Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu

Margrét Gunnarsdóttir

Ferðalög til Ítalíu og ferðatilboð þangað hafa aukist verulega á undanförnum árum. Hlaðvarpið ”Ítalía heillar” er tileinkað þér sem hefur nú þegar ferðast um landið eða hefur Ítalíu á óskalistanum. Ég heiti Magga — ég er menntaður tónmenntakennari og upplýsingafræðingur. Í hlaðvarpinu ætla ég að deila fróðleiksmolum fyrir ferðalanga um Ítalíu, Ítali, ítalska menningu, borgir og bæi, eyjar, héruð, fegurðina, sérviskuna og ótalmargt fleira en líka litlu augnablikunum sem sjaldnar eru dregin fram. Ítalía hefur verið hluti af lífi mínu í áratugi. Ég bjó þar fyrst sem skiptinemi, eignaðist fjölskyldu og vini fyrir lífstíð og leiðin hefur legið aftur og aftur til þessa fallega lands. Meðfram starfi mínu sem upplýsingafræðingur, varði ég mörgum sumarleyfum sem fararstjóri íslenskra ferðahópa á Ítalíu, þar sem nánast hver vegur, hvert stræti leiðir mann að einhverju ógleymanlegu. Heimildir fyrir efni þáttanna eru fengnar víða. Ég vitna í eigin reynslu, reynslusögur annarra, leiðbeiningar virtra ferðafrömuða og margt fleira. Njótið – ciao ciao.

  1. Oct 14

    12. Napólí II - Hjátrúin, tónlistin, fótboltinn og pizza

    Í öðrum þætti um Napólí kynnumst við litríkri menningu borgarinnar þar sem trú og hjátrú, tónlist, fótbolti og matur fléttast saman á einstakan hátt. Við kynnumst scaramanzia, napólískri hjátrú, rauða verndargripnum cornicello, Pulcinella og San Gennaro, verndardýrlingi borgarinnar. Við heyrum líka af þeirri óvenjulegu hefð að „ættleiða“ höfuðkúpur látinna og biðja þær um vernd. Síðan tekur tónlistin við. Napólí gaf heiminum meðal annars 'O sole mio og Funiculì, Funiculà, auk stórstjarna á borð við Enrico Caruso. Og auðvitað kemur Diego Maradona við sögu – maðurinn sem varð miklu meira en fótboltahetja í Napólí. Við skoðum sögu napólísku pizzunnar, bragðum á sfogliatella og babà og kynnumst fallegri hefð caffè sospeso – kaffi sem greitt er fyrir ókunnugan gest. Að lokum förum við undir götur borgarinnar, þar sem aldagömul göng urðu að loftvarnabyrgjum í síðari heimsstyrjöldinni, áður en við komum aftur upp í dagsljósið til Vesúvíusar og Campi Flegrei. Napólí er borg þar sem fortíðin er aldrei langt undan – og hið óvenjulega verður einhvern veginn hversdagslegt. ****** Scaramanzia - HjátrúCornicello - Corno - rautt horn, verndargripurMalocchio - hið illa augaTöfraþula með il corno: https://www.facebook.com/share/r/1A757W1hYv/Pulcinella - "L'arte di arrangiarsi" listin að redda sérMynd: https://en.wikipedia.org/wiki/Pulcinella#/media/File:Pulcinella_-_stampa_ottocento.jpghttps://www.giovannicarrieri.com/it/italia/campania/napoli/fotografia/pulcinella-a-napoliSan Gennaro - verndardýrlingur NapoliCimitero delle Fontanelleslóð: https://cimiterodellefontanelle.it/en/ Sono napoletano - ég er frá NapoliTeatro San Carlo vígt árið 1737: https://www.teatrosancarlo.it/en/Canzone napoletana - napólíska sönghefðinTónleikar - Napolitanata:https://www.napulitanata.com/en/location-2/O sole mio - samið 1898. Texti Giovanni Capurro, lag Eduardo di Capua.It's now or never - Elvis PresleyFesta di PiedigrottaFuniculi, funiculá - Texti e. Peppino Turco, lag: Luigi DenzaEnrico Caruso (f. 1873) einn frægasti óperusöngvari heimsPino Daniele - Napule é:https://youtu.be/LLM7AET8Zfo?si=WlBBAqFratIIUWjsDiego Armando MaradonaSSC Napoli1986-87 - Napoli verður Ítalíumeistari í fyrsta sinn.„Voi non sapete cosa vi siete persi.“ „Þið vitið ekki hverju þið hafið misst af.“Stadio Diego Armando MaradonaSophia Loren leikkonaMassimo Troisi leikari (Il Postino)Elena Ferrante og Lena og LilaPizzaPizza Marinara1889 Umberto I konungur og Margherita drottning heimsóttu NapoliPizza MargheritaUNESCO - 2017, L'arte del pizzaiuolo napoletano Pizza a portafoglio - VeskispizzaPizza frittaPasta alla Genovese Ragú napoletanoCala la pasta, veitingastaður, Via dei Tribunali 180Sfogliatella - sætabrauð Fratelli Attanasio -bakaríBabà - gerkakaCaffé sospeso - kaffi í biðPresepe - jólajatanVia San Gregorio Armeno - jólagatanTufo - móbergPozzari - Vatnsberar'O Munaciello - litli munkurinnGalleria Borbonica: https://www.galleriaborbonica.com/en/home/home/Napoli Sotterranea: https://sotterranea.napoli.it/en San Lorenzo Maggiore: https://www.laneapolissotterrata.it/Katakombur San Gennaro https://sangennaro-catacombs.naples-tourismtickets.com/it/VesuviusLacryma Christi - víntegund, tár KristsCampi Flegrei - Flegraísku vellirnirEyjarnar Procida, Ischia og Capri  Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

