Gímaldið

Gímaldið

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/

  1. Oct 24

    Andri Snær: Hjartsláttartruflanir af völdum náttúruverndar

    Andri Snær Magnason hefur ekkert alltaf ætlað sér að bera kyndilinn í náttúruvernd en með bókum sínum Draumalandið og Um tímann og vatnið og samnefndum heimildarmyndum í kjölfarið hefur hann orðið einn af áhrifamestu kyndilberum í þessum málaflokki og vakið fólk um allan heim til vitundar um náttúruvernd, loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélög. Ekki síst hefur hann verið öflugur sagnamaður, sett hlutina í samhengi með persónulegri nálgun og miðlað óskiljanlegum niðurstöðum rannsókna vísindasamfélagsins á aðgengilegan hátt sem snúa að loftslagsbreytingum, súrnun sjávar og afleiðingum þess. Þrátt fyrir þessa velgengi hefur ekkert verið auðvelt að standa undir þessu. Andri hefur sætt hörðum árásum úr mörgum áttum, það hefur markvisst verið gert lítið úr hans vinnu og hann hefur átt í vök að verjast á köflum. Hann segist sjálfur eiga í ást- og haturssambandi við að vera þessi talsmaður náttúrunnar og fengið hjartsláttartruflanir af álagi sem því hefur fylgt. Auk þess upplifir hann sterkt að sumt fólk skilur hreinlega ekki og gæti ekki staðið meira á sama um loftslagsbreytingar, súrnun sjávar og bráðnun jökla og áttar sig ekki á hvaða raunverulegu afleiðingar það hefur. Hann upplifði líka hálfgerða kulnun, sem enginn vissi hvað var fyrir tuttugu árum, eftir útgáfu Draumalandsins og hefur saknað Andra Snæs sem skrifaði ljóðrænar skáldsögur og barnabækur. Helga Arnardóttir ræddi við Andra Snæ Magnason í hlaðvarpi Gímaldsins. Í viðtalinu ræðir hann um myndina Tímann og vatnið, um baráttuna fyrir náttúrunni og segir frá nýrri bók sem hann er með í smíðum og kemur út á næsta ári.    Bókin Um tímann og vatnið sem kom út árið 2019 hefur farið sigurför um heiminn og verið þýdd á 32 tungumál. Andri hlaut ítölsku verðlaunin Premio Tiziano Terzani árið  2021 fyrir bókina Um tímann og vatnið þar sem dómnefnd sagði verkið vera áhrifaríkt neyðarkall til heimsbyggðarinnar.Heimildarmyndin TIME and WATER í leikstjórn Íslandsvinarins Sara Dosa í samvinnu við National Geographic var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar 2026.  Myndin er unnin upp úr bók Andra og umfangsmiklu fjölskyldumyndasafni sem hann hefur viðað að sér í gegnum árin frá afa sínum og ömmu sem voru jöklafarar og miklir náttúruunnendur. Í maí 2026 hlaut Andri Snær WWF-Póllandsverðlaunin - Rödd fyrir lifandi plánetu sem veitt voru fyrir þátttöku hans og hlutverk í heimildarmyndinni Um tímann og vatnið (National Geographic), en verðlaunin eru veitt aðalpersónu kvikmyndar sem hvetur aðra til aðgerða í þágu náttúrunnar. Í september 2026 fékk Andri Snær náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti á degi íslenskrar náttúru en verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.   Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    Andri Snær: Hjartsláttartruflanir af völdum náttúruverndar
  2. Oct 20

