Forysta & samskipti

Háskólinn á Akureyri

Í hlaðvarpinu er fjallað um ýmsa þætti sem falla undir forystu og samskipti , eins og farsæla forystu og stjórnun, árangursrík samskipti, samningatækni, lausn ágreinings og vandamála o.fl. Sigurður fær til sín fólk sem er að fást við ólíka hluti og deilir með okkur mismunandi þekkingu og reynslu. Umsjón: Sigurður Ragnarsson, forseti Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri og stjórnenda- og forystuþjálfari.

Episodes

  1. 12/08/2025

    10: Edda Björgvinsdóttir - Húmor er lífsins nauðsynlegur – líka á vinnustöðum

    Gestur: Edda Björgvinsdóttir, leikari, leikstjóri, skemmtikraftur, fyrirlesari, stjórnendaþjálfari og gersemi þjóðarinnar. Edda hefur líka skrifað meistararitgerð um húmor í stjórnun ásamt að vera með diplómagráðu í jákvæðri sálfræði og sálgæslu frá Háskóla Íslands. Nýr þáttur af hlaðvarpinu Forysta og samskipti er kominn í loftið en umsjónarmaður er Sigurður Ragnarsson forseti Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri og stjórnenda- og forystuþjálfari. Gestur Sigurðar í þættinum er Edda Björgvinsdóttir, leikari, leikstjóri, skemmtikraftur, fyrirlesari, stjórnendaþjálfari og einn okkar allra mesti gleðigjafi. Edda er líka með meistaragráðu í menningarstjórnun en meistararitgerð hennar var um húmor í stjórnun. Edda er einnig með diplómagráðu í jákvæðri sálfræði og sálgæslu frá Háskóla Íslands. Í þættinum er sérstaklega farið yfir mikilvægi húmors á vinnustöðum og jákvæð áhrif hans á ótal sviðum. Húmor er mikilvægur í öllum kringumstæðum og komið er inná marga þætti eins og húmor í krísuástandi, mismunandi tegund húmors og hvernig stjórnendur og leiðtogar geta beitt sem og tileinkað sér húmor í vinnunni. Edda segir okkur einnig frá ákveðinni tegund fólks sem hún kallar ,,mengunarvalda“ á vinnustöðum og tekur í því sambandi m.a. dæmi um slúður og mannorðsmorð. Þessu tengt segir Edda að það ættu að vera reglur á öllum vinnustöðum, eins og er á mörgum leikskólum, að þú takir ekki með þér í vinnuna vandræði úr einkalífinu, og ekki heldur leiðinlegustu fréttirnar úr fjölmiðlum. Edda segir þetta stórt vandamál í íslensku atvinnulífi og lýsir vel hvernig hægt er að taka á þessu. Edda ræðir líka um ,,gleðibankann“ og gefur góð ráð hvernig við getum safnað í hann. Síðan fjallar Edda um hvernig vænlegt er að velja stjórnendur og leiðtoga og þar er tilfinningagreind lykilatriði. Margt fleira fléttast við samræðurnar, þ.á.m. sálgæsla og jákvæð sálfræði. Einnig segir Edda okkur frá ,,freka kallinum“, sem er ekki bara karlkyns heldur hvaða einstaklingur sem er sem skortir tilfinningagreind, og er með yfirgang og valtar yfir allt og alla. Síðan er ekki hægt að setjast niður með Eddu án þess að komið sé inná helstu perlur hennar í gegnum tíðina. Hvað finnst Eddu fyndið? Hver eru hennar uppáhaldshlutverk, þættir og kvikmyndir? Hversu líkar eru Edda og Stella í orlofi? Hvað segir Edda um Felix og Klöru?

    1h 27m
  2. 06/18/2024

    04: Eyjólfur Guðmundsson

    Gestur Sigurðar í þættinum er Eyjólfur Guðmundsson fráfarandi rektor Háskólans á Akureyri. Eyjólfur hefur verið rektor HA síðustu tíu ár. Áður var hann sviðsstjóri greiningar og aðalhagfræðingur hjá tölvuleikjafyrirtækinu CCP; og þar áður forseti viðskipta- og raunvísindadeildar HA. Eyjólfur segir okkur frá ýmsum þáttum í starfi sínu, til dæmis hvað skiptir mestu máli í tengslum við að leiða og taka ákvarðanir. Hann lýsir einnig þremur megin áskorunum í starfi sínu sem rektor: Í fyrsta lagi eru það samskiptin við stjórnvöld; í öðru lagi stjórnun í akademísku samfélagi; og í þriðja lagi, sú áskorun að standa sig í hinu alþjóðlega samhengi. Margt fleira kemur til tals eins og möguleg sameining við Háskólann á Bifröst og háskólaumhverfi framtíðarinnar sem hann telur verða mikið breytt miðað við í dag, það verði mun hraðara og dýnamískra. Eyjólfur tengir meðal annars gervigreindina við þessar breytingar. Í tengslum við umræðu um forystu og stjórnun tekur Eyjólfur dæmi um marga leiðtoga, eins og Elon Musk, Steve Jobs, Angelu Merkel, Winston Churchill og fleiri. Um áskorun í starfi varðandi samskipti við stjórnvöld segir Eyjólfur meðal annars: ,,Svo ég orði það pent, þá erum við alltaf í baráttu við að fá viðurkenningu, eiginlega viðurkenningu þess að við séum stofnun þess virði fyrir suðurvaldið, ég kalla það suðurvaldið, að veita okkur athygli. Það getur verið mjög mismunandi eftir ráðherrum, það getur verið mjög mismunandi eftir tímabilum; hefur stórbatnað á þessum 10 árum en á sama tíma er það svolítið ennþá fast í sama fari.“ Einnig má nefna að Eyjólfur lýsir því hvernig, að hans mati, jafningjastjórnun gengur ekki upp í háskólaumhverfinu.

    1h 8m

About

Í hlaðvarpinu er fjallað um ýmsa þætti sem falla undir forystu og samskipti , eins og farsæla forystu og stjórnun, árangursrík samskipti, samningatækni, lausn ágreinings og vandamála o.fl. Sigurður fær til sín fólk sem er að fást við ólíka hluti og deilir með okkur mismunandi þekkingu og reynslu. Umsjón: Sigurður Ragnarsson, forseti Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri og stjórnenda- og forystuþjálfari.