  2. Oct 7

    11. Napólí I – Meira en bara pizza og Vesúvíus

    Napólí er borg sem erfitt er að lýsa í fáum orðum. Hún er hávær, litrík, óreiðukennd, söguleg – og umfram allt full af lífi. Í þessum fyrsta þætti um Napólí förum við í ferðalag um meira en 2.500 ára sögu borgarinnar. Við byrjum hjá Grikkjum og sírenunni Parthenope, kynnumst Rómverjum, Normönnum, Spánverjum og Bourbon-konungum og komum við sögu hjá byltingarmanninum Masaniello og þjóðhetjunni Giuseppe Garibaldi. Við rifjum einnig upp hina dramatísku fjóra daga Napólí í síðari heimsstyrjöldinni, þegar borgarbúar risu upp gegn þýska hernámsliðinu, og lítum á dekkri hliðar borgarinnar, meðal annars Camorra. En saga Napólí segir aðeins hálfa söguna. Til að kynnast borginni þarf líka að kynnast fólkinu. Við skoðum Napólíbúa sem tala með höndunum, kalla á milli svala, ræða af ástríðu og mæta lífinu með sérstökum húmor. Fjölskyldan, gatan, kaffið og samtölin fléttast saman í borg þar sem lífið virðist stöðugt vera í gangi. Er hægt að skilja Napólí? Kannski ekki alveg. En það er einmitt hluti af töfrunum. ***** Sírenan Parthenope úr Ódysseifskviðu HómersGrikkir - eyjan IschiaNeapolis - Nýja borgin, Grikkir stofna á 6. - 5. old f.KristPalaepolis - gamla borginSpaccanapoli - "sú sem klýfur Napoli" - gata sem "sker" gömlu Napoli í tvennt.326 f. Krist - Rómverjar komaVirgil - höfundur EneasarkviðuGrikkir - Rómverjar - miðaldir - Spánverjar - konungar Búrbóna11. og 12. old Normannar taka völdin á S-Ítalíu1139 fer Napoli undir stjórn Normanna1282 blóðug uppreisn á Sikiley - Sikileyski aftansöngurinn "I Vespri siciliani"1503 ná Spánverjar yfirráðum1647 uppreisn í Napoli - Masaniello fiskimaður1734 ná Búrbónar völdumKonungshöllin í Caserta1737 Teatro di San Carlo opnað1861  Giuseppe Garibaldi og konungsríkið Ítalía19. og 20. old - milljónir manna yfirgefa S-Ítalíu1943 - Heimstyrjöldin síðari og Le quattro giornate di Napoli, "hinir fjórir dagar Napoli" Almenningur tók upp vopn gegn ÞjóðverjumCamorra mafían2006 bókin Gomorra eftir Roberto SavianoPizzo verndargjald"Sono Napoletano"Handahreyfingin "Ma che vuoi?" Hvað viltu eiginlega?Totó (f. 1898)- einn ástsælasti gamanleikari Ítalíu"Non hai mangiato niente" - Þú borðaðir ekki neittHauskúpa í fóstur? Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

  3. Sep 9

    10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!

