Gervigreind

Javelin AI

Hlaðvarp frá Javelin AI um allt sem snýr að gervigreind

Episodes

  1. 11H AGO

    # 13 - Málfríður Anna: Nám á tímum gervigreindar

    Nám á tímum gervigreindar: Svindl eða ný færni? (Gestur: Málfríður Anna) Í þessum þætti fær Sverrir til sín Málfríði Önnu Eiríksdóttur, tölvunarfræðing og verðandi verkfræðing, sem er við það að ljúka meistaranámi í gervigreind við DTU í Danmörku. Málfríður hefur upplifað það af eigin raun hvernig er að vera í háskólanámi á tímum þar sem leikreglurnar eru að breytast á ógnarhraða. Við ræðum „bleika fílinn“ í kennslustofunni, hvernig skólakerfið glímir við nýja tækni og hvort notkun gervigreindar í námi sé í raun svindl eða bara nauðsynleg þróun. Í þættinum er farið yfir: Nám á tímum gervigreindar: Málfríður segir frá reynslu sinni af námi í DTU þegar ChatGPT og önnur tól mættu skyndilega til leiks og breyttu öllu. „Secret Cyborgs“: Hvernig nemendur nota tæknina í felum þegar skólar hafa ekki skýrar reglur eða banna notkun alfarið. Djúpur skilningur vs. „Get Sh*t Done“: Fórnarkostnaðurinn við að nota gervigreind - missum við af djúpum skilningi á grunninum eða verðum við bara skilvirkari starfskraftar? Covid-gráður vs. AI-gráður: Samlíkingin við að útskrifast í heimsfaraldri; er litið hornauga á þá sem útskrifast með hjálp tækninnar? Er forritarinn að útrýma sjálfum sér? Pælingar um framtíðina, óttann við tæknina og hvort við séum að smíða tól sem leysa okkur sjálf af hólmi. Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega. Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: javelin.is/courses Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

    1h 1m
  2. 12/18/2025

    #10 - Tilvistarkreppa á tímum gervigreindar

    Hver er ég ef ekki starfið mitt? Sverrir fær til sín Vagn, heimspeking og Bolvíking, til að ræða hliðar gervigreindar sem sjaldnar er talað um: Þá mannlegu, sálfræðilegu og heimspekilegu. Við ræðum „verufræðilegt áfall“ (e. ontological shock) og hvernig við bregðumst við þegar heimsmyndin okkar brotnar. Hvað stendur eftir þegar gervigreindin leysir verkefnin okkar af hólmi? Í þættinum er farið yfir: 3 svefnlausar nætur: Ethan Mollick og áfallið sem fylgir því að átta sig raunverulega á stöðunni. Hver er ég? Mörg okkar skilgreina tilgang sinn út frá vinnu. Hvað gerist þegar því er ógnað? Kópíum og afneitun: Við ræðum frasann „Gervigreind tekur ekki starfið þitt, manneskja með gervigreind gerir það“ – er þetta bara leið til að halda okkur rólegum? Góður smekkur vs. „Slop“: Þegar hver sem er getur búið til hvað sem er, verður góður smekkur þá verðmætasta auðlindin? FOMO og kvíði: Hvernig stanslaus straumur frétta getur skapað óöryggi og hvernig við þurfum að velja og hafna. Lausnin: Hvað getum við lært af Viktor Frankl og stóuspeki? Hvernig breytum við kvíða í spenning og náum stjórn á viðhorfi okkar? Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega. Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: javelin.is/courses Tæknimaður: Pétur Már Sigurðsson Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

