Vörumerki

Margrét Björk Jónsdóttir

Hlaðvarp fyrir fólk með góðar hugmyndir og stóra drauma! Langar þig að stofna eigið fyrirtæki, styrkja þitt persónulega vörumerki eða gera eitthvað alveg nýtt?  Í Vörumerki leiða Margrét Björk og Arna Þorsteins hlustendur inn í heim vörumerkja, sköpunar og frumkvöðlastarfs. Þær ræða við fólk sem hefur byggt upp eða starfað fyrir sterk vörumerki, þá sem hafa tekið stórar ákvarðanir, gert mistök og lært af þeim. Inn á milli deila þær eigin reynslu og raunveruleikanum á bak við það að taka sénsinn þrátt fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Byrja, og gera það svo vel!

  1. 3d ago

    S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki

    Þessi þáttur fangar kjarnann í því sem Vörumerki snýst um: að sjá vandamál, fá hugmynd að lausn...og framkvæma hana. Ásthildur Gunnlaugsdóttir var aðeins 26 ára þegar hún fékk hugmynd að lausn við vandamáli sem hún hafði sjálf glímt við í starfi sínu sem förðunarfræðingur. Úr þeirri hugmynd varð Mist & Co., íslenskt vörumerki sem gerir þrif á förðunarburstum einfaldari, fljótlegri og fallegri. Í þættinum ræðum við meðal annars: - Framleiðsluferlið og þær óvæntu áskoranir sem koma upp þegar hugmynd á að verða að alvöru vöru - Umbúðirnar og hversu stóru hlutverk þær gegna í upplifuninni af vörumerkinu - Hvernig kokteilskóli fjármagnaði fyrstu framleiðsluna - Fyrsta fundinn með Hagkaup, þar sem Ásthildur mætti með frumgerð sem var, að hennar eigin sögn, „basically blað“ - Samfélagsmiðla, frumkvöðlalífið og uppbyggingu vörumerkis frá grunni, frá hugmynd og konsepti yfir í sölu og dreifingu. - Spennandi hluti framundan hjá Mist & Co.  Mist & Co. er þó ekki eina fyrirtækið sem Ásthildur hefur komið á laggirnar. Hún og kærasti hennar stofnuðu einnig Kokteilskólann og Reykjavík Cocktails, samhliða því að eignast tvö börn á síðustu árum. Þetta er þáttur fyrir alla sem vantar innblástur til að byrja, framkvæma og halda áfram, fullur af raunverulegum ráðum og innsýn í allt það sem gerist á bak við tjöldin þegar vörumerki verður til. Og já… þú vilt líklega fara að þrífa förðunarburstana þína eftir þennan þátt. 🫣🦠 - 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

  2. Jul 2

    S2E5 | Hjörtur (og Magnús) - Hvernig getur gervigreind einfaldað líf þitt?

    Í þættinum fáum við Hjört Sigurðsson, gervigreindarsérfræðing og stofnanda Mynstra, til að útskýra AI á mannamáli. Tilgangurinn er að átta sig á hvernig venjulegt fólk, frumkvöðlar og fyrirtæki geta byrjað að nota gervigreind til að einfalda lífið og spara tíma.  Stjarna þáttarins er þó án efa Magnús, persónulegi gervigreindaraðstoðarmaðurinn hans Hjartar. Hann les og svarar tölvupóstum, fer yfir verkefnalista, gerir matarplan, tekur til á SharePoint….og skrifar ljóð í frítímanum. Við ræðum líka bréfaklemmu-heimsendaspána, hvort AI muni taka yfir störfin okkar, hvað fólk gerir ennþá betur en gervigreind og hvar mörkin liggja. Í þættinum lærir þú meðal annars: Hvernig þú getur byrjað að nota gervigreind án þess að mikla það fyrir þér. Hvernig persónulegur AI-aðstoðarmaður getur létt þér amstur hversdagsins. Hvaða forrit eru best fyrir fyrstu skrefin og hvernig þú talar við gervigreindina svo hún skilji þig. Hvernig AI getur nýst í vinnu, rekstri, heimilislífi og hugmyndavinnu. Þetta er þáttur fyrir alla sem hafa hugsað: „Ég veit að ég ætti að vera að nota gervigreind… en ég veit ekki hvar ég á að byrja.“ Gervigreindin þarf ekki að vera flókin, tæknileg eða yfirþyrmandi. Ekki mikla þetta fyrir þér. Bara byrja! -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

