Bíófíklar

Bíófíklar Hlaðvarp

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

  1. Supergirl (2026)

    1d ago

    Supergirl (2026)

    Nýi DC heimurinn heldur áfram göngu sína og stækkar hratt með hverju innslagi. Í fyrrasumar fengu áhorfendur að kynnast nýjum Superman, í glæsilega huggulegri túlkun Davids Corenswet. Nú er komið að frænku hans, ofurstúlkunni Köru Zor-El. Milly Alcock skaut reyndar aðeins upp kollinum í kynningarmynd frænda síns en áhorfendur fá loksins að kynnast henni betur í gerólíkri sóló-mynd í leikstjórn Gregs Gillespie (Lars and the Real Girl, I, Tonya, Cruella ofl.). Hingað til hafa flestir þekkt til Alcocks úr House of the Dragon en Bíófíklar taka innkomu og DC-ævintýrum hennar fagnandi. Annað en bíógestir, því miður… Aðsóknartölur myndarinnar um Supergirl hafa ekki verið upp á marga fiska og viðbrögð gagnrýnenda misjöfn en sagan hennar er alls ekki öll og tölurnar stoppa ekki Kjartan og Tomma frá því að rýna í myndina og skoða hvernig hún stendur sem sjálfstæð saga og hvernig persónuleiki hetjunnar ganga upp. Við gestamækinn að sinni er afburðanördið- og enn fremur myndasöguséníið Svanhvít Ada Sif Björnsdóttir til að taka þátt í umfangi umræðunnar, ásamt tilheyrandi og kannski óhjákvæmilegum útúrdúrum í tengslum við SnyderBros, fjölbreytni, menningarstríð, CW þættina um Supergirl og Star Trek (?). Þetta skýrist auðvitað betur í hlustunni. Flugið verður fróðlegt, furðuleg og margbrotið, eins og umdeilanlega mætti eflaust segja um sjálfa Supergirl. Efnisyfirlit: 00:00 - Trekkara-trivia 07:15 - DC eða Marvel 23:49 - Woman of Tomorrow 35:45 - Supergirl og spoilerar 46:46 - Heildartónn 59:13 - Glötuðu "sérfræðingar" netsins

    1h 14m
  2. Possession (1981)

    4d ago

    Possession (1981)

    Possession segir frá ungum hjónum. Þau Mark og Anna eiga í hjónabandsörðugleikum en Mark grunar Önnu um að eiga í framhjáhaldi með öðrum manni. Hann upplifir furðulega hegðun og dúkka þá upp vísbendingar um að um sé að ræða skelfilegri yfirnátturlegt ástarsamband en hann grunaði í fyrstu. Þetta yfirdrifna en bitastæða hrolllvekjudrama eftir Andrzej Zulawski gerði allt vitlaust víða um heiminn þegar myndin leit fyrst dagsins ljós, eða svo segja sögurnar (enda voru Bíófíklar ekki á lífi á þeim tíma...). Það er ekki erfitt að ímynda sér hvers vegna, enda áhrifamikil ef ekki alræmd mynd með body-horror ívafi sem markaði mikilvæg spor á níunda áratugnum í sínum geira. Auk þess er framleiðslusagan vægast sagt óhugguleg. Mætti jafnvel færa rök fyrir því að velgengni kvikmyndarinnar Obsession eigi einhverjar rætur að rekja til þessarar myndar. Á sinn hátt. Hvernig varð þessi mynd fyrir valinu? Það skrifast nú auðvitað á Frikka fastagest og áframhaldandi tilraun hans til að skóla Kjartan í fjölbreytileika og fjöri hryllingsmynda á meðan Tommi glottir prakkaralega og klórar sér í hausnum yfir myndinni þegar loks kom að því að kíkja aftur á hana í fyrsta sinn í hundlangan tíma. Hvort sem markmið Frikka sé að ganga endanlega frá geðheilsu Kjartans (við gleymum nú seint Meet the Feebles fíaskóinu...) eða dýpka kvikmyndasmekk hans á enn eftir að skýrast. Þá skal bara leggjast aðeins í kennslu um viðbjóðslegt eignarhald og andsetja á sig heyrnartólin. Efnisyfirlit: 00:00 - Hörð viðbrögð 10:04 - Átakanleg framleiðsla 28:07 - Einkennilegir tónar 39:00 - Samanburður við Obsession 53:52 - Frægustu senurnar 57:41 - Samantekt