    Í þessum þætti af Ítalía heillar er haldið “á teinana” og farið yfir allt það helsta sem gott er að vita áður en ferðast er með lest á Ítalíu. Lestir eru ein þægilegasta leiðin til að komast á milli stórborga eins og Rómar, Flórens, Bologna, Mílanó og Napólí, en ítalska lestarkerfið getur virst dálítið ruglingslegt í fyrstu. Fjallað er um helstu gerðir lesta, allt frá hraðskreiðum og þægilegum Frecciarossa-lestum til Intercity- og héraðslesta sem stoppa á fleiri stöðum og gefa ferðalanginum tækifæri til að sjá meira af hinni daglegu Ítalíu. Einnig er farið yfir hvernig best er að kaupa lestarmiða, hvenær borgar sig að bóka með fyrirvara og hver munurinn er á Trenitalia, Italo og miðasölusíðum á borð við Omio og Trainline. Sérstök áhersla er lögð á það sem gerist á lestarstöðinni: hvernig þú finnur rétta brautarpallinn, vagninn og sætið, hvernig brottfararskjáirnir virka og hvaða ítölsk orð er gott að þekkja. Einnig er útskýrt hvers vegna það skiptir máli að staðfesta miða í héraðslestir áður en farið er um borð. Farangur, matur, salerni, öryggi, tafir og lestarverkföll koma einnig við sögu, auk næturlesta og sögulegra ferðamannalesta. Markmiðið er að gera lestarferðalag um Ítalíu einfaldara, öruggara og skemmtilegra – svo þú getir notið ferðarinnar frá fyrstu stöð til þeirrar síðustu. Buon viaggio! ******** Agriturismo – bændagisting Lestarfyrirtæki:  Trenitalia (ríkisreknu lestirnar) – allar tegundir lesta www.trenitalia.com - Le Frecce – “Örvarnar” háhraðalestir frá Trenitalia - Frecciarossa – Háhraðalest frá Trenitalia Italo – einungis háhraðalestir  https://www.italotreno.com/en   Endursöluaðilar lestarmiða: Omio https://www.omio.com/  Trainline https://www.thetrainline.com/  ItaliaRail https://www.italiarail.com/   Mismunandi gerðir lesta - Háhraðalestir - Intercity  - Héraðslestir (regionale) - Staðbundnar lestir Gott að kunna: Prima classe – fyrsta farrými Seconda classe – annað farrými Treno / Treni – lest / lestir  Partenze – brottfarir Arrivi - komur Biglietti – miðar Destinazione – lokaáfangastaður Orario – tími/komutími/brottfarartími Ritardo – Seinkun Binario / Binari – Brautarpallur / Brautarpallar Informazioni – Upplýsingar Firenze – Flórens Venezia – Feneyjar Viaggiatreno - Hér er hægt að sjá væntanlega brautarpalla á undan upplýsingum sem birtast á skjá brautarstöðvanna. www.viaggiatreno.it  –  Sottopassaggio – undirgöng scioperi.mit.gov.it – Upplýsingasíða frá hinu opinbera um væntanleg verkföll Leit í Google: Slá inn sciopero treni og dagsetninguna. Dæmi: sciopero treni 18 marzo Intercity Notte: Næturlestir á vegum Trenitalia https://www.trenitalia.com/en/intercity-notte.html Treni turistici – Ferðamannalestir á vegum Trenitalia https://www.fstrenituristici.it/ Treni storici: Sögulegar lestir https://www.fondazionefs.it/en/itineraries.html Buon viaggio – Góða ferð Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

