Fréttir dagsins

Fréttir dagsins

Fréttir dagsins er hlaðvarp sem gefur út helstu fréttir dagsins alla morgna.

  1. Mar 16

    16.03.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Hundruð manns hafa leitað í fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins á Norðurlandi vestra í kvöld. Veðurviðvararnir eru fallnar úr gildi en Holtavörðuheiðin stendur enn lokuð. Ekki er ljóst hvenær hún opnar að nýju. Laufey hélt sína aðra og síðustu tónleika helgarinnar í kvöld í Kórnum í Kópavogi og lýkur hún þar með tónleikaferðalagi sínu þar sem hún hefur meðal annars komið við í New-York og Lundúnum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir marga þakka fyrir þá forystu sem hún segir að Kanada hafi sýnt á alþjóðasviðinu, á tímum þar sem mikið rót hefur verið á þeim vettvangi. Isavia lokaði í fyrrinótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að félagið hafi að eigin sögn fengið greiðsluskjól vegna vangreiddrar leigu samkvæmt dómsúrskurði. Framkvæmdastjóri verslunarinnar kveðst hrædd og sakar rekstraraðila flugvallarins um lögbrot. Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson gerði sér lítið fyrir og setti nýtt Íslandsmet í greininni á Evrópubikarkastmótinu á Kýpur núna í morgun. Kastið nægði Hilmari einnig til þess að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum sem fer fram í Birmingham í sumar. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum og á Ísafirði er hættustig. Þar hafa nokkur atvinnuhús undir Seljalandshlíð verið rýmd, á reit níu – þar er meðal annars Netagerðin sem hýsir ýmsa atvinnu og listastarfsemi. Slökkviliðsmenn slökktu í kvöld eld sem kom upp í fjölbýli í Úlfarsárdal. Engan sakaði. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  2. Mar 15

    15.03.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Líbönsk stjórnvöld hafa samþykkt tillögu frá Frökkum sem leggur grunn að friðarviðræðum við Ísrael. Tillögurnar eru sagðar kveða á um að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki en Ísraelsmenn búa sig nú undir aukinn landhernað í Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla. Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans. Mjög stórt snjóflóð féll fyrir utan Siglufjörð í nótt en Siglufjarðarvegi hefur verið lokað frá Ketilási til Strákaganga vegna þessa. Hættustig vegna snjóflóða er nú í gildi á norðanverðum Tröllaskaga. Isavia lokaði í nótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þrátt fyrir að félagið hafi fengið greiðsluskjól samkvæmt dómaraúrskurði. Gerðist þetta í kjölfar þess að framkvæmdastjóri verslunarinnar gagnrýndi framferði flugvallarins og sagðist ætla að fara fram á lögbann á hendur ríkisfyrirtækinu. Stórtónleikar Laufeyjar í Kórnum í Kópavogi í kvöld voru töfrum líkastir, að sögn tónleikagesta sem mbl.is náði tali af að tónleikunum loknum. Brynju Dan Gunnarsdóttur hefur verið gert að víkja sem oddviti Framsóknar í Garðabæ. Hún segist hvorki munu taka sæti á lista flokksins í komandi kosningum né styðja flokkinn á nokkurn hátt. Skautafélag Reykjavík er Íslandsmeistari karla í íshokkí eftir að sópað Skautafélagi Akureyrar í úrslitaeinvíginu. SR vann einvígið 3-0 og leik kvöldsins 3-2. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  3. Mar 14

