Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

  1. 21h ago

    Rauða borðið 2. nóv - Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar

    Mánudagur 2. nóvember Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar Ómannúðlegar aðferðir við uppsagnir starfsfólks og áhrif þess, persónubundin og samfélagsleg, verða til umræðu hjá Viðari Eggertssyni leikara og Sigríði Kristjánsdóttur kvikmyndasérfræðingi. Þau urðu vitni að því sem Viðar kallar “slátrun” í hópuppsögn hjá Ríkisútvarpinu þar sem Sigríður missti vinnuna og lýsir nú í fyrsta skipti þeirri bitru reynslu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Degi fyrir kosningar í Bandaríkjunum spá sagnfræðingarnir Sveinn Máni Jóhannesson, Magnús Helgason og Guðmundur Hálfdanarson í spilin með Gunnari Smára. Munu Repúblikanar tapa kosningunum svo illa að marki endalok Trumptímans? Hvað er að gerast í Evrópu og meðal ungs fólks víða um heim? Róttæklingarnir Ólafur Páll Sigurðsson, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Lúkas Lilliendahl ræða við Gunnar Smára um uppreisn ungs fólks, hverju þau mótmæla og hvers vegna. Er gamli heimurinn að líða undir lok? Gísli Bachmann stjórnspekingur hefur fengið sýnir sem hann tengir við Völuspá, Ragnarök og upphaf nýrrar aldar. Hann telur að erfiðir tímar séu fram undan, átök og upplausn, en að úr þeim hreinsunareldi geti sprottið nýr heimur og andleg vakning mannkyns. Ásdís Olsen ræðir við hann. Halldóra Mogensen fyrrum þingmaður, sérfræðingur í gervigreind, ræðir samfélagsmiðla og hvernig stjórnvöld sváfu á verðinum gagnvart börnunum okkar. Björn Þorláks ræðir við Halldóru.

    Rauða borðið 2. nóv - Hópuppsagnir, Trump, uppreisnir, heimshvörf og samfélagsmiðlar
  2. 6d ago

    Þriðjudagur 27. október - Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin

    Þriðjudagur 27. október Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sagt upp fjölda fólks sem starfar hjá borginni Kári Sigurðsson formaður Sameykis og oddvitar úr minnihlutanum; Pétur Marteinsson Samfylkingu og Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vinstrinu ræða við Gunnar Smára um stöðuna. Vilhjálmur Egilsson fyrrum þingmaður og rektor telur rétt að breyta skólum í fangelsi í stað þess að byggja alltaf ný. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hann einnig sinn gamla flokk. Sjálfstæðisstefnan sigraði en Sjálfstæðisflokkurinn er í bullandi vandræðum, segir Vilhjálmur. Landbrot og uppbygging tengd mannfjölgun og ferðaþjónustu á Suðurlandi gæti leitt til árekstra í sambandi manns og náttúru. Björn Þorláks ræðir við Þóri Kjartansson ljósmyndara. Jósep Ó Blöndal læknir heldur áfram að segja Gunnari Smára frá ferð sinni um heilbrigðiskerfið og hvernig það hefur breyst um hans starfsævi. Og fræðir hann um heilbrigði og sjúkleika. Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur hefur skrifað bók um ástina. Nándin er okkur eins mikilvæg og matur, segir hann. Björn Þorláks ræðir við höfundinn. Mygluvandi í húsi í Mývatnssveit hefur valdið miklu tjóni og lasleika og hefur heimafólk ákveðið að leggja íbúum lið með stórtónleikum í kirkju á morgun. Björn Þorláks ræðir við Stebba Jak um framtakið.

    Þriðjudagur 27. október - Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin

About

Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

You Might Also Like