  4. Sep 2

    9. Á fjórum hjólum um Ítalíu – allt sem þú þarft að vita um bílaleigu

    Að leigja bíl á Ítalíu getur verið bæði spennandi og svolítið stressandi. Í stórborgum eins og Róm, Flórens, Mílanó og Napólí er oft mun skynsamlegra að treysta á lestir og almenningssamgöngur. En þegar ferðinni er heitið út í sveitirnar, til lítilla þorpa, vínekranna í Piemonte, fjallanna, strandbæjanna eða svæða þar sem lestir og rútur eru af skornum skammti, getur bílaleigubíllinn orðið lykillinn að allt annarri Ítalíu. Í þessum þætti af Ítalía heillar förum við yfir það helsta sem gott er að vita áður en sest er undir stýri. Við skoðum hvaða skjöl þarf að hafa meðferðis, kreditkort og tryggingar, hvernig best er að velja bíl og hvers vegna lítill bíll getur reynst gulls ígildi á þröngum götum ítalskra bæja. Síðan tekur ítalska umferðarmenningin við. Við ræðum hraðbrautirnar, vegatolla, hraðamyndavélar, hringtorg og ekki síst hin alræmdu ZTL-svæði í sögulegum miðbæjum, þar sem röng beygja getur skilað sér í sekt löngu eftir að heim er komið. Bílastæðin fá líka sitt pláss – enda eru þau nánast sérstakt listform á Ítalíu. Við komum við á Autogrill, fáum okkur espresso og skoðum sögu þessarar ítölsku hraðbrautastofnunar. Einnig eru gefin ráð um leiðsöguforrit, eldsneyti, afhendingu og skil á bílaleigubílnum og hvernig hægt er að forðast óvænt gjöld. Því að aka um Ítalíu snýst ekki eingöngu um að komast frá A til B. Frelsið felst líka í að geta beygt út af leiðinni, stoppað í óvæntu þorpi eða fundið kaffihús sem aldrei stóð til að heimsækja. Og stundum verður röng beygja einmitt að bestu minningunni úr ferðinni. ****** Frecce – hraðlestir frá Trenitalia Codice stradale – Ítalskar umferðareglur Hámarkshraði á Ítalíu Reglurnar eru einfaldar: 130 km/klst. á autostrade (hraðbrautum).110 km/klst. á tvöföldum vegum (superstrade).90 km/klst. á sveitavegum.50 km/klst. í bæjum.Autovelox/Tutor – Hraðamyndavélar Controllo Elettronico della Velocità – Rafrænt hraðaeftirlit ZTL - Zona a Traffico Limitato – Takmörkuð umferð (sérstakt leyfi) Benzina - bensín Gasolio – díesel CDW - collision damage waiver – Kaskótrygging rentalcover.com Telepass – rafræn greiðsla vegatolla Waze - app: Kemur sér vel fyrir hraðamyndavélar og umferðarupplýsingar í rauntíma. Google Maps - app Biglietto – miði Autogrill – Áningastaður við hraðbraut Disco orario – bílastæðisklukka Allora – Jæja Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

  5. Aug 26

    8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?

