Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

heilsuhladvarp

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá? Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%. Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út? Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum. Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka. Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar! Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!  Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir  - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

  1. 6d ago

    Ingvar Sigurðsson býflugnabóndi um undraheim hunangsbýflugna og afurðir þeirra

    🐝 Hvað vitum við í raun um hunangsbýflugur? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms fáum við í heimsókn Ingvar Sigurðsson býflugnabónda og köfum inn í einstakan heim hunangsbýflugunnar – eins merkilegasta og mikilvægasta skordýrs jarðar. 🌼🌍 Við ræðum hvernig hunangsbýflugur lifa, hvernig bú þeirra er skipulagt og hvernig þúsundir býflugna vinna saman sem eitt samfélag.  Við fjöllum meðal annars um: 🐝 Líf og samfélag hunangsbýflugunnar 🍯 Hunang og eiginleika þess 🌿 Propolis (býkvoðu) 🌼 Frjókorn 🕯️ Bývax 💉 Býflugnaeitur og notkun þess gegn sjúkdómum Þetta er fróðlegt spjall um litlu vinnudýrin sem hafa fylgt mannkyninu í þúsundir ára og gefa okkur mun meira en flestir gera sér grein fyrir. 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌿 Nýr samstarfsaðili – Eirberg 💚 Eirberg hefur í áratugi verið leiðandi á Íslandi þegar kemur að vönduðum vörum sem styðja við heilsu, vellíðan, hreyfingu og betri lífsgæði. Þar má finna fjölbreytt úrval af heilsuvörum, hjálpartækjum, stuðningsvörum, svefnlausnum, nuddtækjum, hitameðferðum og mörgu fleiru sem getur hjálpað fólki að lifa virkari og betri lífi. Við vekjum athygli á t.d. umhverfisvæna útivistarklæðnaðinum án flúorefna (PFAS-frír), rauðu ljósunum og fótlaga skónum - sem fást einnig með koparþráðum til að jarðtengja í hverju skrefi. Við hvetjum hlustendur okkar til að kynna sér það fjölbreytta úrval sem Eirberg býður upp á og finna lausnir sem henta þeirra þörfum. www.eirberg.is Síðan eru hinir frábæru samstarfsaðilar sem hafa verið með okkur lengi í þessari vegferð og sumir frá byrjun. 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm. Heimasíða: www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur.  Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.

    58 min
  2. May 25

    Magni Grétarsson, sjúkraþjálfari um fasíuna og áhrif hennar á líkamsstöðu og heilsuna. Óvæntar tengingar við tunguna, hvernig við öndum, útlit og fleira.

    Í þessum þætti ræðum við við Magna Grétarsson sjúkraþjálfara um eitt af áhugaverðustu kerfum líkamans: bandvefinn — eða fasíuna. Bandvefurinn er oft kallaður “netið” sem tengir líkamann saman frá toppi til táar. Hann umlykur vöðva, bein, liðamót, taugar, líffæri og jafnvel andlitið — og getur haft áhrif á hvernig við hreyfum okkur, hvernig okkur líður, hvernig við stöndum og jafnvel hvernig við eldumst og lítum út. Við förum yfir þetta á mjög lifandi og praktískan hátt með Magna, sem útskýrir hvernig líkaminn vinnur sem ein heild — ekki bara sem stakir vöðvar eða liðamót. Í þættinum ræðum við meðal annars: 🕸️ Hvað bandvefur / fasía er — og af hverju hann skiptir miklu meira máli en margir halda. 🚶 Hvernig göngulag, líkamsstaða og hreyfimynstur hafa áhrif frá toppi til táar — og hvernig líkaminn aðlagast því sem við gerum aftur og aftur á hverjum degi. 🦐 “Rækjustellinguna” sem margir eru fastir í — síminn, tölvan, bíllinn og sófinn ýta okkur oft fram á við: höfuðið fer fram, axlir lokast, brjóstkassi fellur saman og framhlið líkamans styttist. 💪 Af hverju lausnin er ekki bara að teygja meira — heldur að losa um framhliðina, opna brjóstkassa, mjaðmir og kviðsvæði, og styrkja stóru vöðvana í bakinu, rassvöðva og aftari keðjuna. 🦴 Hvernig fasían tengist verkjum og vandamálum — í mjóbaki, öxlum, mjöðmum, hnjám, hálsi og jafnvel kjálka. 🙌 Ótrúleg dæmisaga  — þar sem samstarfskona Magna átti að fara í stóra bakaðgerð/spengingu komst hjá því með markvissum hreyfingum, réttri endurþjálfun og betra líkamsmynstri. 😮‍💨 Tengingin við andlitið, kjálkann, tunguna og öndunina — hvernig líkamsstaða, höfuðstaða, tunga og öndun geta tengst kjálka, gómi og andlitsstöðu. 👃 Af hverju neföndun skiptir svona miklu máli 🦷 Hvernig þröngur gómur getur haft áhrif á öndun 🧘 Daglegar æfingar til að halda fasíunni lifandi og hreyfanlegri 💆 Nudd, losun og hreyfing — hvernig hægt er að vinna með fasíuna bæði í líkamanum og andlitinu Þetta er þáttur fyrir alla sem finna fyrir stirðleika, verkjum, þreytu í líkamanum, slæmri líkamsstöðu eða vilja einfaldlega skilja betur hvernig líkaminn tengist allur saman. Bandvefurinn er ekki bara “eitthvað utan um vöðvana” — hann er hluti af því hvernig líkaminn hreyfist, skynjar, bregst við álagi og heldur sér lifandi. 🌿 🎧 Hlustaðu á þáttinn og lærðu hvernig litlar breytingar í daglegri hreyfingu, öndun og líkamsstöðu geta haft áhrif á allan líkamann — frá iljum og upp í andlit.   🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Heimasíða: www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🏡 Húsaskjól — fasteignasala sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og traust í stórum ákvörðunum lífsins. Heimasíða: www.husaskjol.is (Húsaskjól) 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS)