    19 min
  3. 12/16/2025

    #9 - Gagnaver í geimnum

    Er „skýið“ að fara út í geim? Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í eina villtustu hugmynd tæknigeirans í dag: Að flytja gagnaverin út fyrir gufuhvolfið. Við ræðum verkefni á borð við Project Suncatcher og Project Natick og veltum fyrir okkur hvort þetta sé raunhæft eða bara sci-fi draumar ríkustu manna heims. Í þættinum er farið yfir: Gagnaver í geimnum: Hvers vegna vilja Google og fleiri senda tölvur út í geim? Við skoðum kosti sólarorku á sporbaug og lækkandi kostnað við geimskot þökk sé SpaceX. Hvernig kælir maður tölvu í lofttæmi? Það hljómar eins og geimurinn sé kaldur, en það er flókið að losna við hita þar. Við ræðum geislun, vatnskælingu og risastórar snúrur. Geimsópar og árekstrar: Hvað gerist ef gagnaverið klessir á gervihnött? Við útskýrum Kessler syndrome og hættuna á keðjuverkun árekstra í geimnum. Project Natick: Þegar Microsoft sökkti gagnaveri ofan í sjó. Hverjir voru kostirnir við að geyma gögnin á sjávarbotni og er ekkert ryk í sjónum? Ísland og orkumálin: Gætum við nýtt varmann frá gagnaverum betur, t.d. í hitaveituna, eða erum við að verða uppiskroppa með rafmagn? Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega. Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:👉 ⁠javelin.is/courses⁠ Tæknimaður: Vagn Margeir SmeltKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

    27 min
  4. 12/08/2025

    #8 - Gervigreind sem boðar heimsendi eða útópíu

    Er gervigreind að fara að taka yfir heiminn? Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í stærstu spurninguna af öllum: Hvert er gervigreindin að stefna? Erum við á leiðinni í útópíu eða dystópíu – eða verður þetta kannski bara „fínt“? Við ræðum muninn á AGI (Artificial General Intelligence) og ASI (Artificial Super Intelligence) og skoðum þrjár ólíkar sviðsmyndir sem sérfræðingar heimsins eru ósammála um. Allt frá útópískri framtíð þar sem öll vandamál eru leyst, yfir í dökkar spár um endalok mannkyns. Í þættinum er farið yfir: AGI og ASI: Hvenær verður tölvan klárari en manneskjan og hvenær verður hún klárari en allt mannkynið til samans?Bjartsýnisspáin: Getur gervigreind læknað alla sjúkdóma, leyst loftslagsvandann og skapað allsnægtir?„Doomer“ sviðsmyndin: Hvað gerist ef við missum stjórn eða ef tæknin lendir í röngum höndum?Eru störfin okkar örugg? Við ræðum hugtakið „copium“ og hvort við séum að blekkja okkur sjálf með því að halda að gervigreindin taki ekki vinnuna okkar.Kapphlaupið: Af hverju tæknirisarnir keppast við að vera fyrstir og pæla ekkert í kostnaðinum.Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega. Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar: 👉 javelin.is/courses Tæknimaður: Vagn Margeir Smelt Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

    1h 11m
  5. 12/01/2025

    #7 - Eru listamenn búnir að vera? Myndsköpun með gervigreind

    Bylting í myndsköpun og Nano Banana Myndir segja meira en þúsund orð, en hvað gerist þegar tölvur búa þær til?Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í heim myndsköpunar með gervigreind. Þeir ræða ótrúlega þróun síðustu ára, allt frá fyrstu tilraunum DALL-E til nýjustu tækni Google sem ber hið stórfurðulega nafn „Nano Banana“.Það er áhugavert að sjá hvernig bilið á milli ímyndunarafls og veruleika er að minnka. Í þættinum er farið yfir: Hvaðan nafnið Nano Banana kemur og hvers vegna líkanið er svona öflugt. Hvernig þekkum við gervigreindarmyndir og myndbönd í dag (og hvers vegna það er að verða ómögulegt). SynthID tæknina frá Google sem felur ósýnileg vatnsmerki í pixlum. Djúpfalsanir (Deepfakes), siðferðislegar spurningar og áhrif á lýðræðið. Áhrif gervigreindar á listamenn: Er verðmæti listarinnar að minnka eða tækifærin að aukast?. Hvernig nýjustu módelin skilja samhengi, texta og breytingar betur en nokkru sinni fyrr. Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega. Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:👉⁠ javelin.is/courses⁠ Tæknimaður: Vagn Margeir SmeltKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

    1h 33m

About

Hlaðvarp frá Javelin AI um allt sem snýr að gervigreind

You Might Also Like