Hið yfirnáttúrulega

Ghost Network®

Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.

  1. 3d ago

    122. Chis Bledsoe - brottnuminn af geimverum

    Chris Bledsoe er einn þekktasti og umdeildasti maðurinn í heimi UAP (fljúgandi furðuhluta) og geimverurannsókna, en líf hans breyttist til frambúðar árið 2007 eftir meint brottnám við Cape Fear ána í Norður-Karólínu. Hann hvarf sporlaust í fjórar klukkustundir, og lýsti síðar fundi sínum við lýsandi kúlur, smáar verur með rauð augu og guðdómlega kvenveru sem hann kallar The Lady. Ólíkt dæmigerðum geimverusögum er upplifun hans mjög andleg; hann heldur því fram að verurnar hafi læknað hann af alvarlegum Crohn's sjúkdómi og fært honum boðskap um kærleika og andlega vakningu mannkyns. Sagan hans Chris er alveg mögnuð og hljómar pínu ótrúlega, en enn þann daginn í dag er hann að deila myndböndum af ufo ljósum eða plasma orbs sem hann getur framkallað með huganum einum. Hann framkallar þessi ljós nánast daglega með fjölda vitna sér við hlið. Hægt er að sjá þessi myndbönd á instagraminu hans. Í dag er Bledsoe afar eftirsóttur fyrirlesari á alþjóðlegum vettvangi og hefur gefið út ævisöguna UFO of God. Hann ver tíma sínum í að miðla reynslu sinni, en frásögn hans hefur vakið mikinn áhuga hjá vísindamönnum NASA, leyniþjónustustofnunum og stjórnmálamönnum sem rannsaka tengsl meðvitundar og óútskýrðra fyrirbæra. Hann heldur því jafnframt fram að hann upplifi enn reglubundnar heimsóknir og búi yfir hæfileika til að lækna aðra. Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift: www.patreon.com/hidyfirnatturulega

  2. 6d ago

    121. Heimsljós, heilun og andlegt trúnó.

    Við viljum byrja á að segja TAKK. TAKK allir sem komu og hittu okkur á Heimsljósi 19-20 september, það var ómetanlegt og svo gaman að hitta ykkur og spjalla. Takk fyrir stuðningin, peppið og hrósið, við erum svo þakklátar fyrir ykkur og yfirnáttúrulega samfélagið sem við erum að mynda hérna sem fer ört stækkandi. Takk fyrir að hlusta, takk fyrir að deila hlaðvarpinu með vinum og vandamönnum og takk fyrir ykkur, við erum bara mjög þakklátar eftir dásamlega Heimsljós helgi. Í þessum þætti förum við yfir Heimsljós helgina og förum á andlegt trúnó. Við getum talað endalaust um andleg málefni, okkar upplifanir og það sem við erum að læra alla daga inná okkar næmni og þennan ósýnilega heim sem er svo töfrandi og skemmtilegur! Maður er sko aldrei búinn að læra og það er það sem er svo skemmtilegt við lífið. Við erum fullar af þakklæti eftir að hafa kynnst helling af dásamlegum andlegum lífverum sem hafa gefið okkur fróðleik, gleði og visku og það er svo gaman að hitta aðra og heyra hvernig þeir skynja og hvernig þeirra næmni er. Við ræðum um hvernig við upplifðum að transheila tvær saman á eina manneskju og það var vægast sagt magnað og ótrúlega gaman! Við erum bara rétt að byrja og finnum að krafturinn er að koma með haustinu. Okkur hlakkar til að hitta ykkur aftur og skipulegga skemmtilegan viðburð þannig við getum sem flest hisst, spjallað og nornast saman. Við finnum að það er mikill áhugi fyrir því, enda er bara ekkert skemmtilegra en að vera umkringdur fólki sem er með sömu áhugamál og maður getur verið bara nákvæmlega maður sjálfur og rætt þessa hluti án þess að vera dæmdur stórfurðulegur og mæta bara skilning og áhuga í staðinn! Við viljum minna á að ef þið viljið segja okkur sögur, deila reynslu, hafið spurningar eða ábendingar þá má alltaf hafa samband og senda okkur póst: hidyfirnatturulega@gmail.com Við elskum að heyra frá ykkur! Hafið það gott og takk fyrir ÞIG. Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar: www.patreon.com/hidyfirnatturulega Mentioned in this episode: d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift Galdrabox Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur Komdu í áskrift