    1h 6m
  3. May 19

    Valgeir Magnússon og heilsan í Excel. Frá því að mælast eldri — í að yngja líkamann um 20 ár.

    🎙️ Mældist eldri en hann var — og sneri þróuninni við | Valgeir Magnússon, Valli Sport Í þessum þætti fáum við til okkar Valgeir Magnússon, frumkvöðul, auglýsinga- og markaðsmann, sem margir þekkja sem Valla Sport, í einstaklega áhugavert, opið og hvetjandi samtal um heilsu, mælingar, lífsstíl og það að taka ábyrgð á eigin heilsu. 💪✨ Valgeir hefur stundað mikla hreyfingu allt sitt líf og verið heilsumeðvitaður - og hélt að hann væri í ágætu formi. En þegar hann fór í blóðmælingar í Greenfit kom í ljós að líkaminn var ekki endilega sammála. VO2 max, blóðsykur, blóðgildi og aðrir heilsumælikvarðar gáfu honum skýr skilaboð: það var kominn tími til að breyta. 📊🩸 Það sem gerir sögu Valla svo áhugaverða er að hann fór ekki í einhverjar tilviljanakenndar skyndilausnir. Hann ákvað að mæla, skrá og læra af eigin líkama. Hann útbjó mjög nákvæmt Excel-skjal þar sem hann skráði æfingar, mataræði, svefn, útiveru, streitu, líðan, mælingar og blóðniðurstöður — og tengdi þetta allt saman til að sjá hvað væri raunverulega að virka. 🧠📈 Í þættinum förum við yfir hvernig hann náði að snúa þróuninni við — frá því að mælingar bentu til þess að líkaminn væri eldri en raunaldurinn, yfir í að mælingar sýndu mun yngra og betra líkamlegt ástand. Við ræðum hvað hafði mest áhrif: mataræði, regluleg útivera, rétt æfingaálag, þolþjálfun, styrkur, endurheimt og minni streita. 🌿🏃‍♂️😴 Við förum líka í gegnum hvað sumar af þessum mælingum þýða í raun. Hvað segir t.d. VO2 max um úthald og framtíðarheilsu? Og hvernig getum við notað mælingar sem leiðarvísi — án þess að verða föst í tölunum? 🔍❤️ Þetta er þáttur um forvitni, aga og heiðarleika gagnvart eigin heilsu. Um að fylgjast með, prófa, læra og finna út hvað virkar í alvöru. 🙏 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Heimasíða: www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🏡 Húsaskjól — fasteignasala sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og traust í stórum ákvörðunum lífsins. Heimasíða: www.husaskjol.is (Húsaskjól) 🛒 Nettó — fjölbreytt vöruúrval og góð matvara á góðu verði í verslunum um allt land. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS)