    Jón Gnarr, Dagur B. og frelsið í áhrifaleysinu

    Af hverju gat Jón Gnarr ekki verið áfram í þingflokki Viðreisnar og látið til sín taka sem óbreyttur þingmaður? Og hvað ætlar ríkisstjórnin sér með verðtryggðu lánin? Eyrún Magnúsdóttir, Helga Arnardóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Viðreisn og verðtrygginguna. Meðal efnis í þættinum: Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar en ekki flokkinn. Er staða hans sambærileg við stöðu Dags B. Eggertssonar innan Samfylkingarinnar? Rýnt í hvernig þeir hafa spilað ólíkt úr sinni stöðu. Áform um að stytta hámarkslánstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár eru komin í samráðsgátt.Bankastjórar þriggja stærstu bankanna vilja afnema verðtrygginguna. Af hverju gengur ríkisstjórnin ekki lengra?Hvaða áhrif hefur styttri lánstími á tekjulága fyrstu kaupendur?Lífeyrissjóður varar við: verðtryggð lán geti verið skynsamleg í hávaxtaumhverfi.Af hverju megum við ekki bera okkur saman við Færeyinga? Þar bjóðast 30 ára lán á 4,8% föstum vöxtum.Matarverð: Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir á sama tíma og verslanir frysta verð.Hvernig hefur þingmönnum farnast sem yfirgefa þingflokka sína á miðju kjörtímabili?Forystuleysi, veikindaleyfi og þingflokkur án formanns: hvað er að gerast innan Viðreisnar?Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  3. Oct 15

    Feður í fangelsi - Kvíðinn fyrir að koma aftur heim

    Hvernig er að taka á móti börnunum sínum í heimsókn í fangelsi, og hvernig er að snúa aftur í foreldrahlutverkið að afplánun lokinni? Á Íslandi eru ekki til upplýsingar um hversu mörg börn eiga foreldri í fangelsi, þótt slíkar tölur séu til í nágrannalöndunum. Þá hafa rannsóknir á foreldrum í fangelsum að miklu leyti snúist um mæður, en feður hafa síður fengið rödd. Árni Sveinsson starfaði í átján ár sem ráðgjafi fyrir foreldra hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar og hitti þar reglulega feður sem voru að koma úr afplánun. Meistararannsókn hans í afbrotafræði við Háskóla Íslands ber yfirskriftina „Ég var góður pabbi og er góður pabbi“ og tók hann viðtöl við fimm feður sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni. Erla Hlynsdóttir blaðamaður ræðir við Árna um rannsóknina.  Meðal þess sem fram kemur: Feðurnir lýsa aðstæðum til heimsókna í fangelsin sem kuldalegum og óbarnvænum.Viðmót starfsfólks á vakt getur breytt tilhlökkun og gleði í kvíða og óöryggi, bæði hjá börnunum og feðrunumEinn faðirinn sem fékk dóttur sína í heimsókn var miður sín eftir að kynlífshljóð heyrðust þaðan sem aðrir fangar tóku á móti maka sínum. Annar faðir sem afplánaði á Kvíabryggju fór út með börnin til að létta andrúmsloftið en þegar þau komu aftur inn lágu dæmdir barnaníðingar á dótinu þeirra. Það er á herðum nánustu ættingja að koma með börnin í heimsókn til föður síns í fangelsið. Að vera fluttur í fangelsi sem er lengra í burtu frá þeim getur gert heimsóknir stopulli.Mæður fanganna, ömmurnar, lögðu mikið á sig til að viðhalda tengslum þeirra og barnanna.Félagsleg stimplun fylgir þeim út úr fangelsinu og þeir upplifa kvíða við að gera hversdagslega hluti á borð við að fara út í búð eða mæta í skóla barnanna sinna.Einn af feðrunum sem Árni ræddi við var að taka einn við uppeldi dóttur sinnar þegar hann kæmi úr fangelsi og óttaðist að gera mistökSkortur á stuðningi við þá sem foreldra innan fangelsiskerfisins og þegar þeir eru búnir að ljúka afplánunÁrni segir það samfélagslega mikilvægt að styðja þessa feður, ekki aðeins þeirra vegna heldur líka vegna barnanna þeirra. Viðmælandi í þættinum er Árni Sveinsson. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    Feður í fangelsi - Kvíðinn fyrir að koma aftur heim
  4. Oct 10

