Spursmál

Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefáns­sonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

  1. 1 day ago

    #126. - Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands?

    Jón Helgi Egilsson er doktor í peningamálahagfræði. Hann segir að upptaka evru gæti leitt hundruða milljarða króna tjón yfir íslenskt efnahagslíf ef atvinnuleysi myndi aukast vegna gjaldmiðilsins. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítarlegu viðtali við Jón Helga í Spursmálum þennan föstudaginn. Bendir hann á að sú fastgengisstefna sem óhjákvæmilega myndi fylgja upptöku evru gæti leitt til aukins atvinnuleysis í kjölfar efnahagsáfalla.Jón Helgi hefur ritað tvær greinar í Morgunblaðið að undanförnu þar sem hann ræðir gjaldmiðlamál. Þar hefur hann meðal annars gagnrýnt stjórnvöld fyrir að rangtúlka niðurstöður skýrslu sem fjármála- og efnahagsráðherra lét gera á kostum þess að taka upp evru. Bendir hann á að í skýrslunni hafi auk þess ekkert mat verið lagt á það hvaða áhrif upptöku gætu haft á atvinnustig í landinu. Þá mætir einnig í Spursmál Jón Bjarnason sem var ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála á árunum 2009-2011 meðan Ísland stóð í aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið. Hann segir að Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel og þáverandi aðalsamningamaður Íslands í umsóknarferlinu við ESB á sínum tíma fari með rangt mál þegar hann lýsi ferlinu. Vissulega hafi verið hafin aðlögun að reglum ESB í ferlinu. Skyggnst er að tjaldabaki í samtalinu við Jón og lýsir hann meðal annars ótrúlegum samskiptum sínum við Steingrím J. Sigfússon, þáverandi formann Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Jóhönnu Sigurðardóttur, formann Samfylkingarinnar. Í þættinum er einnig rætt við þá Birgi Olgeirsson, fréttamann á Sýn og Bjarna Helgason, fréttastjóra íþrótta á Morgunblaðinu og mbl.is. Þeir fara yfir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem hófst með látum í gærkvöldi, afrekið sem Gunnlaugur Árni Sveinsson vann þegar hann vann sér inn þátttökurétt á US Open í golfi. En þeir láta ekki þar við sitja. Þeir munu skyggnast yfir fleiri fréttir sem hátt bar í vikunni sem leið.

    1hr 47min

Ratings & Reviews

4.4
out of 5
32 Ratings

About

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefáns­sonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

You Might Also Like