  3. Jun 25

    S2E4 | Fyrstu skrefin að sterku vörumerki

    Stútfullur þáttur af ráðum fyrir alla sem stefna á að stofna eigið fyrirtæki, hvort sem það er verslun, vörumerki, þjónusta, námskeið, vara..... eða bara hugmynd sem er farin að biðja um að verða að einhverju stærra. Arna og Margrét fara ítarlega yfir fyrstu skrefin við að byggja upp vörumerki, og það sem þarf að liggja fyrir áður en þú ferð í lógó, lén og Instagram. Við ræðum meðal annars: – hvað þú ert í raun að selja – hverjum þú ert að selja – hvað gerir þig öðruvísi – hvernig þú finnur markhópinn – af hverju sagan skiptir máli – hvernig þú heldur fókus – hvað þarf að passa áður en þú ferð af stað – og af hverju manneskjan á bakvið merkið skiptir máli .....Og loksins talar Margrét almennilega um vörumerkið sitt. Hún segir frá sögunni á bakvið nafnið, hugmyndafræðinni og því sem hún er í raun að reyna að byggja upp. Avelin Rae er ekki bara skartgripamerki, heldur vörumerki með skýra sýn á gæði, tímalausan stíl og hversdagslúxus. Arna kemur svo með sitt sterka sjónarhorn úr vörumerkjavinnu og rekstri, spyr réttu spurninganna, setur hlutina í samhengi og gerir þetta bæði praktískt og skýrt. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall+, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶 Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

  4. Jun 11

    S2E1 | Davíð Örn Símonarson - Hinn fullkomni prófíll

    Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Smitten, er fyrsti viðmælandi okkar í seríu 2 af Vörumerki. Í þættinum ræðum við söguna á bak við skemmtilegasta dating-app í heimi, hvernig app verður að vörumerki, fjármögnun fyrir frumkvöðlaverkefni og bókina sem kveikti frumkvöðlaeldinn hjá Davíð. Davíð segir frá verkefnunum, tilraununum og lærdómunum á undan Smitten og af hverju það hefur aldrei komið til greina að gefast upp. Svo förum við auðvitað í stóru spurninguna: Hvernig er hinn fullkomni Smitten-prófíll? Hvaða myndir virka? Hverjar alls ekki? Hver eru rauðu flöggin? Og hvernig byrjar maður samtal án þess að segja bara „hæ“? Mögulega fórnar Margrét sér fyrir málsstaðinn... og skráir sig á Smitten í þættinum. Davíð hjálpar henni að velja réttu myndirnar og hikar ekki við að benda á þær sem eru ekki málið.  Þetta er þáttur fyrir alla sem vilja heyra skemmtilegt samtal um frumkvöðlastarf, vörumerki, lærdóm og fjármögnun, nú eða bara þá sem vilja fullkomna Smitten-prófílinn sinn. --- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🔊 Sérstakar þakkir fyrir hljóð- og eftirvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

Ratings & Reviews

5
out of 5
2 Ratings

About

Hlaðvarp fyrir fólk með góðar hugmyndir og stóra drauma! Langar þig að stofna eigið fyrirtæki, styrkja þitt persónulega vörumerki eða gera eitthvað alveg nýtt?  Í Vörumerki leiða Margrét Björk og Arna Þorsteins hlustendur inn í heim vörumerkja, sköpunar og frumkvöðlastarfs. Þær ræða við fólk sem hefur byggt upp eða starfað fyrir sterk vörumerki, þá sem hafa tekið stórar ákvarðanir, gert mistök og lært af þeim. Inn á milli deila þær eigin reynslu og raunveruleikanum á bak við það að taka sénsinn þrátt fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Byrja, og gera það svo vel!

You Might Also Like