Bíófíklar

Bíófíklar Hlaðvarp

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson, Atli Freyr Bjarnason og Tómas Valgeirsson.

  1. Aug 31

    Grease (1978) & Grease 2 (1982)

    Grease er svo sannarlega orðið. Að minnsta kosti akkúrat þessa stundina. Kvikmyndagerðarþjarkurinn Salvör Bergmann hikaði ekki við að rétta upp hönd þegar Bíófíklar sýndu því áhuga að kafa djúpt í báðar myndirnar sem fjalla um skólaklíkur, rómantík, bíladellu og alls konar fjölskylduvæna greddu. Fyrri myndin er hugsanlega ein vinsælasta og þekktasta söngva- og dansmynd fyrr sem síðar og er hvergi skortur á heilum kynslóðunum sem þekkja allflest lögin úr þeirri mynd. Þar að auki var þetta bíómyndin sem skaut John Travolta (og Oliviu Newton-John í einhverjum mæli) hraðar upp stjörnuhimininn. Grease 2 er önnur saga; sú mynd hefur verið stuttlega rædd annað slagið í hlaðvarpinu en aldrei til fulls… fyrr en núna! Það er vægt til orða tekið að fullyrða að Grease 2 er óvinsælli myndin af þeim tveimur; fæstir úr upprunalegu myndinni snéru aftur (en persónurnar voru svo sem löngu búnar að útskrifast…) og lögin þótti alls ekki jafn grípandi að mati áhorfenda og gagnrýnenda. Að vísu er erfitt að neita því að Michelle Pfeiffer átti þarna massasvala innkomu og gladdi fáeinan einstaklinginn með sóló-söngnum ‘Cool Rider’, en listinn yfir kosti þessarar mynda ná sjaldnast lengra en það. Þá að sjálfsögðu er einn ónefndur Bíófíkill sem hefur í áraraðir tekið upp mótorhjólahanskann fyrir hinni veraldlega hötuðu Grease 2. Hvers vegna? Það veit enginn, nema jú, hlustandi góður sem kýs að ganga í klíkuna og hlera þetta djúsí spjall um myndirnar tvær. Efnisyfirlit: 00:00 - Minningar af Koppafeiti 17:05 - Kynjapólitíkin 24:45 - Litrík flóra persóna 29:52 - Dans- og bílakeppni 36:58 - ‘Fimm-söngleikja-reglan’ 45:47 - Grease 2… 54:01 - Umdeildari lög 58:00 - Dólgslæti persóna 01:07:22 - Týnda sjónvarpsserían…

    Grease (1978) & Grease 2 (1982)
  2. Aug 25

    Topp 5: John Waters

    Bíófíklar elska svo sannarlega flinka, fjölhæfa og fjöruga furðufugla, hvort sem þeir eru fyrir framan eða aftan kvikmyndatökuvélarnar. Hinn elskulegi, groddaralegi, drullufyndni og einkennilegi John Waters á fullkomlega erindi í þennan hóp og nú gefst hlustanda kost á því að fræðast og skyggnast inn í hugarheim mannsins sem færði heiminum Pink Flamingos, Mondo Trasho, Polyester, Hairspray og Cry Baby, svo aðeins nokkur dæmi séu nefnd. Má þá líka gjarnan færa þau rök að Waters hafi kynnt heiminum fyrir óviðjafnanlega skemmtikraftinum Divine. Íris Árnadóttir heldur utan um taum þessa innslags og í stúdíóið með henni eru mættir þeir Ormur Guðjónsson og Haukur Heiðar Steingrímsson. Saman velja þau sínar uppáhalds myndir eftir þennan snilldarlega sérvitring - sem er svo sannarlega ekki allra - og skoða þau ýmsu mynstur sem hafa fylgt honum í áratugaraðir. En aðdáendahópar Waters eru dyggir, mjög svo utangarðs í ýmsum samfélögum og e.t.v. prakkaralegir, líkt og heilinn á bak við titlaflóruna. Hér verður allsvakalega gramsað, rökstutt og róterað í alls konar gúrme skít í tengslum við þessa óvenjulegu filmógrafíu frá enn óvenjulegri kvikmyndagerðarmanni. Ríðum á vaðið, pössum upp á kjúklinginn og höfnum öllum samfélagslegum normum. Hláturtaugar verða sennilega kitlaðar.  Efnisyfirlit: 00:00 - Testum nú Waters 07:03 - Fyrsta upplifunin 14:49 - Uppáhalds leikari 17:35 - Divine legasían 24:27 - Cameo’in og einkennin 38:47 - Cry Baby 49:42 - Hairspray 58:56 - Polyester 01:15:27 - Serial Mom 01:26:56 - Female Trouble 01:42:23 - Pink Flamingos

    Topp 5: John Waters
  3. Aug 22

    Deadpool (2016-2024)

    Uppreisnargjarna andhetjan með lækningarmáttinn og sorakjaftinn hefur glatt pöpulinn í þrígang með geysivinsælum grínmyndum og ekki síður tilþrifunum frá Ryan Reynolds undir grímunni. Í Deadpool-myndunum er fjórði veggurinn reglulega mölvaður og endalaust gert grín að bæði Marvel-sarpinum og stærri formúlum ofurhetjumynda.  Leið þessarar fígúru að hvíta tjaldinu er jafn skemmtileg og hún var löng og á tíðum kolólögleg, þegar stærsti aflgjafinn var svonefnt ‘test reel’ lak með undraverðum hætti á internetið við ómælanlegan fögnuð netverja og áhorfenda. Á þeim tíma voru margir enn með óbragðið í munninum eftir að Deadpool karakterinn fékk hlægilega ef ekki móðgandi meðhöndlun í sorpmyndinni X-Men Origins: Wolverine. En talandi um Wolverine! Þá hefur Jarfinn sjálfur oft verið hluti af Deadpool-seríunni, beint eða óbeint, og leiddi það á endanum til þess að þeir sameinuðust með ógleymanlegum hætti í þriðju Deadpool-myndinni. Engu að síður vakna þarna upp ýmis konar spurningar, eins og: Eru vinsældir þessara mynda sjálfkrafa ávísun á gæði? Hversu vel eldast þær eiginlega eða eru þær jafnvel bara ákveðin búbbla síns samtíma? Og þá að sjálfsögðu líka, að öllu sögðu: Hver er besta Deadpool myndin af þessum þremur? Bíófíklar leggja í það að svara þessum og miklu, miklu fleiri spurningum með óforskammaðri greiningu á myndasyrpunni þar sem engu er tilsparað varðandi slettur og blótsyrði. Nú er lagt í subbulegt ferðalag skoðana og sturlaðra staðreynda. Beint í búningana með alla, smellum fáeinum [RITSKOÐAÐ]-línum í nasirnar og bölvum út í allar áttir, því nú skal hefja fjörið. Þess að auki er hlustandi jafnframt hvattur til að hlaða í eina eða tvær Chimichanga-rúllur á meðan hlustun stendur. Efnisyfirlit: 00:00 - Forsagan og Fox-fíaskóið 07:27 - X-Men Origins: Wolverine 14:38 - Deadpool 31:43 - Deadpool 2 52:03 - Deadpool & Wolverine

    Deadpool (2016-2024)

About

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson, Atli Freyr Bjarnason og Tómas Valgeirsson.

You Might Also Like