Kratinn

Samfylkingin

Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.

  1. 2d ago

    S309: Gervihagræðingarhópur, farsahöfundurinn Sigurður Ingi og menntamál

    Hlaðvarpsþáttur vikunnar er kominn út á öllum helstu veitum. Í þættinum voru helstu mál vikunnar tekin fyrir. Nýjasti kaflinn í farsahandriti Sigurðar Inga og stjórnarandstöðunnar varðandi stjórn Landsvirkjunar voru í deiglunni eftir að í ljós kom að fjármálaráðherrann fyrrverandi ber ábyrgð á fyrirkomulaginu sem hann hefur kvartað sig hásan yfir og neitaði svo að taka ábyrgð á því í viðtali. Þáttastjórnendur ræddu úrsögn Péturs Marteinssonar úr hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar og fóru yfir ferðir sínar í baðlón á síðustu árum. Þá var umferðarteppan sem stíflað hefur borgina síðustu daga greind og leynivopn gegn umferðinni opinberað. Í síðari hluta þáttarins mættu Anna María Jónsdóttir, kennari og varaþingmaður og Arna Lára Jónsdóttir, þingkona og Ísfirðingur langt aftur í ættir, í spjall til Arnars Þórs og Þórhalls Vals. Þær ræddu fundi í málefnanefndum flokksins sem eru allar mjög virkar um þessar mundir. Anna María lýsti fundi málefnanefndar um menntamál sem haldinn var á heimavelli hennar, Háteigsskóla, fyrr í vikunni. Þá fór hún yfir sína sín á menntastefnu flokksins og hvernig þróa þurfi hana til framtíðar. Arna Lára fór yfir byggðaáætlun sem rædd var í þinginu í vikunni og þau góðu verk sem ríkisstjórnin hefur leitt og er að setja á dagskrá fyrir byggðir landsins. Við hvetjum hlustendur til að taka virkan þátt á fundum málefnahópa flokksins sem eru á fleygiferð þessi misserin. Samfylkingin er sterkust þegar hún stendur saman. Hægt er að fylgjast með fundum á heimasíðu flokksins, Facebook eða með því að skrá sig á póstlista Samfylkingarinnar.

    S309: Gervihagræðingarhópur, farsahöfundurinn Sigurður Ingi og menntamál
  2. Nov 6

    S308: Ýkt hægrisveifla, fæðingarorlofsmál og nýi Pírataflokkurinn

    Í hlaðvarpsþætti vikunnar voru stóru málin tekin fyrir,góðri venju samkvæmt. Í fyrri hluta þáttarins ræddu Þórður Snær, Ásta Guðrún, Arnar Þór og Þórhallur Valur um hvort tölvur ættu heima í pontu Alþingis. Ótrúverðug atlaga stjórnarandstöðunnar gegn Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra vegna uppsagnar forstjóra Landsvirkjunar var krufin og framganga nýja Pírataflokksins, sem áður var kenndur við sjálfstæði, var gagnrýnd. Þórður Snær greindi fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar af sinni alkunnu snilld og kosningasigur Demókrata í nýliðnum þingkosningum í Bandaríkjunum var tekinn fyrir. Í síðari hluta þáttar mættu þau Ragna Sigurðardóttirþingkona og Egill Hermannsson, ritari Ungs jafnaðarfólks og varabæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, í viðtal til Arnars Þórs og Þórhalls Vals og var stúdíóið því fullmannað mis-ungu jafnaðarfólki. Egill fór yfir efni greinar sinnar umhægrisveifluna ýktu, aðdraganda hennar og viðbrögð. Ragna fór vel yfir þingsályktunartillögu sína um viðmiðunartímabil fæðingarorlofsgreiðslna, viðbrögð ráðherra og stjórnarandstöðu við henni, ýmsa aðra bresti í kerfinu ogreynslu sína af því að taka fæðingarorlof. Þá ræddu þau stöðu umhverfismála í umræðunni og hvort samfélagið væri að missa augun af umhverfisboltanum. Umræðan var innihaldsrík, lífleg og vonandi upplýsandi fyrirjafnaðarfólk um allt land.

    S308: Ýkt hægrisveifla, fæðingarorlofsmál og nýi Pírataflokkurinn

About

Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.

You Might Also Like