Gímaldið

Gímaldið

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/

  1. 11h ago

    Hallgrímur Helgason: Ónæmur fyrir hakkavélinni

    Hallgrímur Helgason rithöfundur hefur átt gott ár erlendis og er orðin stórstjarna í Noregi með sextíu kílóa þríleikinn sinn. Hann hefur verið lengst allra höfunda á topp tíu metsölulistum þar í landi allt frá því í byrjun þessa árs. Hann segist aldrei hafa búist við þessum viðtökum en hann hafi alltaf dreymt um að loka hringnum með útgáfu þríleiksins í Noregi einkum í ljósi þess hversu mikið er fjallað um samskipti Norðmanna og Íslendinga í bókunum.  Þrátt fyrir miklar annir og veru erlendis vegna kynningarstarfs náði hann engu að síður að skrifa sína nýjustu bók fyrir jólin sem ber þann óvenjulega titil ENGINN DEYR Í IKEA. Þetta er samtímasaga um Alvar,  eldri föður sem lokast inni í IKEA með þriggja ára dóttur sinni yfir nótt og eftir það breytist heimurinn í einhvers konar and -veruleika eins og sögupersónan lýsir sjálf. Bókin er reyfarakennd táknsaga um samtímann, helskrun, ofbeldi, valdasýki stórfyrirtækjanna og doðann sem við finnum öll fyrir í vímukenndu stjórnlausu skruni og stingum höfðinu í sandinn þegar við horfum á stríðsátök, sveltandi fólk og börn í sárri neyð í gegnum litla símtækið okkar. Helga Arnardóttir ræddi við Hallgrím meðal annars um nýju bókina, þríleikinn og ævintýrið í Noregi, hakkavélina í athugasemdakerfinu, einsleitt fjölmiðlaumhverfi hér á landi og föðurhlutverkið en Hallgrímur sem er 67 ára á fjögur börn af ólíkum kynslóðum það elsta er 42 ára og yngsta er 8 ára. Skáldsögurnar Sextíu kíló af sólskini og kjaftshöggum komu báðar út í Noregi á þessu ári og hafa verið á topp tíu metsölulistanum frá því í byrjun janúar. 30 ára eru frá því skáldsaga Hallgríms 101 Reykjavík kom út og í tilefni af vinsældum hans í Noregi verða hún og aðrar eldri bækur hans endurútgefnar þar í landi. Vinsældir Hallgríms hafa haft áhrif á sölu bókanna út um allan heim og hefur rétturinn af þeim verið seldur til tíu svæða þar á meðal Bandaríkjanna.  Ný bók Hallgríms Enginn deyr í IKEA sem kemur út fyrir þessi jól er táknræn samtímasaga sem fjallar um Alvar,  eldri föður sem lokast inni í IKEA með þriggja ára dóttur sinni yfir nótt og eftir það breytist söguheimurinn í einhvers konar and-veruleika.

  2. 2d ago

    Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

    Demókratar stýra senn báðum deildum Bandaríkjaþings eftir sigur í þingkosningunum 3. nóvember. Sigurinn var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Karen Kjartansdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu. Meðal þess sem rætt er um: Bláa bylgjan: Af hverju vanmátu kannanir sigur demókrata og hvers vegna skiluðu kjósendur repúblikana sér illa á kjörstað?Abdul El-Sayed, nýr öldungadeildarþingmaður Michigan og fyrsti múslíminn í öldungadeildinni, og baráttumál hans: „Money out of politics, money into your pocket, Medicare for all“James Talarico, sem sigraði Ken Paxton í Texas þrátt fyrir milljónir Elons MuskPeningar í pólitík og hvers vegna þeir dugðu ekki í þetta sinnRannsóknarvald þingsins, embættismissismál og neitunarvald forsetans: Hvað geta demókratar raunverulega gert?Innbyrðis átök milli vinstri arms Demókrataflokksins og flokksforystunnarStríðið í Íran og hvort það skýri ósigur repúblikanaFramtíð MAGA-hreyfingarinnar og hverjum repúblikanar kenna umMöguleg forsetaefni fyrir 2028: Jon Ossoff, J.D. Vance, Marco Rubio, og hvers vegna Zohran Mamdani getur ekki orðið forsetiHvaða áhrif niðurstöðurnar gætu haft á Evrópu og ÍslandViðmælandi: Karen KjartansdóttirInnslag: Aðalheiður ÁmundadóttirUmsjón: Eyrún Magnúsdóttir Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.

