Svörtu tungurnar

Hljóðkirkjan

Spilahópurinn Svörtu tungurnar talar um spunaspil. Þátturinn er tekinn upp í hvert skipti áður en við setjumst við spil í Svörtuloftum.

  1. 26 May

    #0112 Tveir úr Tungunum: Töfraveröld ímyndunaraflsins

    Þátturinn er í boði Malbygg   Ókei ókei ókei. Eftir harðorð bréf og andstyggilegar athugasemdir höfum við ákveðið að breyta titli þessa innslags yfir í "Tveir úr Tungunum". Þar setjast tvær tungur niður og ræða málin í þaula, almennilegt nörda trúnó. Að þessu sinni eru það Snæbjörn og Hjörtur sem eru mættir. Til stendur að spila hið æsispennandi spunaspil Draw Steel frá MCDM Productions. Bibbi fer yfir helstu þætti spilsins og þeir pæla í hvernig gera megi langdregna bardaga skemmtilegri, sem er nauðsynlegt þegar þú ert með spilahóp fullan af snarofvirkum athyglissjúkum spunadrottningum með athyglisbrest. Þeir fara yfir óheft ímyndunarafl barnsheilans og hvað við gerum til að reyna að endurheimta þá tilfinningu. Hvenær hætti maður að vera heillaður yfir smáatriðum á einhverju korti? Hvers vegna flækjum við hlutina með sögufléttum og flókinni heimssköpun þegar hægt er að spinna hvað sem er á staðnum og það er alveg jafn gaman? Hvernig nær maður að plata sig í að halda að eitthvað sem gerist á spilakvöldi sé gríðarlega mikilvægt þegar allir vita að þetta er auðvitað alltsaman tilbúningur frá rótum? Og hvað er í þessu andskotans bréfi sem Bjössi lét okkur fá í spili um daginn? Megum við opna það? Eigum við að opna það? Eða mun það bara þýða að spilið er búið og allir verða sendir heim...    Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar   Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/    – Mættir eru: Hjörtur og Snæbjörn    – Tónlist: Flight  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

    59 min

Ratings & Reviews

5
out of 5
4 Ratings

About

Spilahópurinn Svörtu tungurnar talar um spunaspil. Þátturinn er tekinn upp í hvert skipti áður en við setjumst við spil í Svörtuloftum.

You Might Also Like