Ein Pæling

Thorarinn Hjartarson

Hlaðvarp

  1. #542 Þórður Pálsson - Mikilvægt að koma skólakerfinu í lag til að forða drengjum frá Manosphere

    VOR 1 TAG

    #542 Þórður Pálsson - Mikilvægt að koma skólakerfinu í lag til að forða drengjum frá Manosphere

    Þórarinn ræðir við Þórð Pálsson enn á ný. Í upphafi þáttar er rætt um evrópuvegferð ríkisstjórnarinnar og það sett í samhengi við það hvort að Ísland eigi að taka upp aðra mynt. Þórður telur evruna vera sístu ástæðu þess að Ísland ætti að ganga í ESB og að betur færi á því að sleppa því að taka upp evru ef Ísland á annað borð færi inn í ESB. Hann setur þetta í samhengi við verðbólgu og lífskjör í álfunni í samanburði við á Íslandi og að teikn séu á lofti á ýmsum sviðum efnahagsins en ekki síður stjórnmálanna sem ættu að reynast Íslandi til varnaðar. Að þeim kafla loknum er rætt um ríkisstjórnina, almannatryggingafrumvarpið, Seðlabankann, húsnæðisverð, verðskyn almennings, vöruhækkanir, skólakerfið, Manosphere, menningu og margt fleira. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me Happy Hydrate kóði: EINPAELING25

    1 Std. 21 Min.
  2. #541 Hilmar Veigar Pétursson - Hugverkaiðnaðurinn á Íslandi er takmarkalaus

    VOR 3 TAGEN

    #541 Hilmar Veigar Pétursson - Hugverkaiðnaðurinn á Íslandi er takmarkalaus

    Þórarinn ræðir við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra CCP.  Hilmar hefur áhyggjur af nýsköpunarumhverfi á Íslandi en telur samt sem áður að með einföldum ákvörðunum sé hægt að margfalda afköst hans. Hann segir að með núverandi ríkisstjórn hafi áherslurnar beyst sem hafi haft áhrif á menningu innan iðnaðarins. Hann segir að með lítilli breytingu á fyrirkomulagi lífeyrissjóða væri hægt að skapa nýja lífæð fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem að með réttum hvötum sé í raun takmarkalaus.  Menningin innan geirans hafi dalað og að það hafi meiri áhrif en margan grunar og að "stemningin" innan geirans hafi mikil áhrif á það hvort að hann blómstri eður ei. Einnig er rætt um Eve-online en það er að sjálfsögðu langstærsta afurð CCP. Rætt er um leikinn í samhengi við hagkerfi heimsins og hvaða skörun er á milli hagkerfisins í leiknum og hagkerfisins á Íslandi.  Að lokum er rætt um orkumál, bæði hérlendis en einnig í Evrópu. Hilmar segir að orka sé mikilvæg stoð í nýjum heimi gervigreindar og að hægt væri að nota innviði álveranna í gagnaver en það gæti einnig verið til hagsbóta í öðrum kimum heimsins eins og í Afríku. - Hvernig geta orkumál valdið samfélagslegu harakiri? - Afhverju er lífeyrissjóðakerfið að mestu leyti að fjármagna nýtækniiðnað í Bandaríkjunum? - Hver eru sameiginleg einkenni hagkerfa Eve-online og Íslands? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me Happy Hydrate kóði: EINPAELING25

    1 Std. 29 Min.
  3. #538 Elliði Vignisson - Er íslensk stjórnsýsla eins og Milgram tilraunin?

    20. MÄRZ

    #538 Elliði Vignisson - Er íslensk stjórnsýsla eins og Milgram tilraunin?

    Þórarinn ræðir við Elliða Vignisson, bæjarstjórann í Ölfusi. Í upphafi þáttar er rætt um hugarfar og stjórnsýslu. Elliði hefur náð miklum árangri í sínu sveitarfélagi en hann segir að hugarfar íbúa og stefna hafi ráðið miklu þar um. Rætt er um köllun, trúleysi, börn og samfélagið og þeirri spurningu varpað fram hvort sannleikur leynist í sögum Fjodor Dostojevskíj. Þar á eftir er rætt um stjórnsýsluna í heild, sveitarstjórnarkosningar, hvort að hægri blokk muni taka við af borginni eða hvort að Sjálfstæðisflokkurinn verði nýja varadekk Samfylkingarinnar. Rætt er hvort að Kristrún Frostadóttir sé besti stjórnmálamaður á landinu, lífsgæði, ESB, lóðamál, trú ungs fólks og margt fleira. - Mun Sjálfstæðisflokkurinn verða nýja varadekk Samfylkingarinnar? - Afhverju er Kristrún besti stjórnmálamaður á landinu? - Afhverju er stjórnsýslan flókin? Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur: 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me Happy Hydrate kóði: EINPAELING25

    1 Std. 33 Min.

Info

Hlaðvarp

Das gefällt dir vielleicht auch