  3. 5d ago

    Demókratarnir sem geta breytt öllu

    Þingkosningar standa fyrir dyrum í Bandaríkjunum. Úrslit þeirra munu ráða miklu um valdsvið Donalds Trump á síðari hluta kjörtímabils hans. Stríðsrekstur forsetans og tollastefna hefur komið verst niður í fylkjum sem venjulega styðja Repúblikana og í mörgum þeirra ríkir nú mikil spenna. Líklegt er talið að Demókratar gætu náð yfirhöndinni í báðum deildum Bandaríkjaþings. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um þýðingu kosninganna, hvað brennur helst á kjósendum og í hvaða fylkjum baráttan um öldungadeildina gæti ráðist. Óvinsælir ráðherrar gætu átt embættismissi yfir höfði sér vinni demókratar meirihluta í þinginu.Tapi Repúblikanar þinginu gæti áhersla forsetans á utanríkismál stóraukist.Hækkað verð á olíu og áburði bítur í helstu vígjum Repúblikana og gagnaver eru orðin kosningamál.Demókrati sem tapaði forkosningum í Michigan lýsir stuðningi við Repúblikana.Hófsemdarframbjóðandinn Jon Ossoff slær í gegn og er orðaður við forsetaframboð eftir óvænt flug í Georgíu.Forsetinn gagnrýnir útlit og klæðaburð eigin frambjóðanda í Texas en dáist að líkamsvexti flokksbróður síns í Ohio.Læknir sem stóð í málaferlum við 700 sjúklinga mætir presti í Kansas.Tveir Dan Sullivan eru á kjörseðlinum í Alaska.Systir Lindsey Graham berst fyrir sæti bróður síns í Suður-Karólínu.Norður-Karólína er líklegust til að falla til Demókrata.Fjallað er um kosningabaráttuna og hvað er í húfi í tveimur greinum á vef Gímaldsins.  Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  4. Oct 24