    14.03.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri og ritstjóri Morgunblaðsins, var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. Kjartan Kjartansson, blaðamaður Vísis, hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2025 fyrir umfjöllun sína um loftslagsmál. Karlmaður hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga sex ára stúlku tvívegis og eiginkonu sinni ítrekað. Hann var einnig dæmdur fyrir að hafa ljósmyndað athæfi sitt og birt ljósmyndir af því á netinu og að hafa í fórum sínum barnaníðsefni, sem sýnir meðal annars kornabörn. Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og fyrrverandi rektor Listaháskólans, er látinn, 74 ára að aldri. Hjálmar lést á líknardeild Landspítalans í nótt. Hjálmar starfaði sem tónskáld, söngstjóri, kennari og var rektor LHÍ til fimmtán ára auk þess sem hann tók virkan þátt í félagsmálum listamanna. Bandaríski herinn gerði miklar árásir á Kharg-eyju norðarlega í Persaflóa í gær. Nær allur flutningur á hráolíu fer um eyjuna. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá árásunum í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social, og sagði árásirnar vera einar mestu árásir sögunnar í Mið-Austurlöndum og að hernaðarleg skotmörk hefðu verið þurrkuð út í krúnudjásni Írans, á Kharg-eyju. Allir sex í áhöfn bandarískrar eldsneytisflutningaflugvélar sem brotlenti í Írak í gær eru látnir. Ástæður slyssins eru enn til rannsóknar en svo virðist sem tvær flugvélar af gerðinni KC-135 havi skollið saman við dælingu eldsneytis í háloftunum yfir Írak í gær. Önnur hafi þá hrapað til jarðar en flugmönnum hinnar tókst að lenda í Ísrael. Grindavík tryggði sér deildarmeistaratitilinn með mögnuðum 94-88 sigri á Stjörnunni í kvöld í 20. umferð Bónus deild karla. Stjarnan var lengst af yfir í leiknum en Grindvíkingar sýndu mikinn karakter og snéru leiknum sér í vil undir lok leiksins. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  4. Mar 13

    13.03.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda. Íslensk stjórnvöld taka nú þátt í máli gegn Ísrael fyrir Aþjóðadómstólnum vegna stríðsreksturs þess á Gasaströndinni. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt í málarekstri af þessu tagi. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað mikið síðan Ísrael og Bandaríkin hófu árásir á Íran 28. febrúar. Hormússund er lokað fyrir alla olíuflutninga og því er ekki hægt að anna eftirspurn á heimsmörkuðum. Verð á Brent hráolíutunnu er nú yfir 100 dollurum sem hefur ekki gerst síðan í ágúst 2022. Þó nokkur snjóflóð hafa fallið á norðan­verðum Vest­fjörðum í dag en ekki er talin hætta í byggð sem stendur. Flat­eyrar­vegi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna snjóflóða­hættu. Einnig er varað við aðstæðum á Norðvestur­landi og við Hellis­heiði. Valur vann 28-34 á útivelli gegn ÍBV og tryggði sér deildarmeistaratitilinn í lokaumferð Olís deildar karla. ÍR er fallið úr Olís-deild karla eftir tap gegn FH og er ljóst að liðið leikur í næstefstu deild á næsta tímabili. Meðalbiðtími eftir næsta lausa tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu er að jafnaði 27 dagar samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Aðeins tvær heilsugæslur standast viðmiði landlæknis. Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu aðstandenda ungrar konu sem lést þegar tveir lögreglumenn höfðu afskipti af henni þar sem hún var í geðrofi árið 2019. Héraðsdómur taldi lögreglumennina ekki hafa getað séð fyrir afleiðingar afskipta sinna af henni. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  5. Mar 12

    12.03.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Hæstiréttur hefur ómerkt sýknudóm þeirra Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Málinu var vísað aftur til Landsréttar til meðferðar. Verðbólguhorfur hafa versnað og því er viðbúið að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína á miðvikudag eftir viku, að mati Greiningardeildar Íslandsbanka. Stýrivextir voru lækkaðir úr 7,50 í 7,25 prósent í nóvember í fyrra en greiningardeildin spáir því að sú lækkun gangi til baka á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabankans. Stefán Vagn Stefánsson er nýr þingflokksformaður Framsóknar, en tillaga þess efnis var samþykkt á þingflokksfundi flokksins á Alþingi í dag. Hann tekur við af Ingibjörgu Isaksen. Á þingflokksfundinum var einnig samþykkt að Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Norðausturkjördæmis yrði varaþingflokksformaður. Kjartan Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem gekk til liðs við Miðflokkinn verður formaður nýs borgarstjórnarflokks óháðra sem tekur formlega til starfa á föstudaginn. Auk Kjartans eru í flokknum Marta Guðjónsdóttir, sem einnig var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Helgi Áss Grétarsson 1. varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem gekk til liðs við Miðflokkinn í janúar. Í nýrri skýrslu um Hafrannsóknastofnun er bent á slæma vinnustaðamenningu, óljósa forgangsröðun verkefna og reynsluleysi forstjóra af stjórnun. Lagt er til að lögbundið hlutverk stofnunarinnar verði einfaldað og skýrt með áherslu á vísindadrifna ráðgjöf og grunnrannsóknir. Ráðherra menningarmála vill hækka hámarksrefsingu fyrir höfundalagabrot úr tveggja ára fangelsi í sex. Lágur refsirammi endurspegli ekki alvarleika brotanna og það grafi undan kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu hér á landi. Hljómsveitin Pearl Jam segist standa með íslensku þjóðinni í baráttunni fyrir því að binda enda á laxeldi í opnum sjókvíum. Í færslu á Instagram hvetur hljómsveitin aðdáendur til að skrifa undir undirskriftalista þess efnis. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  6. Mar 10