    1h 2m
  3. Star Wars: The Phantom Menace vs. Attack of the Clones

    Jun 29

    Star Wars: The Phantom Menace vs. Attack of the Clones

    Kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Michaelsson er mættur aftur í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að klára óuppgerð mál, ásamt aukagesti eða svokölluðum lærlingi Einars, Halldór Smári Kárason að nafni. Seinast þegar Einar sast við gestamækinn ræddu þeir tvær af umdeildari Stjörnustríðsmyndum allra tíma, ef ekki þá 'Disney-áranna'.  Vegna fjölda áskorana frá hlustendum, sem virtust kunna að meta þrasið í seinasta Star Wars-tengdum þætti Bíófíkla með Einari, er komið að því að stúdera aðeins forsöguþríleikinn frá George Lucas, nánar til tekið þær tvær myndir sem vel og lengi voru með þeim hötuðustu í syrpunni. Jú jú, enda elska Stjörnustríðsaðdáendur að tuða, svo alltaf fylgir eitthvað hatur með hverri kynslóð þegar kemur að þessum bíóheimi. Það er ómögulega hægt að undirstrika hversu mikið hæp fylgdi komu nýja þríleiksins á sínum tíma, þá sérstaklega The Phantom Menace árið 1999. Eftirvæntingin var gígantísk og legasía þeirrar myndar er þyrnum stráð þó hún hafi alveg frá upphafi átt sína verjendur. Attack of the Clones lenti síðan þremur árum seinna og gerði allt vitlaust í nördaheimum, og enn þann dag í dag er rifist um það (ekki hvort, heldur...) hversu slæmur rómansinn er í þeirri mynd. Mátturinn er sterkur með þessum málefnum, svo drengirnir skiptast á að finna hið góða og illa sem fylgir hundgömlu þrasi frá markhópnum.  Eins og ungur Anakin segir: "Jibbí!!!" Efnisyfirlit: 00:00 - Forleiksþríleikurinn 06:57 - Samanburðarleikur 15:12 - The Phantom Menace 24:32 - Attack of the Clones 36:10 - Prinsessuraunir 46:28 - Sith happens 01:01:05 - Jar Jar Binks 01:13:15 - Hvor er betri? 01:21:11 - "Af hverju" spurningar...

    1h 26m
  4. Scary Movie (2026)

    Jun 8

    Scary Movie (2026)

    Margt hefur breyst síðan Scary Movie leit fyrst dagsins ljós fyrir 26 árum, bæði út frá þróun hryllingsmynda og í hversdagsheiminum almennt. Serían hefur flakkað á milli alls konar ólíkra húmorista og lagðist í góðan dvala eftir misheppnuðu fimmtu myndina frá árinu 2013. Nú eru Wayans-bræður mættir aftur ásamt fleirum úr gamla teyminu, með það að markmiði að hrista duglega í smekklegheitum, velsæmismörkum og hryllingsmyndaformúlum. Hvort húmorinn allur gangi upp er algjört smekksatriði. En smekksatriði sem er þess virði að greina. Kjartan, Tommi og Atli Freyr ræddu þessa sjöttu mynd með góðvini hlaðvarpsins, Arnóri úr Tölvuleikjaspjallinu. Hingað til hefur Arnór ekki leynt ást sína á fyrri myndum seríunnar og fór hann bjartsýnn á þá nýjustu.  Til að koma beint að efninu er öruggt að segja að skoðanir bíófíkla og gests séu misjafnar á endurkomu Wayans-bræðra í þessa syrpu. Er þetta kannski bara mynd þar sem best er að slökkva á heilanum til að geta öskurhlegið yfir ruglinu eins og óður bavíani? Eru brandararnir mögulega orðnir þreyttir og örvæntingafullir? Hversu mikið er að marka fáeina spretti sem ganga upp?  Svörin fást öll í kostulegu hlustuninni, og eldmóði Arnórs.  Efnisyfirlit: 00:00 - Scary Movie 1-5 14:28 - Scary MoVIe 20:55 - Keimlíkir djókar 28:54 - Árshátíðarmynd 36:37 - 'Virkir í athugasemdum' 44:09 - Endurtekningar á teygðum lopa 50:43 - Bingó í salnum 59:19 - Samantekt

    1h 4m

About

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

You Might Also Like