Bylgjan

Bylgjan

Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28.ágúst árið 1986.

  1. 3H AGO

    Sprengisandur 10.05.2026 - Viðtöl þáttarins

    Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Læsi á Íslandi Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Háskóla Íslands Sigríður hefur rannsakað þróun læsis á Íslandi um margra ára skeið. Rannsóknir sýna ótvírætt að læsi hefur hrakað gífurlega á síðustu árum, hvaða áhrif hefur það og hvað er til ráða? Stjórnmál/Evrópumál Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar alþingis Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Stjórnarandstaðan sakar ríkisstjórnina um að hafa átt fullkomlega óviðeigandi samráð við ESB um tímasetningar og fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna, kallar það leynimakk og undanbrögð. Hvað er satt og rétt? Landeyjahöfn  Fannar Gíslason, forstöðumaður Hafnadeildar Vegagerðarinnar  Eitt umdeildasta mannvirki Íslandssögunnar er enn ekki í fullri notkun, 16 árum eftir að það var opnað. Hvað þarf í raun að gera til þess að tryggja snurðulausu starfsemi Landeyjahafnar, er það í raun og veru hægt? Atvinnulíf/skattamál Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.  Ný úttekt leiðir í ljós að fasteignaskattar sveitarfélaga á atvinnuhúsnæði hafa hækkað um 50% að raungildi síðustu tíu árin. Hafa stjórnmálaflokkar lagt fram raunhæfar tillögur til úrbóta í húsnæðismálum í yfirstandandi kosningabaráttu?

    1h 32m

About

Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28.ágúst árið 1986.

You Might Also Like