Skattaspjallið

Samtök skattgreiðenda

Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.

  1. 6d ago

    #37 - Á ríkissjóður að erfa fólk?

    Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir frumvarpi til laga um afnám erfðafjárskatts á Alþingi fyrir stuttu. Hún segir að það sé tímabært að afnema erfðafjárskatt enda sé hér um að ræða mjög óréttláta tvísköttun á fólk. Eðlilegt sé að spyrja hvort það sé sanngjarnt að skattleggja sömu tekjurnar tvisvar, fyrst þegar þeirra er aflað og svo við andlát. Af öllum fjárverðmætum er við skipti á dánarbúi skal greiða skatt í ríkissjóð áður en þau fara til erfingja hans. Rósa er í Skattaspjallinu að þessu sinni og fer yfir tillögu sína og baráttu gegn þessum ósanngjarna skatti og hagfræðileg rök að baki því. Svíþjóð og Noregur hafa farið þá leið að afnema erfðafjárskatt en alls hafa tíu ríki innan OECD fellt skattinn niður. Erfðafjárskattur á sér langa sögu hér á landi en hann var tekinn upp samkvæmt tilskipun konungs árið 1792. Nú til dags er erfðafjárskattur 10 prósent af skattstofni dánarbús. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠upplysingar@skattgreidendur.is

    #37 - Á ríkissjóður að erfa fólk?
  2. Oct 25

    #36 - Hvert stefnir í útgjaldaþróun ríkisins?

    Hvaða tölum getum við treyst í fjárlagaumræðunni og hvað vita skattgreiðendur landsins í raun og veru um útgjöld og útgjaldaþróun? Staðreyndin er sú að ríkisvaldið er furðu hirðulaust um að greina og meta þróun tiltekinna útgjaldaflokka eins og kemur fram í Skattaspjallinu í dag þar sem Sigurður Már Jónsson ræðir við þá Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson gagnasérfræðinga Samtaka skattgreiðenda. Þeir Róbert og Arnar halda áfram að færa okkur fróðleik úr reikningum ríkisins og benda meðal annars á að íslenska velferðarkerfið er að verulegu leyti hannað á tímabili þar sem samfélagið var mun einsleitara. Það er grundvallað á búsetu frekar en vinnuframlagi, tekjum eða iðgjöldum. Einstaklingar langt að komnir geta átt rétt á sjúkra- eða endurhæfingarlífeyri í allt að fimm ár eftir aðeins eins árs lögheimilisbúsetu með möguleika á tveggja ára framlengingu þótt viðkomandi hafi aldrei starfað hér á landi eða greitt iðgjöld. Sami einstaklingur getur einnig átt rétt á örorku- eða ellilífeyri eftir þriggja ára lögheimilisbúsetu á Íslandi. Er þetta nýja Ísland? Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠upplysingar@skattgreidendur.is

    #36 - Hvert stefnir í útgjaldaþróun ríkisins?
  3. Sep 20

    #34 - Hvað borgar þú í skatta?

    Það er þekkt spakmæli að ekkert er víst nema skatturinn og dauðinn. Allir borga skatta með einum eða öðrum hætti en veit fólk almennt hvað það borgar í skatta? Nú hefur Viðskiptaráð smíðað gagnvirka skattareiknivél til að varpa ljósi á hversu mikið einstaklingar borga í skatt. Nú geta skattgreiðendur slegið inn eigin forsendur og séð hvað þeir greiða í skatta á mánuði. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, kom í þáttinn að þessu sinni og benti á að heildarskattbyrði einstaklinga er umtalsvert meiri en ætla mætti út frá þeim sköttum sem koma fram á launaseðlinum einum. Heildarskattbyrðin ræðst af tekjum, neyslumynstri og öðrum aðstæðum hvers og eins. Með reiknivélinni er núna hægt að leggja mat á skattbyrði miðað við eigin forsendur og fá þannig heildstæðari mynd af því hversu stór hluti tekna rennur til hins opinbera í formi skatta. Hugsanlega bregður mörgum í brún þegar endanleg tala birtist!Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠upplysingar@skattgreidendur.is

    #34 - Hvað borgar þú í skatta?
  4. Aug 24

    #33 - Loftslagsskattar í ógöngum

    Hvernig er haldið á hagsmunum Íslands þegar skattar og gjöld tengd loftslagsmálum eru annars vegar? Fáir hafa kynnt sér þennan málaflokk jafn vel og Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum. Hann starfaði um árabil sem ráðgjafi Davíðs Oddssonar, þegar hann var forsætisráðherra, í utanríkismálum og síðar sem sendiherra Íslands. Albert segir að Ísland eigi að nýta sér sérstöðu sína í orkumálum og að íslenskur almenningur muni aldrei sætta sig við að greiða fyrirséðan kostnað við aðgerðir í loftslagsmálum, sem hvíli á alþjóðlegum samþykktum. Albert segir að Ísland eigi ekki að sæta sömu ráðstöfunum í loftslagsmálum og önnur ríki í ljósi þess að ríflega 80 prósent af orkunotkun landsins komi frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Samsvarandi tala hjá Evrópusambandinu er 25%. Albert segir að Íslendingar eigi ekki að vera feimnir við að grípa í taumana og frábiðja sér alþjóðlegar aðgerðir í loftslagsmálum á meðan aðrar þjóðir séu langt á eftir Íslendingum í notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Ísland eigi hins vegar að vera tilbúið að taka þátt þegar aðrar þjóðir fari að nálgast okkur. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠upplysingar@skattgreidendur.is

    #33 - Loftslagsskattar í ógöngum

About

Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.

You Might Also Like