  3. Sep 14

    119. Galdrar - nornir - álög

    Í þessum þætti tölum við um galdra, hreinsanir, hugarfar og ásetning. Hvað við erum að gera og galdra fram þessa dagana og förum yfir í extreme nornir og nornamenningu sem finnst að mestu erlendis. Galdrar, álög og bölvanir hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda og endurspegla ríka þörf mannsins fyrir að skilja, stjórna eða hafa áhrif á umhverfi sitt með yfirnáttúrulegum leiðum. Nútímanornir eru oftast andlegir leiðbeinendur sem vinna með náttúruna, kristalla, jurtir og heilunar orku til að hjálpa fólki í daglegu lífi. En svo eru aðrar "nornir" sem fara aðeins lengra og vilja vinna með dekkri öfl, þær eru ekki að þessu að heillindum og gera allskonar til þess að hafa pening af fólki og setja smá skugga á orðið norn. Sumar af þessum sem starfa sem norn og eru bara atvinnunornir þær hafa farið aðeins út af veginum og fara galdrarnir að snúast um að setja á álög fyrir viðskiptavini, sem í nútímasamhengi þýðir að beina orku og ásetning á ákveðinn farveg fyrir fólk. Algengt er að nornir séu fengnar til að framkvæma ástargaldra, laða að peninga og velgengni í viðskiptum, eða búa til sérstaka varnargaldra fyrir heimili. Á sama tíma er jafnvel enn stærri markaður í því að setja á OG taka af álög og bölvanir og taka fúlgu fjár fyrir. Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift: www.patreon.com/hidyfirnatturulega

  4. Aug 31

    117. Sólgos, sólmyrkvi, fullt tungl - Jörðin er að ganga í gegnum mikla orkubreytingu.

    Jörðin og alheimurinn eru að ganga í gegnum gríðarlega orkubreytingu! Við höfum nýlega upplifað bæði sólmyrkva og tunglsmyrkva, en í yfirnáttúrulegum skilningi eru þetta ekki bara stjarnfræðilegir atburðir heldur öflugar gáttir. Sólmyrkvinn táknar dramatísk þáttaskil þar sem ljósið víkur augnablik fyrir skugganum, sem neyðir okkur til að horfast í augu við okkar eigin dökku hliðar og loka gömlum dyrum. Tunglsmyrkvinn fylgir svo í kjölfarið með tilfinningalega úthreinsun, þar sem hlutir sem hafa verið faldir í undirdjúpunum koma upp á yfirborðið. Á sama tíma er eitthvað stórfellt að gerast í hinu ósýnilega orkusviði jarðarinnar. Schumann resonance, sem oft er kölluð hjartsláttur jarðar, hefur verið að sýna óvenjulega tinda og sveiflur. Þessi náttúrulega rafsegultíðni jarðar, sem venjulega slær í rólegum 7,83 hertzum, virðist vera að rjúka upp, og margir trúa því að jörðin sé að hækka tíðni sína. Þegar þessi tæknilegi hjartsláttur jarðar mætir kosmísku orkunni frá smyrkvanum, þá finnum við það beint á eigin skinni. Það lýsir sér í skrýtnum draumum, skyndilegri þreytu, höfuðverk eða tilfinningu um að tíma brenglun. Við erum bókstaflega að tengjast nýrri orku, endurforrita okkar eigin tíðni og stíga inn í hærra meðvitundarstig. Spurningin er bara: hefur þú fundið fyrir orkunni? Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift! www.patreon.com/hidyfirnatturulega

  5. Aug 19

    115. Gunnar Dan - Ufo 202, kómísk uppljóstrun með Dr Phil og allt milli himins og jarðar.

    Gunnar Dan vinur okkar hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum enda er hann aðal upplýsingaveita Íslendinga um það sem er að gerast í Ufo heiminum. Hann var að gefa út bókina sína Ufo 102 sem er hreint út sagt stórkostleg og full af fróðleik! Gunnar hefur upplifað margt í lífinu og andlega vakningin er að koma til hans af miklum krafti og tenging við hinn æðri mátt, hver sem þessi máttur er. Í þessum þætti förum við um víðan völl, ræðum um stýrðu uppljóstrnunina sem er vægast sagt kómísk þegar enginn annar en Dr Phil er kominn á settið. Við ræðum um Dmt og Ayahuasca í andlegum tilgangi og margt fleira. Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift: www.patreon.com/hidyfirnatturulega Við mælum svo sannarlega með að þið fylgist með honum Gunnari og Geimsýrunni þar sem hann segir okkur nánast daglega frá nýjum fréttum. Bókina Ufo 101 og Ufo 102 er að finna í öllum helstu bókasölum og bókasöfnum. Þið getið fylgt Gunnari á facebook og fengið nýjustu fréttir þar: https://www.facebook.com/gunnar.wiium Geimsýran á youtube: https://www.youtube.com/@vottahusi1119 Mentioned in this episode: Galdrabox Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift Komdu í áskrift

About

Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.

You Might Also Like