    1h 10m
  4. May 11

    Fida Abu Libdeh um kísil "hið gleymda næringarefni" og söguna af því hvernig unglingaveik stúlka frá Palestínu yfirsteig hindranir og varð stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica 🌋

    Fida Abu Libdeh lýsir því hvernig hún flutti sextán ára gömul frá Palestínu til Íslands og yfirsteig verulegar hindranir í skólakerfinu, þar á meðal tungumálaörðugleika og lesblindu. Með menntun sinni í orku- og umhverfistæknifræði fann hún leið til að nýta kísil úr íslensku jarðhitavatni, sem áður var talið úrgangsefni, til að búa til náttúruleg bætiefni. Í viðtalinu er lögð áhersla á mikilvægi kísils fyrir beinheilsu, húð og hár, auk þess sem rætt er um hvernig efnið hjálpar líkamanum að upptaka önnur steinefni. Fída leggur áherslu á sjálfbærni, hringrásarnýtingu auðlinda og mikilvægi þess að konur séu sýnilegar fyrirmyndir í atvinnulífinu. Frásögnin fléttar saman persónulegri seiglu hennar og vísindalegri nálgun á íslenska náttúru til að bæta lífsgæði fólks. 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is 🌋 GeoSilica - framleiðir náttúruleg steinefni í vökvaformi úr íslenskri náttúru sem styðja við líkamann frá toppi til táar.

    58 min
  5. May 5

    Kristinn Johnson hjá Eirbergi 🌿🔴👣 Heilsutæki, loftgæði, jarðtenging/grounding, rauð ljós og berfætluskór

    Í þessum þætti fáum við til okkar Kristinn Johnson, framkvæmdastjóra Eirbergs, í einstaklega fróðlegt, lifandi og skemmtilegt samtal um heilsu, forvarnir, tækni og tæki sem geta stutt okkur í að hugsa betur um líkamann. 🌿✨ Kristinn er sannkallaður „nörd“ í besta skilningi þess orðs 🤓 — fullur af ástríðu fyrir því sem hann gerir og brennur fyrir því að bjóða fólki lausnir sem geta hjálpað til við að viðhalda heilsu, bæta lífsgæði og styðja við forvarnir áður en vandamál verða alvarleg. Við förum yfir víðan völl og ræðum meðal annars loftmengun, loftgæði og hvað góð lofttæki þurfa að hafa til að gera raunverulegan mun. 🌬️🏡 Hvaða síur skipta máli? Hvað þarf fólk að vita áður en það velur lofttæki? Og hvers vegna getur loftið inni á heimilum og vinnustöðum haft meiri áhrif á heilsuna en margir halda? Við ræðum líka rauð ljós og innrauð ljós 🔴💡 — hvað slík tæki þurfa að uppfylla, hvaða gæði skipta máli og hvers vegna þau hafa vakið mikla athygli í heilsuheiminum. Þá förum við inn á berfótaskó 👣 og hvers vegna hefðbundnir skór eru oft hannaðir á hátt sem fer illa saman við náttúrulega lögun og virkni fótarins. Við ræðum hvaða áhrif það getur haft á líkamsstöðu, hreyfimynstur, jafnvægi og styrk í fótum að skipta yfir í skó sem leyfa fætinum að hreyfast eðlilegar. Við snertum einnig á jarðtengingu, eða earthing 🌍⚡ — hugmyndinni um líkamann sem rafrænt og ljósnæmt kerfi, og hvernig þeir sem aðhyllast decentralized medicine hefur talað um samband líkamans við ljós, rafsegulumhverfi og jörðina. Við ræðum mögulega kosti jarðtengingar og sérstaka berfótaskó með silfurþráðum til að við getum tengt við jörðina í hverju skrefi utanhúss. Að lokum ræðum við kosti og galla berfótaskóa fyrir afreksíþróttafólk, hlaupara og almennt fólk sem vill styrkja fætur, bæta hreyfigetu og tengjast líkamanum betur. 🏃‍♂️👟👣 Þetta er samtal um forvarnir, forvitni, tækni, náttúru og heilsu — og hvernig litlar breytingar í umhverfi okkar geta haft stór áhrif á það hvernig okkur líður. 🌱💛 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

