
Kaflaskil
Nemendur í 10. bekk eru þessar vikurnar að sækja um framhaldsskólavist fyrir næsta vetur og möguleikarnir eru margir á þessum kaflaskilum í skólagöngu þeirra. Um leið er ekki sjálfgefið að fá inngöngu í skólann sem er efstur á óskalistanum – nema að nemandinn sé með annaðhvort A eða B plús í öllu. Og er A í einum skóla það sama og A í öðrum? Ef nemandi er með fötlun eða erlendan bakgrunn er síðan alls ekki víst að skólinn sem viðkomandi hugnast best geti tekið á móti honum og framhaldsskólarnir eru misvinsælir. Því skipta lokaeinkunnir úr grunnskóla sköpum ef sótt er um vinsælustu framhaldsskólana. Í þáttaröðinni Kaflaskil er rætt við fólk sem þekkir vel til í völundarhúsi menntakerfisins á Íslandi. Þáttaröðin Kaflaskil er framleidd af Rás 1. Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
에피소드
- 6개의 에피소드
소개
정보
- 제작진RÚV Hlaðvörp
- 방송 연도2025년
- 에피소드6
- 등급전체 연령 사용가
- 저작권© RÚV Hlaðvörp
- 웹사이트 보기