    Andri Snær: Hjartsláttartruflanir af völdum náttúruverndar

    Andri Snær Magnason hefur ekkert alltaf ætlað sér að bera kyndilinn í náttúruvernd en með bókum sínum Draumalandið og Um tímann og vatnið og samnefndum heimildarmyndum í kjölfarið hefur hann orðið einn af áhrifamestu kyndilberum í þessum málaflokki og vakið fólk um allan heim til vitundar um náttúruvernd, loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélög. Ekki síst hefur hann verið öflugur sagnamaður, sett hlutina í samhengi með persónulegri nálgun og miðlað óskiljanlegum niðurstöðum rannsókna vísindasamfélagsins á aðgengilegan hátt sem snúa að loftslagsbreytingum, súrnun sjávar og afleiðingum þess. Þrátt fyrir þessa velgengi hefur ekkert verið auðvelt að standa undir þessu. Andri hefur sætt hörðum árásum úr mörgum áttum, það hefur markvisst verið gert lítið úr hans vinnu og hann hefur átt í vök að verjast á köflum. Hann segist sjálfur eiga í ást- og haturssambandi við að vera þessi talsmaður náttúrunnar og fengið hjartsláttartruflanir af álagi sem því hefur fylgt. Auk þess upplifir hann sterkt að sumt fólk skilur hreinlega ekki og gæti ekki staðið meira á sama um loftslagsbreytingar, súrnun sjávar og bráðnun jökla og áttar sig ekki á hvaða raunverulegu afleiðingar það hefur. Hann upplifði líka hálfgerða kulnun, sem enginn vissi hvað var fyrir tuttugu árum, eftir útgáfu Draumalandsins og hefur saknað Andra Snæs sem skrifaði ljóðrænar skáldsögur og barnabækur. Helga Arnardóttir ræddi við Andra Snæ Magnason í hlaðvarpi Gímaldsins. Í viðtalinu ræðir hann um myndina Tímann og vatnið, um baráttuna fyrir náttúrunni og segir frá nýrri bók sem hann er með í smíðum og kemur út á næsta ári.    Bókin Um tímann og vatnið sem kom út árið 2019 hefur farið sigurför um heiminn og verið þýdd á 32 tungumál. Andri hlaut ítölsku verðlaunin Premio Tiziano Terzani árið  2021 fyrir bókina Um tímann og vatnið þar sem dómnefnd sagði verkið vera áhrifaríkt neyðarkall til heimsbyggðarinnar.Heimildarmyndin TIME and WATER í leikstjórn Íslandsvinarins Sara Dosa í samvinnu við National Geographic var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar 2026.  Myndin er unnin upp úr bók Andra og umfangsmiklu fjölskyldumyndasafni sem hann hefur viðað að sér í gegnum árin frá afa sínum og ömmu sem voru jöklafarar og miklir náttúruunnendur. Í maí 2026 hlaut Andri Snær WWF-Póllandsverðlaunin - Rödd fyrir lifandi plánetu sem veitt voru fyrir þátttöku hans og hlutverk í heimildarmyndinni Um tímann og vatnið (National Geographic), en verðlaunin eru veitt aðalpersónu kvikmyndar sem hvetur aðra til aðgerða í þágu náttúrunnar. Í september 2026 fékk Andri Snær náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti á degi íslenskrar náttúru en verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.   Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    Andri Snær: Hjartsláttartruflanir af völdum náttúruverndar
  5. Oct 20

    Jón Gnarr, Dagur B. og frelsið í áhrifaleysinu

    Af hverju gat Jón Gnarr ekki verið áfram í þingflokki Viðreisnar og látið til sín taka sem óbreyttur þingmaður? Og hvað ætlar ríkisstjórnin sér með verðtryggðu lánin? Eyrún Magnúsdóttir, Helga Arnardóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Viðreisn og verðtrygginguna. Meðal efnis í þættinum: Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar en ekki flokkinn. Er staða hans sambærileg við stöðu Dags B. Eggertssonar innan Samfylkingarinnar? Rýnt í hvernig þeir hafa spilað ólíkt úr sinni stöðu. Áform um að stytta hámarkslánstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár eru komin í samráðsgátt.Bankastjórar þriggja stærstu bankanna vilja afnema verðtrygginguna. Af hverju gengur ríkisstjórnin ekki lengra?Hvaða áhrif hefur styttri lánstími á tekjulága fyrstu kaupendur?Lífeyrissjóður varar við: verðtryggð lán geti verið skynsamleg í hávaxtaumhverfi.Af hverju megum við ekki bera okkur saman við Færeyinga? Þar bjóðast 30 ára lán á 4,8% föstum vöxtum.Matarverð: Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir á sama tíma og verslanir frysta verð.Hvernig hefur þingmönnum farnast sem yfirgefa þingflokka sína á miðju kjörtímabili?Forystuleysi, veikindaleyfi og þingflokkur án formanns: hvað er að gerast innan Viðreisnar?Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  6. Oct 15

