Bylgjan

Bylgjan

Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28.ágúst árið 1986.

  1. 2D AGO

    Sprengisandur 01.02.2026

    Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Stjórnmál Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og borgarstjóri Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlaut á dögunum Þakkarviðurkenningu FKA 2026 fyrir ævilangt og áhrifamikið framlag til stöðu kvenna, forystu og samfélagslegrar framþróunar. Hún ræðir þá viðurkenningu og lítur yfir farin veg auk þess að ræða nútímann og þróun í stjórnmálum.  Efnahagsmál Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra Nýjar verðbólgutölur vekja ugg hjá landsmönnum. Fjármálaráðherrann er í eldlínunni, viðurkennir að baráttan við verðhækkanir gangi ekki nógu vel, hagkerfið er að stöðvast og atvinnuleysi að aukast. Hvað er til ráða? Fiskeldi í sjó Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS Jóhann Helgi Stefánsson framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga Eitt umdeildasta mál nútímans varðar eldi á frjóum laxi í fjörðum landsins og áhættu á erfðablöndun við villta laxastofna í íslenskum ám. Þar mætast stálin stinn þegar kemur að vernd eða nýtingu.  Fjölmiðlar, falsfréttir og upplýsingaóreiða Jón Gunnar Ólafsson lektor við Háskóla Íslands.  Jón hefur langa reynslu af rannsóknum á áhrifum falsfrétta og upplýsingaóreiðu í opinberri umræðu - hvaða áhrif hafa stafrænar breytingar  haft á umhverfi stjórnmála, fjömiðlunar og samræðu og þar með lýðræðisins á síðustu árum?

    1h 33m

About

Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28.ágúst árið 1986.

You Might Also Like