    Í þessum þriðja og síðasta þætti um Róm, beinum við sjónum að borginni sjálfri – frægustu stöðunum, torgunum, götunum, mörkuðunum og matarmenningunni. Við heimsækjum meðal annars Colosseum, Forum Romanum, Pantheon, Vatíkanið, Péturskirkjuna og Trevi-gosbrunninn og fáum hagnýt ráð um miðakaup, biðraðir og hvernig best er að skipuleggja heimsóknir á vinsælustu staðina.  En Róm er miklu meira en frægustu kennileitin. Við röltum um Piazza Navona, Campo de’ Fiori og Piazza di Spagna, skoðum fallegar götur, almenningsgarða og verslunarhverfi og leitum að stöðum þar sem hægt er að komast aðeins frá ferðamannastraumnum. Við lítum líka inn á markaði þar sem Rómverjar sjálfir versla og fáum hugmyndir að skemmtilegum kaupum.  Matarmenningin fær að sjálfsögðu sinn sess: hvenær Rómverjar borða, hvernig þekkja má gott gelato og hvaða rómversku rétti vert er að prófa, svo sem carbonara, cacio e pepe og amatriciana.  Að lokum kynnumst við nokkrum óvenjulegri hliðum borgarinnar – sjónhverfingum í kirkju, götulist og jafnvel kattagriðastað. Og kannski er besta ráðið einfaldast: að leggja kortið frá sér, ganga inn í hliðargöturnar og leyfa Róm að koma sér á óvart.  **** Colosseo (Colosseum) www.colosseo.it Foro Romano (Forum Romanum) Miðar í Colosseo gilda í Foro Romano og Palatínhæð Altare della Patria (Vittoriano) https://vive.cultura.gov.it/it/altare-della-patria Vatíkanið https://www.museivaticanitickets.com/ Péturskirkjan https://booking.basilicasanpietro.va/en/idea/41280461/basilica Sixtínska kapellan https://www.museivaticanitickets.com/ Pantheon hofið https://direzionemuseiroma.cultura.gov.it/en/pantheon/ eða www.pantheonrome.it  Circus Maximus (ókeypis) https://www.turismoroma.it/en/places/circus-maximus Kirkjur San Giovanni in Laterano https://www.basilicasangiovanni.va/en.html Santa Maria Maggiore – Maríukirkjan https://www.basilicasantamariamaggiore.va/it.html San Paolo fuori le mura – Pálskirkjan utan múranna https://basilicasanpaolo.org/ Santa Maria del Popolo https://santamariadelpopoloroma.it/ Sant’Ignazio di Loyola (kirkjan sem blekkir augað) https://chiesasantignazio.it/ Katakomburnar https://www.rome-museum.com/catacombs-of-rome.php Caracallaböðin https://www.turismoroma.it/en/places/baths-caracalla Castel St. Angelo https://castelsantangelorome.com/ Gyðingahverfið https://www.turismoroma.it/en/places/old-jewish-quarter Villa Borghese https://www.turismoroma.it/en/places/villa-borghese  Trevi brunnurinn https://www.turismoroma.it/en/places/trevi-fountain Giardino degli Aranci (Appelsínugarðurinn) https://www.turismoroma.it/it/luoghi/parco-savello-o-giardino-degli-aranci Skemmtileg torg Piazza Navona https://www.turismoroma.it/en/places/navona-squarea del Popolo Piazza del popolo https://www.turismoroma.it/en/places/piazza-del-popolo Campo de‘ fiori https://www.turismoroma.it/en/places/campo-de%E2%80%99-fiori Piazza di Spagna https://www.turismoroma.it/it/luoghi/piazza-di-spagna Piazza della Madonna dei Monti https://www.turismoroma.it/en/places/piazza-madonna-dei-monti Piazza San Lorenzo í Lucina https://www.turismoroma.it/en/node/1620  Skemmtilegar götur í Róm Via dei Condotti Via della Conciliazione Via del Corso Via dei Coronari Via Giulia Via Urbana (Monti) Via del Boschetto (Monti)   Áhugaverðir markaðir https://www.marketsofrome.com/   Mercato Trionfale (innimarkaður) https://www.mercatotrionfale.store/en Campo de‘ Fiori – elsti markaður Rómar https://www.marketsofrome.com/home/campo-de-fiori-market Porta Portese – aðal flóamarkaðurinn https://www.marketsofrome.com/home/porta-portese-market Via Ostiense - Notuð föt og antíkmunir https://www.marketsofrome.com/food-market/94-ostiense-market Via Sannio - Föt og fylgihlutir https://www.marketsofrome.com/piazza-mazzini-xmas-market/sannio   Matur til að smakka Bucatini all’Amatriciana  Cacio e Pepe  Pizza Bianca  Fiori di zucca  Pasta alla carbonara  Pizza alla Romana  Gelato – ís Dæmi um vín: Frascati hvítvín og Cesanese del Piglio rauðvín Sikileyska bakaríið Antica Focacceria San Francesco, Piazza della Toretta 38/40 (skammt frá Piazza di San Lorenzo í Lucina). Götulist í Róm https://streetartmap.com/rome/  Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