    10.03.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka ætti upp aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) á ný. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að átökin við Íran verði yfirstaðin „innan tíðar“ en að Bandaríkin eigi enn eftir að hrósa fullnaðarsigri. Hann segir Bandaríkjaher hafa tekist að eyðileggja allt að níutíu prósent af hernaðarinnviðum í landinu undanfarna tíu daga. Vinna hófst við niðurrif altjónaðra húsa í Grindavík í morgun. Verktakinn segir tilfinningarnar blendnar. Hann ætli að fara áfram á hnefanum líkt og hann hafi gert frá rýmingu bæjarins. Þá opnar matvöruverslun í bænum á næstu dögum en engin slík hefur verið í Grindavík í rúm tvö ár. Verð á hráolíu lækkaði um næstum sex af hundraði á Bandaríkjamarkaði eftir óvænta yfirlýsingu Donalds Trump forseta um að stríðinu gegn Íran lyki senn. Á ellefta tímanum í kvöld var tunnan af West Texas Intermediate komin niður í rúma 89 bandaríkjadali á tunnuna eftir að hafa farið yfir 119 dali fyrr í dag. Þrír menn eru í haldi lögreglu grunaðir um kynferðisbrot gegn konu á þrítugsaldri á hóteli á Akureyri aðfaranótt sunnudags. Þátttaka kvenna í skimunum fyrir brjóstakrabbameini og leghálskrabbameini hefur aukist verulega síðustu ár og nálgast sett markmið um þátttöku. Skimanirnar fara fram á heilsugæslustöðvum um land allt. Nýliðinn febrúar var sá fimmti heitasti á heimsvísu frá því mælingar hófust og einkenndist af öfgum með úrhellisrigningum og flóðum í vesturhluta Evrópu. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min
  7. Mar 9

    09.03.2026 - Fréttir dagsins

    Í fréttum er þetta helst Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Íran. Hann tekur við af föður sínum, Ayatollah Ali Khamenei, sem lést í loftárásum Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna þann 28. febrúar. Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins í dag. Hún fékk 95 atkvæði af 101. Hlynur Már Ragnheiðarson sóttist einnig eftir formannskjöri. Talið er að sprengingin við bandaríska sendiráðið í Ósló í nótt hafi verið skipulögð aðgerð og eitt af því sem er til rannsóknar er hvort það tengist hryðjuverkum. Aðrir möguleikar eru einnig í stöðunni. Enginn er í haldi. Innviðaráðherra hefur áhyggjur af lækkun hlutabréfaverðs Icelandair. Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um tuttugu prósent frá áramótum. Hrottafengnu ofbeldi er lýst gegn maltneskum karlmanni sem var frelsissviptur árið 2024. Sex hafa verið ákærðir fyrir verknaðinn en eftir að hafa neytt hann til að millifæra átján milljónir króna þvinguðu þau hann til að fara úr landi. Allt of mörg tilvik eru um rangar rukkanir vegna kílómetragjaldsins sem tekið var upp um sl. áramót og segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, að Skatturinn hafi viðurkennt að tæknilegir gallar séu í kerfunum sem unnið er eftir við álagningu gjaldsins. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur í öryggisskyni skipað því starfsfólki sem ekki sinnir brýnustu starfsskyldum og fjölskyldum þess að yfirgefa sendiráð landsins í Sádi Arabíu. Íranir hafa ítrekað gert árásir á Sádi Arabíu í hefndarskyni fyrir atlögur herja Bandaríkjanna og Ísraels. Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.

    3 min

About

Fréttir dagsins er hlaðvarp sem gefur út helstu fréttir dagsins alla morgna.