Flest könnumst við við Vísindakirkjuna sem einhverskonar stórfurðuleg og dularfull samtök stjarnanna í Hollywood, þar sem Tom Cruise og John Travolta brosa framan í heiminn sem andlit hins andlega frelsis. En hvað dylst raunverulega á bak við glansmyndina, milljarða fasteignaveldið og loforðin um „að hreinsa“ mannkynið? Er mögulegt að undir yfirskini trúfélagsskráningar starfi í raun einhver þaulskipulagðasta glæpastofnun heims, sem nýtir heilaþvott, njósnir og hrottalega kúgun til að halda meðlimum sínum í gíslingu? Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í ótrúlega sögu L. Ron Hubbard, vísindaskáldsagnahöfundarins sem átti sér myrka fortíð í kynlífs-okkúltisma. Hvað var Hubbard raunverulega að bralla í Pasadena með Jack Parsons, eldflaugasérfræðingnum, sem hjálpaði til við að koma manninum á tunglið (eða hvað?), þegar þeir reyndu að kalla fram „Babalon“ sjálfa móður viðbjóðsins í eyðimörkinni? Hvers vegna varaði Aleister Crowley við Hubbard og kallaði hann einfaldan svikahrapp sem væri einungis úti eftir peningum og konum annarra manna? Strákarnir fletta ofan af hetjusögu Hubbards og skoða hvernig hann skáldaði eða stórlega ýkti afrekaskrá sína í hernum. Læknaði hann raunverulega „blindu og limlestingar“ með eigin hugarorku, eða sýna opinber gögn hersins fram á að hann hafi í raun verið meðhöndlaður við magasári og augnsýkingu á meðan hann skaut óvart á hlutlausa eyju í Mexíkó? Hvernig tókst honum að stela ævisparnaði Parsons, flýja með kærustu hans og enda sem tvíkvæntur loddari á flótta undan réttvísinni? Strákarnir skoða hvernig kirkjan náði að knésetja bandaríska skattinn , IRS, í einu stærsta dómstólastríði sögunnar. Var það trúarlegur sigur eða hrein og klár „litigious terrorism“ þar sem yfirvöld hreinlega gáfu eftir undan 2.400 málsóknum og persónulegu áreiti einkaspæjara? Má það vera að trúfélagsstaðan sé einungis skjöldur yfir „Operation Snow White“ stærstu njósnaaðgerð gegn bandarískum stjórnvöldum í sögunni, þar sem þúsundir meðlima smugu inn í ríkisstofnanir til að eyða sönnunargögnum? Hvað varð raunverulega um Shelly Miscavige, eiginkonu núverandi leiðtoga kirkjunnar, sem hefur ekki sést opinberlega síðan hún „hvarf“ árið 2007? Er hún kannski fangi í hátæknilegu neðanjarðarbyrgi Og hvað gerist í holunni svoköluðu? Strákarnir velta því fyrir sér hvort kirkjan sé í raun ríki í ríkinu, með eigin leyniþjónustu (OSA) sem nýtir „Dead Agenting“ og „Fair Game“ regluna til að eyðileggja mannorð blaðamanna og andstæðinga. Vinirnir ræða mál Paulette Cooper, sem kirkjan reyndi að keyra til sjálfsvígs með því að ramma hana inn fyrir sprengjuhótanir, og hvernig samtökin nota „PC-möppur“ safn af dýpstu leyndarmálum meðlima sinna til að kúga þá til þagnar og hlíðni. Er Vísindakirkjan leiðin að „algeru frelsi“ eða er hún ein fullkomnasta svikamylla nútímans sem nýtir stjórnarskrárvarin réttindi til að stunda kerfisbundna misnotkun? Allt þetta og svo margt, margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum, þar sem við þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að Vísindakirkjan stundi njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagssskráningar. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.