    Feður í fangelsi - Kvíðinn fyrir að koma aftur heim

    Hvernig er að taka á móti börnunum sínum í heimsókn í fangelsi, og hvernig er að snúa aftur í foreldrahlutverkið að afplánun lokinni? Á Íslandi eru ekki til upplýsingar um hversu mörg börn eiga foreldri í fangelsi, þótt slíkar tölur séu til í nágrannalöndunum. Þá hafa rannsóknir á foreldrum í fangelsum að miklu leyti snúist um mæður, en feður hafa síður fengið rödd. Árni Sveinsson starfaði í átján ár sem ráðgjafi fyrir foreldra hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar og hitti þar reglulega feður sem voru að koma úr afplánun. Meistararannsókn hans í afbrotafræði við Háskóla Íslands ber yfirskriftina „Ég var góður pabbi og er góður pabbi“ og tók hann viðtöl við fimm feður sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni. Erla Hlynsdóttir blaðamaður ræðir við Árna um rannsóknina.  Meðal þess sem fram kemur: Feðurnir lýsa aðstæðum til heimsókna í fangelsin sem kuldalegum og óbarnvænum.Viðmót starfsfólks á vakt getur breytt tilhlökkun og gleði í kvíða og óöryggi, bæði hjá börnunum og feðrunumEinn faðirinn sem fékk dóttur sína í heimsókn var miður sín eftir að kynlífshljóð heyrðust þaðan sem aðrir fangar tóku á móti maka sínum. Annar faðir sem afplánaði á Kvíabryggju fór út með börnin til að létta andrúmsloftið en þegar þau komu aftur inn lágu dæmdir barnaníðingar á dótinu þeirra. Það er á herðum nánustu ættingja að koma með börnin í heimsókn til föður síns í fangelsið. Að vera fluttur í fangelsi sem er lengra í burtu frá þeim getur gert heimsóknir stopulli.Mæður fanganna, ömmurnar, lögðu mikið á sig til að viðhalda tengslum þeirra og barnanna.Félagsleg stimplun fylgir þeim út úr fangelsinu og þeir upplifa kvíða við að gera hversdagslega hluti á borð við að fara út í búð eða mæta í skóla barnanna sinna.Einn af feðrunum sem Árni ræddi við var að taka einn við uppeldi dóttur sinnar þegar hann kæmi úr fangelsi og óttaðist að gera mistökSkortur á stuðningi við þá sem foreldra innan fangelsiskerfisins og þegar þeir eru búnir að ljúka afplánunÁrni segir það samfélagslega mikilvægt að styðja þessa feður, ekki aðeins þeirra vegna heldur líka vegna barnanna þeirra. Viðmælandi í þættinum er Árni Sveinsson. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    Feður í fangelsi - Kvíðinn fyrir að koma aftur heim
  7. Oct 10

    Sirkabát #18 - PISA er ekkert venjulegt próf

    Er PISA-könnunin stærsta skákmót í heimi? Niðurstöður PISA 2025 sýna að færni íslenskra grunnskólanema hefur aldrei mælst minni. En hvernig virkar PISA-könnunin í raun og veru og hvað má lesa úr niðurstöðunum? Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason rýna í landsskýrslu PISA sem kom út nýverið, ræða flókna tölfræði sem býr að baki og velta því upp hvaða ályktanir er hægt að draga þegar frammistaða íslenskra nemenda er borin saman við önnur lönd og fyrri kannanir. Þeir útskýra hvers vegna PISA er í raun eins og risastórt skákmót þar sem andstæðingurinn er prófspurningin.  Í þættinum er meðal annars farið yfir: Hvers vegna PISA er ekki próf í hefðbundnum skilningi og hvernig Elo-stig úr skák skýra útreikninganaHvaðan 500 stiga viðmiðið kemur og hvað 422 stig í lesskilningi þýða í raunHæfniþrepin og hvers vegna OECD líkir þeim við fatastærðirAf hverju PISA segir margt um hópa en lítið um einstaka nemendurFallið 2018–2022 í samanburði við lækkunina 2022–2025, og Ísland í samanburði við DanmörkuCovid, lesfimi og skortinn á árlegum mælingumHvers vegna England hefur haldið sínu striki og hvað íslenska PISA-skýrslan segir um stöðugleika í stefnumótunFjölgun nemenda af erlendum uppruna og samsetningaráhrifÞýðingar á prófspurningum: skipta þær máli?PISA sem hitamælir en ekki greiningartólSirkabát er þáttur sem Gímaldið gefur út þar sem rýnt er í fréttir í tölum og tölur í fréttum. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

    Sirkabát #18 - PISA er ekkert venjulegt próf

About

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/

You Might Also Like