Með lífið í lúkunum

HeilsuErla

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

  1. 2d ago

    127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.

    Í þættinum ræðir Erla við Heiðrúnu Birnu Rúnarsdóttur. Heiðrún hefur verið ötull talsmaður fyrir umhverfisvernd og er stofnandi og eigandi Grænu stofunnar sem er eina umhverfisvottaða hárgreiðslustofan á Íslandi. Þær stöllur ræðu um áhrif þess að alast upp í sveit, hvaðan áhuginn og virðingin fyrir umhverfinu spratt, hvernig gildi okkar geta verið leiðarvísir í lífi og starfi og hve mikilvægt það er að setja sér og öðrum mörk.  Við ræddum einnig um muninn milli á umhverfisvottaðra vara og vara sem eru það ekki og áhrif þeirra á náttúruna og heilsuna. Bæði heilsu þeirra sem vinna með efnin og þeirra sem nota þau.   Kvennakvöld HeilsuErlu 10.október. Kvöld sem þú vilt ekki missa af! Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðasala er hafin hér! Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:  💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk og Femarelle. 🌱  -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.
  2. 4d ago ·  Bonus

    Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)

    Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október. Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Miðasala er hafin hér. Húsið opnar kl.18:15 Fordrykkur og kvöldmatur* innifalinn. Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22. Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsaEdda Björgvins- Húmor og heilsaElísabet Reynis- Næring og heilsaHalldóra Skúla- Hormónar og heilsaKvöldið endar svo á sjúklega skemmtilegu Tingó með Hrund Scheving (Tónlistarbingó)Að dagskrá lokinni er gestum velkomið að sitja áfram og spjalla og skemmta sér fram á kvöld. Verð 10900kr. Aðeins 100 miðar í boði. Ég hvet alla til að mæta tímanlega og njóta matarins eða kíkja á kynningarbása hjá samstarfsaðilum hlaðvarpsins, Virkja, Þín fegurð, Nutrilenk og Femarelle áður en formleg dagskrá hefst. p.s. ef þig vantar dress fyrir kvöldið mæli ég með að kíkja í verslunina Systur og makar í Síðumúla 21 eða skoða vefverslun þeirra systurogmakar.is *Matseðill. Þú getur valið um: 1. Heilsusalat „Heilsu Erlu“ með blönduðu salati, spínati, avókadó, agúrkum, fetaost, papríku, eggi, kjúklingi, kjúklingabaunum, hnetum og hindberja dressingu. 2. Confit önd á ristuðu foccacia með döðlusultu, feyki og pikkluðum rauðlauk. 3. Grænmetisútgáfa af Heilsusalati HeilsuErlu. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)
  3. Aug 30

    126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir

    Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár. Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur.  Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan tilgang.  ✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨ Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekkert venjulegt kvöld…því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Hin eina sanna Edda Björgvins, Beta Reynis og Halldóra Skúla verða með fræðslu og Hrund Scheving hjá Sche Events sér um að halda uppi stuðinu. Aðeins 100 miðar í boði. Allar nánari upplýsingar verða birtar á @heilsuerla Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:  💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk.  🌱  -SPÍRAN. Besti brunchinn í bænum!  🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir

Ratings & Reviews

5
out of 5
7 Ratings

About

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

You Might Also Like