Snorri Másson ritstjóri

Snorri Másson

Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.

  1. 1d ago

    Fréttir vikunnar | Stóra stöðnunin, hin óþarfa unga kynslóð, betlandi ráðherra og hagvöxtur fyrir hvern?

    Ritstjórinn lifir góðu lífi og rifjar upp nýleg samskipti við Fjölmiðlanefnd sem stendur blessunarlega vaktina. Mikilvægt er að nú verði myndað jákvætt samband við þennan mikilvæga hagaðila. Dagskrá þáttarins: Hagkerfi sem stækkar án þess að allir njóti endilega góðs af, vaxtarplan ríkisstjórnarinnar og aðferðir hennar til að vinna gegn markmiðum þess, ungt fólk á tímum gervigreindar og skipulagðir glæpahópar á Íslandi. Síðan reiknum við út hvað fást margir sérsveitarmenn fyrir 150 milljónir sem sendar eru til útlanda í staðinn. Hagkerfið hefur sannarlega stækkað en Ísland hefur ekki beint orðið ríkara. Við förum yfir stóru stöðnunina og nýtt vaxtarplan ríkisstjórnarinnar, sem var enn volgt úr prentaranum þegar atvinnuvegaráðherra mætti í ræðustól til að útskýra að það væri bara svona almennt um gott atvinnulíf, en ekki ætlað að taka á raunverulegum vanda hagkerfisins. Hver vill ekki almennt gott atvinnulíf? Síðan er það unga fólkið. Maður heyrir stundum að ungir Íslendingar séu bara svo latir að hreinlegast sé að ráða útlending. En ef atvinnulífið gefst upp á unga fólkinu, þá er ekki nema von að þau öðlist ekki trú á sjálfum sér heldur. Nú bætist gervigreindin við. Líkamlegu störfin mönnuð erlendis frá, skrifstofustörfin farin til gervigreindarinnar og hvað á þá að gera við ungu kynslóðina? Að lokum: Yfir tuttugu skipulagðir glæpahópar á okkar litla Íslandi og dómsmálaráðherra heldur blaðamannafund um fyrirhuguð verkefni sem enginn peningur er til í. Kannski væri hreinlegra að byrja á að ræða við formann eigin flokks. Það er nefnilega til nægur peningur í ýmislegt annað. Hvað eru það margir sérsveitarmenn?

  2. Oct 23

    Fréttir vikunnar | Viðreisn í áfalli, falleinkunn Ingu, og sjálfsmynd Sjálfstæðisflokksins

    Til umræðu: Bókun 35 og málstaður Íslands í höndum utanríkisráðherra, brotthvarf Jóns Gnarr úr Viðreisn, stafarugl í skólakerfinu, öryggisátak í Mjóddinni og grunnskólum og fleiri fjölmenningarplástrar, og svo sjálfsmyndarleit Sjálfstæðismanna í tengslum við ýmis slík mál. Kæru vinir, það er föstudagur og hlaðvarpið hefur göngu sína á nýjan leik. Frá því að ritstjórinn, sem þá var, tók sæti á Alþingi hefur hlaðvarpsframleiðslan ekki náð sér á strik en nú er full ástæða til að snúa aftur til reglulegrar framleiðslu. Við tökum upp þráðinn með sömu einföldu kjörorðin: ást á ættjörðu, ást á sannleika. Það er meira en nóg að ræða um lífið, tilveruna og landsins gagn og nauðsynjar. Ríkisstjórnin virðist eiga erfitt með að jafna sig eftir Evrópusambandsáfallið og Jón Gnarr er genginn úr Viðreisn. Við gerum grein fyrir þeirri stöðu sem hann hlýtur að hafa verið kominn í gagnvart klíkunni í kringum formanninn og þar kemur erlent hatursrit við sögu! Um leið veltum fyrir okkur hvers vegna utanríkisráðherra virðist áhugasamari um kröfur Brussel en málsvörn Íslands vegna Bókunar 35. Síðan förum við yfir einkunnakerfið sem á nú að laga með því að skipta út bókstöfum fyrir tölur. Í raun er þó framkvæmd ráðherra öll meingölluð og fær falleinkunn, en þó ekki lægri en fjóra. Við ræðum líka öryggishlið í skólum, opin landamæri og Sjálfstæðisflokk í leit að sjálfum sér. Að lokum: Hvers vegna fær fólk ekki að nýta fæðingarorlofið sitt? Félagsmálaráðherra er með nýtt svar sem felur í sér nöturlega viðurkenningu á því sem marga hefur lengi grunað, að misréttið er sparnaðaraðgerð.

About

Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.

You Might Also Like