Að finna taktinn: Breytingaskeiðið

Podcaststöðin

Tölum um breytingaskeið kvenna án þess að roðna og vörpum á það jákvæðu ljósi. Þær konur sem fæðast með æxlunarfæri kvenna fara á breytingaskeiðið í kringum fertugt. Þá hefst nýr kafli sem markar í raun síðasta þriðjung æviskeið kvenna og við ræðum bara alls ekki nóg um. Þessi þáttasería er innlegg í að auka umræðuna um breytingaskeið kvenna og draga fram fegurðina í því sem framundan er. Rætt er við allskonar konur um breytingaskeiðið, bæði faglega og reynslulega. Umsjónakona er Sóley Kristjánsdóttir og tónlist gerði Kristján Steinn Kristjánsson

  1. 07/29/2023

    #24 Þorbjörg Hafsteinsdóttir, næringaþerapisti: "Höfum hátt!"

    Þorbjörg Hafsteinsdóttir er gestur minn í þessum þætti nr. 24, en hún starfar sem næringaþerapisti og lífsstílsþjálfari, auk þess sem hún hefur skrifað þó nokkrar bækur (þið þekkið líklegast "10 árum yngri á 10 vikum"!). Hún menntaði sig snemma sem hjúkrunarfræðingur, en lærði fljótlega til næringaþerapistans, enda var það áhrif næringar á heilsu og líðan sem vakti áhuga hennar. Það var eigin reynsla hennar af óhóflegri sykurneyslu og að finna lausn undan henni með breyttu mataræði og lífsstíl sem vakti áhuga hennar og markaði það stefnu hennar snemma í lífinu. Hún hefur skrifað þó nokkrar bækur um mataræði og lífsstíl sem má tileinka sér til að leggja grunn að góðri heilsu, líðan og sjálfsmynd fyrir konur. Þar að auki er hún komin heil á höldnu í gegnum breytingaskeiðið, þannig að hún veit heldur betur hvað hún er að tala um!  Þorbjörg er skemmtileg og lífleg, einstaklega hress og geislar af henni gleði og orka, og ber spjallið okkar þess merki. Við fórum að venju vítt og breytt, en hún hélt okkur vel við efnið og konur ættu að vera töluvert fróðari um leiðir til að mæta sér betur með  m.a. réttu mataræði.  Fyrir ykkur sem eru sleipar í dönskunni þá er danska heimasíða Þorbjargar hér. Svo er hún með íslenska heimasíðu um Ketoflex og er þar líka yfirlit yfir þær bækur sem hún hefur skrifað, og er hún hér.  Góða skemmtun við að hlusta og læra meira um breytingaskeiðið!

    1h 18m
  2. 03/04/2023

    #20 Erla Gerður, yfirlæknir kvenheilsuteymisins innan Heilsugæslunnar: “Berum virðingu fyrir líkama okkar og hlustum á hann”

    Í þessum þætti kom Erla Gerður, yfirlæknir kvenheilsuteymis innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til mín og ræddi við mig um allskonar varðandi kvenheilsu og breytingaskeiðið. Hlutverk teymisins sem Erla Gerður leiðir, er að veita fræðslu og ráðgjöf en einnig sinna sjúkdómum og heilsufarsvanda sem eingöngu eru til staðar hjá konum. Teymið er hugsað sem viðbót við núverandi þjónustu. Nálgun Erlu í starfi sínu sem læknir vakti athygli mína og áhuga, en hún nálgast heilsuna heildrænt. Hún líkir líkama okkar við sinfoníuhljómsveit - ef hún er ekki að spila saman þá eru læti og óþægindi, en um leið og öll kerfin stilla sig saman að þá verður hreinn unaður úr því. Mér fannst það æðislega falleg myndlíking og tengi mjög við hana. Kjarninn í þessu öllu saman að hennar mati er að við berum virðingu fyrir líkamanum okkar og hvað hann er að segja. Finnum hvað við getum gert sjálfar og hvað við þurfum aðstoð með og hikum ekki við að þiggja aðstoð. Ég nýtti tækifærið og spurði Erlu nánar út í hormónameðferð, af því að ég finn að þrátt fyrir að hafa talað við margar konur og aflað mér upplýsinga um að þá er enn e-ð óskýrt fyrir mér varðandi áhættu af henni. Með fyrirvara um að ekki mætti vitna í hana þar sem hún var ekki með nákvæma tölfræði á takteinununum, að þá gat hún útskýrt þetta nokkuð vel fyrir mér (þið afsakið hringlið í mér fyrirfram!).  Um hormónauppbótameðferðar ruglinginn má lesa nánar t.d. hér  og í fræðslu hjá Gynamedica má finna góða samantekt og rannsóknir sem gerðar hafa verið.

    1 hr
  3. 02/18/2023

    #19 Ingeborg Andersen, grasalæknir: "Konur verða viskuberar"

    Að þessu sinni kom til mín Ingeborg Andersen, grasalæknir. Hún er ung að árum og gefur sig ekki út fyrir að vera vera sérfræðingur í breytingaskeiðinu, en hún hefur haft alveg sérstakan áhuga og þar af leiðandi þekkingu á hormónakerfi kvenna. Forvitnin hefur drifið hana áfram í að afla sér upplýsinga og kynna sér til hlýtar hvaða áhrif hormón hafa á konur. Hún nálgast konur með því að fræða þær þannig að þær þekki líkama sinn og læri að heyra í honum og skilja hann til þess að geta mætt honum. Að venju töluðum við um allskonar, meðal annars um hvernig samfélagið myndi vera uppbyggt ef það væri að mæta þörfum kvenna út frá tíðarhring okkar. En það er nú byggt upp út frá þörfum karla þar sem hringurinn þeirra er aðeins sólarhrings á meðan kvenna er um það bil mánuður. Þá setti Ingeborg breytingaskeiðið í skemmtilegt samhengi þess að þegar að konur eru ekki lengur að bera börn verða þær viskuberar og fá þannig nýtt hlutvert í samfélagi okkar. Þetta er tíminn til þess að hægja á og einfalda lífið, að vinna með sköpunarkraftinn frekar en að vera á hamsturshjólið og endurhugsa við hvað við erum að eltast.  Xeno estrogen - gervi estrogenið sem Ingeborg talaði um að væri hægt að googla til að átta sig betur á hvar það er í umhverfi okkar. Instagram reikningurinn sem Nærðar konur eru með má finna hér. https://www.instagram.com/naerdarkonur/

    1h 6m

About

Tölum um breytingaskeið kvenna án þess að roðna og vörpum á það jákvæðu ljósi. Þær konur sem fæðast með æxlunarfæri kvenna fara á breytingaskeiðið í kringum fertugt. Þá hefst nýr kafli sem markar í raun síðasta þriðjung æviskeið kvenna og við ræðum bara alls ekki nóg um. Þessi þáttasería er innlegg í að auka umræðuna um breytingaskeið kvenna og draga fram fegurðina í því sem framundan er. Rætt er við allskonar konur um breytingaskeiðið, bæði faglega og reynslulega. Umsjónakona er Sóley Kristjánsdóttir og tónlist gerði Kristján Steinn Kristjánsson