  6. Aug 19

    7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð

    Í þessum öðrum þætti um Róm færðu hagnýt ráð sem geta gert Rómarferðina einfaldari, öruggari og ánægjulegri. Þú færð að heyra um leiðir til að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í borgina, meðal annars með Leonardo Express, FL1-lestinni, rútu eða leigubíl, og hvaða kostur hentar eftir staðsetningu gististaðar og fjölda ferðafélaga. Þú þarft sérstaklega að passa þig á reglum um lestarmiða sem geta leitt til sekta ef ekki er rétt staðið að málum.  Við skoðum ólík hverfi Rómar og kosti þeirra, meðal annars Testaccio, Monti, Trastevere og Prati. Mikilvægt er að þú veljir gistingu með tilliti til samgangna, til dæmis nálægt Metro-línum A eða B.  Við ræðum um vasaþjófa, algengar aðferðir þeirra og hvernig þú getur varið símann þinn, veski og töskur, sérstaklega í mannþröng, neðanjarðarlestum, strætisvögnum og við vinsæla ferðamannastaði eins og Trevi-gosbrunninn og Vatíkanið.  Þú færð að heyra um almenningssamgöngur, Metro, strætisvagna og leigubíla, auk annarra leiða til að kynnast borginni. Þar koma við sögu Hop-on Hop-off vagnar, gönguferðir og golfbílaferðir, sem geta verið skemmtileg og þægileg leið um þröngar götur miðborgarinnar.  Að lokum færðu einfalt en mikilvægt Rómarráð: taktu með þér góða vatnsflösku. Um miðborgina eru hundruð nasoni, drykkjarvatnsbrunna þar sem hægt er að fylla á hana ókeypis.  ****** Flugvellir: Leonardo da Vinci (Fiumicino) og Ciampino  Frá flugvelli og inn í borg Leonardo Express hraðlestin fer til Roma Termini, aðallestarstöð Rómar https://www.trenitalia.com/en/connections/leonardo-express.html  FL1  lestin fer til Roma Tiburtina https://www.trenitalia.com/ SITbus https://www.sitbusshuttle.com/ Terravision bus https://www.terravision.eu/airport_transfer/bus-fiumicino-airport-rome/ KiBag Roma Termini – Farangursgeymsla Roma Termini  https://www.kibag.it/en/deposito-bagagli-roma/deposito-bagagli-roma-termini/ Radical Storage - Farangursgeymsla https://radicalstorage.com/ Nokkur hverfi (rioni) í Róm: Testaccio Monti Trastevere Prati Esquilino ZTL - Zona a traffico limitato – Takmörkuð umferð – sérstök leyfi. Svæðið heitir Zona 30  Í Róm. Leigubílaöpp: FreeNow  itTaxi  Uber App fyrir miða í  almenningssamgöngur MooneyGo Metro í Róm – neðanjarðarlestir Lína A og B Lína C Golfbílaferðir  - margir möguleikar Dæmi: https://mybesttour.com/ Rómarrölt – Ingólfur Níels Árnason https://romarrolt.com/  Hljóðleiðsögn um Róm frá ferðafrömuðinum Rick Steves www.Ricksteves.com Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur Vefsíða: www.italiaheillar.is

About

Ferðalög til Ítalíu og ferðatilboð þangað hafa aukist verulega á undanförnum árum. Hlaðvarpið ”Ítalía heillar” er tileinkað þér sem hefur nú þegar ferðast um landið eða hefur Ítalíu á óskalistanum. Ég heiti Magga — ég er menntaður tónmenntakennari og upplýsingafræðingur. Í hlaðvarpinu ætla ég að deila fróðleiksmolum fyrir ferðalanga um Ítalíu, Ítali, ítalska menningu, borgir og bæi, eyjar, héruð, fegurðina, sérviskuna og ótalmargt fleira en líka litlu augnablikunum sem sjaldnar eru dregin fram. Ítalía hefur verið hluti af lífi mínu í áratugi. Ég bjó þar fyrst sem skiptinemi, eignaðist fjölskyldu og vini fyrir lífstíð og leiðin hefur legið aftur og aftur til þessa fallega lands. Meðfram starfi mínu sem upplýsingafræðingur, varði ég mörgum sumarleyfum sem fararstjóri íslenskra ferðahópa á Ítalíu, þar sem nánast hver vegur, hvert stræti leiðir mann að einhverju ógleymanlegu. Heimildir fyrir efni þáttanna eru fengnar víða. Ég vitna í eigin reynslu, reynslusögur annarra, leiðbeiningar virtra ferðafrömuða og margt fleira. Njótið – ciao ciao.