem náttúra, saga, menning og daglegt líf renna saman og skapa ógleymanlega upplifun sem fær gesti til að koma aftur og aftur. ****** Vefslóðir Tímatöflur fyrir strætisvagna við Gardavatn https://www.visitgarda.com/en/Bus-timetables/ Tímatöflur fyrir ferjur við Gardavatn  https://www.navigazionelaghi.it/en/tickets-and-timetables-lake-garda/  Þorpshátíðir við Gardavatn  https://www.europlan.it/en/blog/lake-garda-local-festivals-a-blend-of-music-food-traditions Skemmtigarðurinn Gardaland  http://www.gardaland.it/en/home.php Ristorante Franco e Adriana, Pieve di Ledro  https://francoeadriana.it/  Vínbúgarður rétt hjá Arco – Madonna delle Vittorie  https://www.madonnadellevittorie.it/ Bæir sem fjallað er um: Sirmione Grotte di Catullo: https://museilombardia.cultura.gov.it/en/museums/grotte-di-catullo-e-museo-archeologico-di-sirmione/Malcesine https://www.funiviedelbaldo.it/en/timetables-and-fares-malcesine-monte-baldo-cable-cars Limone sul GardaRiva del GardaOrð og hugtök Notte di fiaba - ÆvintýranóttSagra – sagre: Þorpshátíð et. – Þorpshátíðir ft.Riposo/siesta – hvíldin eftir hádegisverðLa passeggiata – kvöldganganVindarnir Pelér og OraDæmi um skoðunarferðir: Feneyjar VeronaLago di LedroGardalandArcoVínsmökkun: Madonna delle VittorieMatur og vín Ferskvatnsfiskarnir  carpione  og coregoneCarne salada (marinerað nautakjöt) Polenta Carbonèra  Garda DOP ólífuolía  Vínin Lugana og Bardolino.   Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

  3. Jul 15

    2. Ítalía II - Væntingar og veruleiki. Af hverju heillast ferðalangar af Ítalíu?

    Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu Í þessum þætti er farið yfir það sem gott er fyrir þig að vita áður en lagt er af stað til Ítalíu. Fjallað er um muninn á væntingum og veruleika og hvernig þú getur notið landsins betur með smá undirbúningi og réttu hugarfari. Þú kynnist ítalskri matarmenningu, þar sem einfaldleiki og gæðahráefni ráða ríkjum, og kaffivenjum sem geta komið ferðamönnum á óvart. Einnig er rætt um akstur á Ítalíu, ZTL-umferðarsvæði, bílaleigur og hvers vegna lestir eru oft betri kostur en bíll. Sérstök áhersla er lögð á að muna að stimpla pappírsmiða í svæðislestir og fylgjast með mögulegum verkföllum. Þátturinn fjallar einnig um ítalskt tungumál, fjölbreyttar mállýskur, list, hönnun og hinn afslappaða lífsstíl sem einkennir landið. Farið er yfir nokkur atriði sem koma mörgum á óvart, svo sem þjónustugjöld á veitingastöðum, klæðaburð í kirkjum og mismunandi salernisaðstöðu. Með opnum huga, smá þolinmæði og góðum undirbúningi verður ferðin bæði auðveldari og eftirminnilegri. ******  ZTL – Zona a traffico limitato. Afmörkuð svæði í borgum og bæjum þar sem bílar þurfa sérstakt leyfi til að aka. Miðsvæðis. Sciopero – scioperi: Verkfall – verkföll. scioperi.mit.gov.it – Upplýsingasíða hins opinbera á Ítalíu varðandi verkföll Dialetto – mállýska Buongiorno – Góðan dag Grazie – takk Riposo – ítalska útgáfan af “siesta” Coperto -  þjónustugjald fyrir brauð og borðþjónustu. Acqua naturale – Venjulegt vatn Acqua frizzante – Sódavatn Öryggisnúmer 112 – Almenna neyðarnúmerið. Ítalska útgáfan af 112 á Íslandi.113 – Lögreglan115 – Slökkviliðið.116 – Vegaaðstoð. Ítalska útgáfan af FÍB, kölluð ACI.118 – Neyðartilfelli tengd heilsu,  sjúkrabílar, skyndihjálp.Va bene – Allt í lagi Questura - Lögreglustöð Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

About

Ferðalög til Ítalíu og ferðatilboð þangað hafa aukist verulega á undanförnum árum. Hlaðvarpið ”Ítalía heillar” er tileinkað þér sem hefur nú þegar ferðast um landið eða hefur Ítalíu á óskalistanum. Ég heiti Magga — ég er menntaður tónmenntakennari og upplýsingafræðingur. Í hlaðvarpinu ætla ég að deila fróðleiksmolum fyrir ferðalanga um Ítalíu, Ítali, ítalska menningu, borgir og bæi, eyjar, héruð, fegurðina, sérviskuna og ótalmargt fleira en líka litlu augnablikunum sem sjaldnar eru dregin fram. Ítalía hefur verið hluti af lífi mínu í áratugi. Ég bjó þar fyrst sem skiptinemi, eignaðist fjölskyldu og vini fyrir lífstíð og leiðin hefur legið aftur og aftur til þessa fallega lands. Meðfram starfi mínu sem upplýsingafræðingur, varði ég mörgum sumarleyfum sem fararstjóri íslenskra ferðahópa á Ítalíu, þar sem nánast hver vegur, hvert stræti leiðir mann að einhverju ógleymanlegu. Heimildir fyrir efni þáttanna eru fengnar víða. Ég vitna í eigin reynslu, reynslusögur annarra, leiðbeiningar virtra ferðafrömuða og margt fleira. Njótið – ciao ciao.