Stjörnuspeki – Orkugreining

stjornuspeki

Vikulegur þáttur um stjörnuspeki þar sem við komum til með að endurvekja áhuga fólks á sjálfsþekkingu. Hver ertu? Hverjir eru þínir styrkleikar og veikleikar, og hvernig getur þú unnið með þá. Nýr þáttur kemur út vikulega á öllum helstu streymisveitum.

  1. 5d ago

    106 Gestur: Guðni Gunnarsson. Guðníska / Vald orðanna / Að taka ábyrgð á eigin lífi

    Guðni Gunnarsson er gestur þáttarins og að þessu sinni förum við djúpt í mátt orðanna, ábyrgð, vitund og það að taka aftur valdið í eigin lífi. Hvað er „guðníska“? Erum við heppin eða gæfurík? Hvað þýðir það raunverulega að vilja eitthvað – og hversu mikil áhrif hafa orðin sem við notum á veruleikann okkar? Við skoðum líka stjörnukort Guðna og veltum fyrir okkur hvernig sterk Sporðdrekaorka, Merkúr og Mars endurspegla manninn, hugsunina og lífsstarfið. Þáttur um sjálfsþekkingu, heimild, viðnám, gagnrýni og muninn á því að þekkja viskuna – og að lifa hana. Hér eru nokkrir punktar um efni þáttarins. 1. „Þú ert ekki heppinn – þú ert gæfuríkur.“ Hvað ef „heppni“ er ekki til? Guðni setur fram áhugaverða sýn á muninn á því að vera heppinn, lánsöm manneskja og gæfurík – og hvernig við sjálf tökum þátt í að skapa aðstæður lífs okkar. 2. „Ef þú ert bara að reyna – ætlarðu þá í raun að gera það?“ Það er gríðarlegur munur á mig langar, ég ætla, ég reyni og ég vil. Í þættinum er farið djúpt í orðið „vilji“ og þá hugmynd að raunverulegur vilji birtist fyrst þegar við framkvæmum. 3. Hversu mikið vald ertu búinn að gefa öðrum yfir líðan þinni? Símtal sem þú „verður“ að svara. Skilaboð sem þú „átt“ að bregðast við. Ásakanir eða skoðanir annarra sem þú hleypir inn. Hvar liggja mörkin milli samskipta og þess að afhenda öðrum valdið yfir eigin lífi? 4. „Gagnrýni“ þýðir ekki það sem við höldum. Að rýna eitthvað til gagns er eitt. Að ráðast á, ásaka eða rífa niður er allt annað. En hvers vegna tökum við skoðanir annarra svona auðveldlega inn á okkur – og þurfum við yfirhöfuð að gera það? 5. Stjörnukort Guðna útskýrir ótrúlega margt. Sól og Satúrnus í Sporðdreka, Venus í Sporðdreka, Mars í Vatnsbera og sterkur Merkúr. Kortið sýnir mann sem vill fara alla leið niður á kjarnann, umbreyta veikleikum í styrk og hefur lítinn áhuga á yfirborðinu.

Ratings & Reviews

5
out of 5
3 Ratings

About

Vikulegur þáttur um stjörnuspeki þar sem við komum til með að endurvekja áhuga fólks á sjálfsþekkingu. Hver ertu? Hverjir eru þínir styrkleikar og veikleikar, og hvernig getur þú unnið með þá. Nýr þáttur kemur út vikulega á öllum helstu streymisveitum.

You Might Also Like