Ein Pæling

Thorarinn Hjartarson

Hlaðvarp

  1. #528 Jón Magnús Kristjánsson - Bráðamóttakan, DRG-kerfið og framleiðni

    3 DAYS AGO

    #528 Jón Magnús Kristjánsson - Bráðamóttakan, DRG-kerfið og framleiðni

    Þórarinn ræðir við Jón Magnús Kristinsson, starfandi aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, en hann hefur einnig mikla reynslu af heilbrigðiskerfinu og starfaði sem yfirlæknir bráðamóttökunnar áður en hann hóf störf í ráðuneytinu. Rætt er um stöðu Landspítalans í samhengi við einkarekstur og opinberan rekstur. Fjallað er um hugmyndafræði, greiðsluþátttöku, nýtingu, hagræðingu, framleiðni og skort. Jón Magnús segir mikilvægt að huga að samfélagssáttmálanum þegar rætt er um heilbrigðiskerfið. Hann telur að almenn sátt liggi á bakvið þá ákvörðun að heilbrigðisþjónusta sé fjármögnuð í gegnum sameiginlega sjóði og ekki eigi að vera hægt að borga sig fram fyrir röðina. Einnig er. rætt um DRG-kerfið, kjarasamninga hjúkrunarfræðinga og lækna, hvata lækna til þess að starfa á Íslandi og fleira. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Palssonfasteignasala.is Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur (kynningartilboð): 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me

    1h 8m
  2. #527 Kristrún Frostadóttir - Við stöndum við planið

    17 FEB

    #527 Kristrún Frostadóttir - Við stöndum við planið

    Þórarinn ræðir við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar. Rætt er um umdeilt mál sem nú er rætt á þinginu um tengingu almannatrygginga við vísitölu neysluverðs, vinnusiðferði ungs fólks, öryrkja, kjarasamninga, verðbólgu, vextina, sleggjuna, nýju stjórnarskránna og aðildaviðræður við Evrópusambandið. Kristrún segir að plani haldi þrátt fyrir verðbólgumælingar. Hún segir gagnrýni á frumvarp ríkisstjórnarinnar um almannatryggingar eiga rétt á sér en að hún sé byggð á röngum forsendum og misskilningi á innihaldi frumvarpsins. Hún hefur ekki áhyggjur af því að frumvarpið muni hafa áhrif á vinnusiðferði en segist samt hafa áhyggjur af ákveðnum þáttum í þeim efnum. Hún segist vilja ganga í Evrópusambandið ef að þóknanlegur samningur liggi á borðinu. Hún segir að breytt staða í heimsmálunum hafi hreyft við henni og að mikilvægt sé að eiga umræðu um aðildarviðræður þegar að þjóðin veit um hvað verði kosið. Í lok þáttarins er rætt um hvort að Pétur Marteinsson hafi verið síðasti hnykkurinn í yfirtöku nýju Samfylkingarinnar á flokknum. - Afhverju mætir Kristrún ekki til Stefáns Einars? - Var Pétur Marteinsson síðasti naglinn í líkkistu gömlu Samfylkingarinnar? - Mun vísitölutenging bóta hafa áhrif á vinnusiðferði á Íslandi? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Drifa.is Palssonfasteignasala.is Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur (kynningartilboð): 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me

    1h 14m
  3. #526 Sólveig Anna og Villi Birgis - Við viljum ekki "gated community" fyrir Kardashian pakk

    15 FEB

    #526 Sólveig Anna og Villi Birgis - Við viljum ekki "gated community" fyrir Kardashian pakk

    Þórarinn ræðir við Sólveigu Önnu og Villa Birgis um stöðu íslensk verkafólks. Í upphafi þáttar er rætt um leikskólamál og mótmæli leikskólastjóra. Sólveig segir spikfeita millistétt vera þeir einu sem að tali gegn því að fyrirkomulaginu sé breytt og að ef nýtt kerfi yrði tekið upp í Reykjavík myndi fólk aðlaga sig að því. Því næst er rætt um jöfnuð og verkafólk. Villi og Sólveig telja bæði að mikilvægt sé að auka tekjur hinna lægst settu og að kjarasamningar séu ólíklega að fara að halda. Kæmi til þess að endurskoða kjarasamninga muni þau krefjast krónutöluhækkana þar sem hinir lægst settu ættu að fá betri kjör sem aðrir ættu ekki að þurfa. - Er stjórnvöldum sama um íslenskt verkafólk? - Þarf menntaelítan og spikfeita millistéttin hærri laun? - Lifum við á tímum víggirtra samfélaga í Kardashian stíl? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270    Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  Fiskhúsið Drifa.is Palssonfasteignasala.is Heitirpottar.is Hrafnadalur.is Harðfiskur (kynningartilboð): 500g - 7.500 ISK 1 kg - 14.000/kg - Heimsent 2 Kg - 13.000/kg - Heimsent 4 kg - 12.000/kg - Heimsent Pantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me

    1h 29m

About

Hlaðvarp

You Might Also Like