Skattaspjallið

Samtök skattgreiðenda

Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.

  1. 1d ago

    #34 - Hvað borgar þú í skatta?

    Það er þekkt spakmæli að ekkert er víst nema skatturinn og dauðinn. Allir borga skatta með einum eða öðrum hætti en veit fólk almennt hvað það borgar í skatta? Nú hefur Viðskiptaráð smíðað gagnvirka skattareiknivél til að varpa ljósi á hversu mikið einstaklingar borga í skatt. Nú geta skattgreiðendur slegið inn eigin forsendur og séð hvað þeir greiða í skatta á mánuði. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, kom í þáttinn að þessu sinni og benti á að heildarskattbyrði einstaklinga er umtalsvert meiri en ætla mætti út frá þeim sköttum sem koma fram á launaseðlinum einum. Heildarskattbyrðin ræðst af tekjum, neyslumynstri og öðrum aðstæðum hvers og eins. Með reiknivélinni er núna hægt að leggja mat á skattbyrði miðað við eigin forsendur og fá þannig heildstæðari mynd af því hversu stór hluti tekna rennur til hins opinbera í formi skatta. Hugsanlega bregður mörgum í brún þegar endanleg tala birtist!Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠upplysingar@skattgreidendur.is

    #34 - Hvað borgar þú í skatta?
  2. Aug 24

    #33 - Loftslagsskattar í ógöngum

    Hvernig er haldið á hagsmunum Íslands þegar skattar og gjöld tengd loftslagsmálum eru annars vegar? Fáir hafa kynnt sér þennan málaflokk jafn vel og Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum. Hann starfaði um árabil sem ráðgjafi Davíðs Oddssonar, þegar hann var forsætisráðherra, í utanríkismálum og síðar sem sendiherra Íslands. Albert segir að Ísland eigi að nýta sér sérstöðu sína í orkumálum og að íslenskur almenningur muni aldrei sætta sig við að greiða fyrirséðan kostnað við aðgerðir í loftslagsmálum, sem hvíli á alþjóðlegum samþykktum. Albert segir að Ísland eigi ekki að sæta sömu ráðstöfunum í loftslagsmálum og önnur ríki í ljósi þess að ríflega 80 prósent af orkunotkun landsins komi frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Samsvarandi tala hjá Evrópusambandinu er 25%. Albert segir að Íslendingar eigi ekki að vera feimnir við að grípa í taumana og frábiðja sér alþjóðlegar aðgerðir í loftslagsmálum á meðan aðrar þjóðir séu langt á eftir Íslendingum í notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Ísland eigi hins vegar að vera tilbúið að taka þátt þegar aðrar þjóðir fari að nálgast okkur. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠upplysingar@skattgreidendur.is

    #33 - Loftslagsskattar í ógöngum
  3. May 29

    #29 - Hvað kostar sveitarfélagið þitt?

    Samtök skattgreiðenda hafa gefið út tvö ný gagnvirk mælaborð og Arnar Arinbjarnarson verkfræðingur og sérfræðingur Samtaka skattgreiðenda kemur til okkar í þáttinn til að fræða okkur um þetta. Fyrra mælaborðið nær yfir öll 62 sveitarfélög landsins með gögnum úr ársreikningum sem ná aftur til ársins 2002 og fram til 2024. Viðmótið er skýrt og notandi velur sveitarfélag og fær fullbúna sundurliðun á útgjöldum, tekjum, skuldum, lýðfræði og þróun síðustu rúmlega tveggja áratuga. Síðara mælaborðið gerir notendum kleift að leita beint í 1,1 milljón greiðslna sem Reykjavíkurborg hefur innt af hendi frá 2014 til 2025. Heildarútgjöld borgarinnar á tímabilinu eru rúmir 1.018 milljarðar króna. Hægt er að velja birgja, svið, deild, ÍSAT-atvinnuflokk, tegund kostnaðar eða tímabil - og rýna í einstaka birgja með nákvæmri sundurliðun eftir árum og sviðum. Mælaborðið byggir á sömu hönnun og opnir reikningar ríkisins sem samtökin gáfu út fyrr á árinu og hafa verið vinsælasta efni okkar. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠upplysingar@skattgreidendur.is

    #29 - Hvað kostar sveitarfélagið þitt?

About

Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.

You Might Also Like