    1h 26m
  6. Apr 27

    Beta Reynisdóttir næringarfræðingur um persónulega reynslu af alvarlegum veikindum, leiðina til bata, nýja 7 daga blóðsykursnámskeiðið og tengsl sorgar og áfalla við næringu

    Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur og næringarþerapisti, deilir með hlustendum persónulegri sögu sinni af alvarlegum veikindum og hvernig hún nýtti næringu og andlega rækt til að endurheimta heilsuna. Hún útskýrir muninn á hefðbundinni næringarfræði og heildrænni næringarþerapíu, þar sem lögð er áhersla á samspil líkamlegrar næringar, tilfinninga og lífsreynslu. Rætt er um mikilvægi blóðsykursstjórnunar til að vinna gegn orkuleysi, heilaþoku og lífstílssjúkdómum, auk þess sem fjallað er um áhrif sorgar og streitu á mataræði. Elísabet kynnir nýtt sjö daga námskeið hjá Greenfit sem miðar að því að kenna fólki að stilla efnaskiptin af og bæta bæði líkamlega og andlega líðan með næringarríkri fæðu.  ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is ⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar. Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins. protis.kavita.is

    2h 51m
  7. Apr 22

    Heiti potturinn með Sigurði Erni Hilmarssyni, mannréttindalögfræðingi og þingmanni um auknar valdheimildir heilbrigðisráðherra í tengslum við farsóttir.

    Heiti potturinn fjallar um nýsamþykkt sóttvarnarlög og þær víðtæku valdheimildir sem heilbrigðisráðherra eru færðar í tengslum við farsóttir. Gestur þáttarins er Sigurður Örn Hilmarsson, lögmaður og varaþingmaður, sem lýsir yfir þungum áhyggjum af því að lögin skorti nauðsynlegt lýðræðislegt aðhald og skýran ramma frá Alþingi. Hann gagnrýnir að völdin séu nú að miklu leyti á hendi eins einstaklings sem geti tekið ákvarðanir um verulegar frelsiskerðingar, líkt og útgöngubann, án beinnar rökstuðningsskyldu eða samþykkis þingsins. Í samtalinu er lögð áhersla á mikilvægi þess að rannsaka reynsluna af Covid-19 til að draga lærdóm af efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum aðgerða áður en slíkt vald er fest í sessi. Sigurður bendir á að lögin veiti ráðherra nánast óútfylltan tékka til að skilgreina hættur og grípa til ráðstafana sem gætu stangast á við stjórnarskrána. Niðurstaða viðmælenda er að þessi þróun færi völd frá kjörnum fulltrúum til sérfræðingaræðis, sem gæti grafið undan trausti almennings í framtíðinni. ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is ⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar. Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins. protis.kavita.is

    2h 51m
  8. Apr 20

    Rick Doblin um notkun MDMA við áfallastreituröskun, rannsóknir á hugvíkkandi meðferðum og ávinning meðferðanna.

    Í þessu hlaðvarpi fjalla stjórnendurnir Lukka og Jóhanna um endurreisn hugvíkkandi efna í læknisfræðilegum tilgangi og kynna viðtal við frumkvöðulinn Rick Doblin. Hann er stofnandi MAPS og hefur barist fyrir því áratugum saman að MDMA og önnur sambærileg efni verði viðurkennd sem gagnleg verkfæri í geðheilbrigðisþjónustu. Í þættinum er lögð áhersla á að þessi efni geti hjálpað fólki með áfallastreituröskun og erfiðan fíknivanda þegar hefðbundnar leiðir bregðast. Þær ræða einnig nýlegar vendingar í Bandaríkjunum þar sem stjórnvöld hafa sýnt aukinn áhuga á að flýta rannsóknum á þessu sviði. Stjórnendurnir undirstrika mikilvægi þess að meðferðin fari fram undir ströngu eftirliti fagaðila fremur en í ólöglegri afþreyingarneyslu. Að lokum hvetja þær hlustendur til að leggja fordóma til hliðar og skoða hvernig þessi vísindi geta stuðlað að auknum kærleika og lækningu í samfélaginu. ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is ⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar. Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins. protis.kavita.is

    2h 51m

Ratings & Reviews

3.3
out of 5
3 Ratings

About

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá? Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%. Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út? Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum. Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka. Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar! Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!  Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir  - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

You Might Also Like