Alltaf til hægri - Óli Björn

olibjorn

Stjórnmál, listir og menning, umhverfismál, efnahagsmál, viðskipti og hugmyndafræði. Óli Björn Kárason er alltaf til hægri.

  1. 1d ago

    Thomas Sowell – Frá fátækt til frama - 1. þáttur

    Hvernig verður fátækur drengur, sem hættir í framhaldsskóla og þarf ungur að sjá fyrir sér sjálfur, einn áhrifamesti hugsuður bandarískrar frjálshyggju? Thomas Sowell fæddist árið 1930 í Norður-Karólínu, inn í samfélag þar sem fátækt og kynþáttaaðskilnaður settu blökkumönnum þröngar skorður. Hann missti foreldra sína ungur, ólst upp hjá ættingjum og fluttist síðar til Harlem í New York. Þar kynntist hann fátækt, atvinnuleysi og erfiðri lífsbaráttu. Hann hætti í framhaldsskóla og vann ýmis láglaunastörf, en lét aldrei af áhuga sínum á bókum, menntun og því að skilja samfélagið. Með þrautseigju, hæfileikum og hvatningu frá fólki sem varð á vegi hans tókst Sowell að brjótast til mennta. Hann lauk námi við Harvard, Columbia og Chicago og varð síðar einn þekktasti hagfræðingur og þjóðfélagsrýnir Bandaríkjanna. En Thomas Sowell var ekki alltaf málsvari frjáls markaðar og einstaklingsfrelsis. Á yngri árum var hann sannfærður marxisti og taldi að sósíalisminn gæti skapað réttlátara samfélag. Í fyrsta þætti um helstu hugsuði frjálshyggjunnar rekjum við óvenjulega ævi Thomas Sowells, allt frá fátækt til menntunar og frama. Þetta er saga um erfiðleika, tækifæri, sjálfstæði og mann sem neitaði að láta uppruna sinn ráða framtíðinni. Í næsta þætti segjum við frá því hvernig marxistinn Thomas Sowell sneri baki við sósíalismanum og varð einn skýrasti gagnrýnandi ríkisafskipta og miðstýringar.

    Thomas Sowell – Frá fátækt til frama - 1. þáttur
  2. Aug 26

    Nei við tollabandalag - já við heiminum öllum

    Með því að ganga til liðs við ESB tökum við okkur stöðu innan tollmúra ríkjabandalags. Okkur verður bannað að athafna okkur utan múranna án sérstaks leyfis og þátttöku allra annarra aðildarlanda. Í stað þess að horfa á heiminn allan ætlar ríkisstjórnin að festa Ísland inn í tollabandalag og færa ákvörðunarvald um viðskiptasamninga okkar til Brussel. Heimurinn er stærri en Evrópusambandið. Hagvöxtur, fólksfjölgun og nýir markaðir verða á næstu áratugum að verulegu leyti utan Evrópu. Bandaríkin verða áfram efnahagslegt og tæknilegt stórveldi. Asíuríki sækja fram. Norðurslóðir fá aukið efnahagslegt og hernaðarlegt vægi í framtíðinni. Tækifærin blasa við en við Íslendingar, öðrum þjóðum fremur, þurfum frelsi til að grípa og nýta tækifærin. 29. ágúst mun ég segja nei takk við því að leggja upp í ferðalag til Brussel. Og um leið segi ég já við innri markaði Evrópu í gegnum EES. Já við áframhaldandi samstarfi innan EFTA. Já við nánari tengslum við Bandaríkin. Já við auknum samskiptum við Bretland og Kanada. Já við auknum viðskiptum við Asíu. Já við því að kanna nýtt samstarf á Norður-Atlantshafi. Já við eigin viðskiptastefnu. Já við því að Íslendingar ráðum áfram yfir sjávarauðlindum okkar. Já við því að við nýtum orkuauðlindir á okkar forsendum. Og já við þeirri hugmynd að lítil þjóð geti í krafti fullveldis verið opin fyrir öllum heiminum án þess að þurfa að tilheyra pólitísku ríkjasambandi 27 annarra þjóða. Já við því að við stöndum á eign fótum meðal vina og bandamanna. Já við því að við grípum tækifærin sem bíða okkar.

Ratings & Reviews

5
out of 5
2 Ratings

About

Stjórnmál, listir og menning, umhverfismál, efnahagsmál, viðskipti og hugmyndafræði. Óli Björn Kárason er alltaf til hægri.

You Might Also Like