Skattaspjallið

Samtök skattgreiðenda

Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.

  1. #25 - Er ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti?

    18 MAR

    #25 - Er ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti?

    Samtök skattgreiðenda hafa sent Fjársýslunni og Fjármálaráðuneytinu erindi þar sem samtökin bjóðast til þess að taka að sér að birta öll opinber gögn um allar greiðslur hins opinbera, skattgreiðendum að kostnaðarlausu. Þetta gerist um leið og annað mælaborð Samtaka skattgreiðenda hefur verið birt, en að þessu sinni er um að ræða betrumbætt viðmót á opna reikninga ríkisins (opnirreikningar.is). Komið hefur í ljós að þrátt fyrir fögur fyrirheit er hinu opinbera ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti – alltaf þarf að fela eitthvað fyrir skattgreiðendum. Í Skattaspjalli við þá Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason, sérfræðinga Samtaka skattgreiðenda, er farið yfir þessa sögu. Samtök skattgreiðenda fá mikinn fjölda ábendinga um hvernig megi fara betur með opinbert fé og einnig berast upplýsingar um umdeilanlega gjörninga. Þannig var upplýst að ein og sama manneskjan hefur fengið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála þrjú ár í röð um leið og viðkomandi hafi tilkynnt um framboð sitt í komandi borgarstjórnarkosningum. Það undarlega er að þessi verkefni lúta að því að auka kosningaþátttöku innflytjenda sem setur frambjóðandann í óheppilega stöðu. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠upplysingar@skattgreidendur.is

    20 min
  2. #23 - Hafa Íslendingar efni á því að vera á vinnumarkaði?

    18 FEB

    #23 - Hafa Íslendingar efni á því að vera á vinnumarkaði?

    Samspil almannatrygginga, lífeyrissjóða og annarra opinberra stuðningskerfa er flókið og verður í raun stöðugt flóknara. Yfirsýn er því lítil og um margt skortir heildstæða gagnasöfnun sem varð til þess að sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda, þeir Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason hafa tekið saman mikið yfirlit um það hvort að Íslendingar hafi yfirhöfuð efni á að vera á vinnumarkaði? Niðurstaða þeirra er að það skorti fullkomlega á yfirsýn og að endurskoða þurfi bótakerfin frá grunni, án aðkomu stofnana og sérfræðingastétta sem staðið hafa fyrir hönnun núverandi kerfis. Þá kemur í ljós að kjör öryrkja eru mjög ólík eftir kyni og fjölskyldugerð. Öll umræða um kjör öryrkja sem ekki tekur tillit til fjölskyldubóta missir því marks.Sláandi niðurstöður úr kerfinu sýna að til að ná sömu ráðstöfunartekjum eftir húsnæðiskostnað og einstæð þriggja barna móðir á örorku þarf þriggja barna einstæð móðir á vinnumarkaði að hafa um 1,4 milljónir á mánuði í heildartekjur. Gríðarlegur fjárhagslegur hvati er því fyrir foreldra barna að komast á örorku en þó sérstaklega fyrir einstæðar mæður. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠upplysingar@skattgreidendur.is

    31 min
  3. #21 - Hættumerki í velferðarkerfinu

    21 JAN

    #21 - Hættumerki í velferðarkerfinu

    Miklar breytingar hafa orðið á velferðarkerfinu á undanförnum áratug en nú er svo komið að fjórða hver kona á vinnualdri þiggur örorkubætur. Róbert Bragason, sérfræðingur hjá Samtökum skattgreiðenda, kemur í Skattaspjallið til að rýna í tölur úr velferðarkerfinu og við ræðum hvernig breytingar á samfélaginu birtast í gegnum útgjöld þar. Nýjar upplýsingar sýna að hlutfall Íslendinga af báðum kynjum á vinnualdri sem fær endurhæfingar- eða örorkulífeyri hækkar úr 13% árið 2012 í 18% árið 2025. Þar munar um mest að hlutfall kvenna á vinnualdri, sem fær endurhæfingar- eða örorkulífeyri, fer úr 17% í 23% á sama tímabili og hlutfall karla úr 10% í 13%.Þá hefur fjöldi einstaklinga með erlendan bakgrunn sem fá endurhæfingar- eða örorkulífeyri sexfaldast frá árinu 2012 en sé litið til kvenna eingöngu hefur fjöldinn sextánfaldast á sama tíma. Þessar tölur vekja athygli en ekki síður sú staðreynd að framkvæmdavaldið veitir ekki upplýsingar um barnalífeyrisgreiðslur í nýlegu svari til þingmanns. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠upplysingar@skattgreidendur.is

    24 min

Ratings & Reviews

5
out of 5
2 Ratings

About

Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.

You Might Also Like