    Sirkabát #18 - PISA er ekkert venjulegt próf

    Er PISA-könnunin stærsta skákmót í heimi? Niðurstöður PISA 2025 sýna að færni íslenskra grunnskólanema hefur aldrei mælst minni. En hvernig virkar PISA-könnunin í raun og veru og hvað má lesa úr niðurstöðunum? Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason rýna í landsskýrslu PISA sem kom út nýverið, ræða flókna tölfræði sem býr að baki og velta því upp hvaða ályktanir er hægt að draga þegar frammistaða íslenskra nemenda er borin saman við önnur lönd og fyrri kannanir. Þeir útskýra hvers vegna PISA er í raun eins og risastórt skákmót þar sem andstæðingurinn er prófspurningin.  Í þættinum er meðal annars farið yfir: Hvers vegna PISA er ekki próf í hefðbundnum skilningi og hvernig Elo-stig úr skák skýra útreikninganaHvaðan 500 stiga viðmiðið kemur og hvað 422 stig í lesskilningi þýða í raunHæfniþrepin og hvers vegna OECD líkir þeim við fatastærðirAf hverju PISA segir margt um hópa en lítið um einstaka nemendurFallið 2018–2022 í samanburði við lækkunina 2022–2025, og Ísland í samanburði við DanmörkuCovid, lesfimi og skortinn á árlegum mælingumHvers vegna England hefur haldið sínu striki og hvað íslenska PISA-skýrslan segir um stöðugleika í stefnumótunFjölgun nemenda af erlendum uppruna og samsetningaráhrifÞýðingar á prófspurningum: skipta þær máli?PISA sem hitamælir en ekki greiningartólSirkabát er þáttur sem Gímaldið gefur út þar sem rýnt er í fréttir í tölum og tölur í fréttum. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    Sirkabát #18 - PISA er ekkert venjulegt próf
  5. Oct 8

    Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar?

    Deilt hefur verið um skilgreiningu á því hvað telst fjölmiðill. Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar samkvæmt skilgreiningu fjölmiðlanefndar og af hverju eru fjölmiðlamenn eða hlaðvarparar ekki endilega blaðamenn?  Þetta eru hugtök sem margir rugla saman enda ekki furða því hlaðvarpssenan hefur aldrei verið sterkari í íslensku fjölmiðlaumhverfi. Í þessum þætti verður gerð tilraun til að skýra af hverju hlaðvörp, hvort sem þau eru skemmtiefni eða eitthvað annað, teljast fjölmiðlar í skilningi laganna eins og þau eru núna en umsjónarmenn þeirra teljast ekki endilega blaðamenn. Helga Arnardóttir blaðamaður Gímaldsins ræðir við Elfu Ýr Gylfadóttur fráfarandi framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar og Sigríði Dögg Auðunsdóttur formann Blaðamannafélagsins sem ætla að reyna greiða úr þessari hugtakaflækju.  Menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytið hefur engu að síður boðað breytingar  á fjölmiðlalögum þar sem til stendur að endurskoða lögin í heild sinni og hluti af því snýr að skráningarskyldu hlaðvarpa.  Til stendur að leggja fram breytingar á lögunum í mars á næsta ári samkvæmt þingmálaskrá.  Áskriftum af hlaðvörpum fjölgar á meðan áskriftum af fréttafjölmiðlum fækkar samkvæmt úttekt Fjölmiðlanefndar. Nokkrir umsjónarmenn vinsælla hlaðvarpa sem teljast fjölmiðlar samkvæmt lagalegri skilgreiningu hafa neitað, af prinsipp ástæðum segja þeir, að skrá hlaðvörpin sín sem fjölmiðla og horfa nú fram á íþyngjandi sektir frá hinu opinbera þrátt fyrir að tvö dómsmál hafi í raun staðfest að hlaðvörp séu sannarlega fjölmiðlar.  Eru fjölmiðlalögin úrelt eftir að hlaðvörpin fóru að ryðja sér til rúms í ríkari mæli?  Nei, segir Elfa Ýr Gylfadóttir fráfarandi framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar sem telur lögin mjög skýr í þessu efni  og raunar séu þau nútímalegri en í mörgum öðrum löndum þar sem þau séu tæknióháð.  Af hverju vilja sumir umsjónarmenn hlaðvarpa ekki skrá þau sem fjölmiðla þótt það sé að öllu leyti frítt og hvaða afleiðingar hefur það að gera það ekki?  Hver er kosturinn við það að skrá sig og hvaða vernd hefur það í för með sér fyrir bæði almenning og fjölmiðilinn sjálfan? Menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytið hefur boðað breytingar  á fjölmiðlalögum þar sem til stendur að endurskoða lögin í heild sinni og hluti af því snýr að skráningarskyldu hlaðvarpa.  Til stendur að leggja fram breytingar á lögunum í mars á næsta ári samkvæmt þingmálaskrá. Viðmælendur í þessum þætti eru Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar og Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins  Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar?
  6. Oct 4

    Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, og ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um pólitískar skoðanir sínar og hvort hún skilgreini sig til vinstri eða hægri; um endurreisn Samfylkingarinnar, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvort vinstrið sé horfið af Alþingi. Kristrún hefur lengi verið með stöðu jafnaðarmannaflokka á heilanum og telur almenna velferð hafa gleymst í umræðu um réttindi stakra hópa. Samstarfið við Ingu Sæland fyllir hana auðmýkt á hverjum degi. Kristrún ræðir líka EES samninginn og breytingar í alþjóðastjórnmálum.  Meðal umræðuefna: Hvernig Samfylkingin fékk sjálfstraustið á ný.Af hverju það er feimnismál að vera vinstrimaður á Íslandi.Af hverju fólk upplifir sig velkomnara í hægri flokkum en vinstri flokkum.Að farið hafi verið of geyst í alþjóðavæðingu.Hvaðan fylgi popúlista kemur og hvernig jafnaðarmenn eigi að svara því.Viðhorf forsætisráðherra til Flokks fólksins sem hún segir misskilinn.Verja þurfi auknum mannauði og fjármagni til að standa vörð um EES-samninginn.Gremja í alþjóðasamstarfi fari ekki lengur fram bak við luktar dyr.Varnir Íslands séu í öruggum höndum, þrátt fyrir stjórnmál Hvíta hússins.Viðtalið við Kristrúnu á Gímaldinu: https://gimaldid.is/kristrun-samfylkingin-hafdi-fjarlaegst-hinn-venjulega-islending/ Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“
  7. Oct 1

    Skuggastríð, svartir listar og ógnin frá Rússlandi

    Í byrjun ágúst hæfði dróni með sprengiefni flutningavél á flugvellinum í Leipzig og þýsk stjórnvöld sögðu Rússa bera ábyrgð. Síðan þá höfum við ítrekað heyrt af svipuðum atvikum, nú síðast þegar rússnesk flugvél rauf lofthelgi Finnlands. Evrópskar leyniþjónustur telja að ógnin frá Rússlandi sé komin á nýtt stig. Þótt Rússar hafi ekki lýst yfir stríði gegn neinu ríki Evrópusambandsins þá er Evrópa komin í einhvers konar skuggastríð. Vopnin eru ekki hefðbundin stríðstól heldur svartir listar, frysting eigna og efnahagsþvinganir.  Aðalheiður Ámundadóttir stjórnmálaskýrandi Gímaldsins rýnir í svörtu listana, en á þeim eru ekki lengur bara ólígarkar og auðmenn heldur áhrifavaldar og álitsgjafar. Eyrún Magnúsdóttir stýrir þættinum.  Meðal efnis:  Evrópusambandið samþykkti á dögunum að framlengja gildistíma á lista yfir 3.000 Rússa sem taldir eru ógna Evrópu.Drónaárásin í Leipzig, lofthelgisbrot í Finnlandi og vaxandi fjölþáttaógnir í Evrópu„Móðurlistinn“ frá 2014 með um 3.000 nöfnum og „áróðurslistinn“ frá 2024 með rúmlega hundrað nöfnumHverjir eru á listunum og hverjir hafa losnað þaðan?Neitunarvaldið og dramatíkin í Brussel í september, þegar listinn var framlengdur til þriggja ára gegn því að tveir menn færu af honumViðbrögð Úkraínu og krafan um að Vladimir Lisin og Vladimir Potanin fari á listannEvrópa hlífir þeim sem hún þarf sjálf á að halda, stáli, nikkeli og palladíumFjölmiðlakonan Xenia Fedorova af RT France sett á áróðurslistann í september Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

About

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/

You Might Also Like