Framvindan - Tæknihlaðvarp

Gunnur og Gunnlaugur

Framvindan er hlaðvarp um nýja tækni og gervigreind, þar sem flókin hugtök eru gerð aðgengileg og nýjar tæknilausnir eru skoðaðar og ræddar. Umsjón með þáttunum hafa hjónin Gunnur von Matern og Gunnlaugur Egilsson, sem bæði hafa unnið lengi í tæknigeiranum í Stokkhólmi. Í þáttunum deila þau innsýn sinni með hlustendum sem vilja skilja afleiðingar tækninnar í dag og hvað sé framundan.

Episodes

  1. 11H AGO

    Tilfinningar og spjallbottar + Er gervigreind betri þerapisti og vinur en alvöru manneskja? - Þáttur #006

    Spjallbotti getur í dag verið ráðgjafi, vinur, þerapisti og jafnvel rómantískur félagi. Hún svarar samstundis, er alltaf tiltæk og virðist hlusta án þess að dæma. En hvað gerist þegar fólk fer að leita til véla eftir nánd, skilningi og tilfinningalegum stuðningi? Og hvar liggja mörkin milli gagnlegs hjálpartækis og sambands sem byrjar að taka pláss frá raunverulegum tengslum? Við ræðum hvernig fólk er farið að mynda raunveruleg tilfinningatengsl við gervigreind og hvers vegna þessi samskipti geta orðið bæði persónuleg og djúp. Við skoðum hvað það er sem gerir gervigreind svona sannfærandi í hlutverki ráðgjafa, hlustanda eða félaga. Pétur Maack Þorsteinsson sálfræðingur kemur í þáttinn og við spjöllum um hvað gerist þegar samtöl við vélar byrja að uppfylla félagslegar og tilfinningalegar þarfir sem áður sóttust eingöngu í mannleg tengsl. Við skoðum hvernig þessi þróun getur haft áhrif á nánd, sjálfsmynd og væntingar okkar til samskipta. Við förum yfir hvernig þessi tækni er þegar farin að hafa áhrif á sambönd, geðheilbrigði og daglegt líf, hvaða tækifæri og hættur felast í þessari þróun og hvers vegna umræðan um mörk, ábyrgð og mannleg tengsl verður sífellt mikilvægari. Heimildir: r/MyBoyfriendIsAI - https://www.reddit.com/r/MyBoyfriendIsAI/r/Replika https://www.reddit.com/r/replika/Replika https://replika.comCharacter.AI https://character.aiNYT Character.AI sjálfsvígsmálið https://www.nytimes.com/2024/10/23/technology/characterai-lawsuit-teen-suicide.htmlCBC AI chatbot og sjálfsvígsmálið https://www.cbc.ca/news/world/ai-lawsuit-teen-suicide-1.7540986Der Spiegel — AI deadly love affair https://www.spiegel.de/international/zeitgeist/artificial-intelligence-a-deadly-love-affair-with-a-chatbot-a-e5498031-c2b0-4da4-9192-65da9d3f40d6Dartmouth Therabot rannsókn https://home.dartmouth.edu/news/2025/03/first-therapy-chatbot-trial-yields-mental-health-benefits?utmStanford https://hai.stanford.edu/news/exploring-the-dangers-of-ai-in-mental-health-care?utmAPA — Sambönd við AI https://www.apa.org/monitor/2024/04/chatbots-romantic-relationshipsUS Surgeon General — Einmanaleiki https://www.hhs.gov/sites/default/files/surgeon-general-social-connection-advisory.pdf Þátturinn er tekinn upp í útibúi ⁠⁠⁠⁠Klakinn Studíó⁠⁠⁠⁠ í Stokkhólmi

    45 min
  2. MAY 5

    Myndahöfundar og nýir miðlar: Sköpun, tækni og eignarhald + Hvað er raunverulegt lengur? - Þáttur #005

    Gervigreind getur í dag búið til myndir, teikningar og myndskeið á sekúndum, oft í stíl sem tekur listamenn ár að móta. Hraðinn er nýr. Umfangið er nýtt og þróunin hröð. Svo af hverju er umræðan um höfundarétt, eignarhald og gildi listar enn svona óljós? Við ræðum regluverkið og hvaða breytingar eru fram undan. Myndhöfundurinn Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir kemur í þáttinn og við spjöllum um hvernig þessi þróun hefur áhrif á hennar vinnu. Við skoðum hvað gerist þegar myndir, teikningar og málverk færast inn í heim algríma og hvernig það umbreytir hlutverki höfundarins. Við förum yfir tækin og tólin sem eru að móta þessa þróun, hvað virkar í raun og hvar áskoranirnar liggja. Og við leikum okkur líka: sjálfsmyndabreytingar, dagatal búið til með AI, gamlar myndir gerðar lifandi og spurningin sem fylgir öllu þessu. Hvað er raunverulegt lengur? Í þessum þætti Við leikum okkur: AI myndalíkön og sjálfsmyndabreytingarDagatal búið til með AI-generaðar myndirGamlar myndir gerðar lifandiHárgreiðslu- og útlitsbreytingar í rauntímaHvað er AI dysmorphia og af hverju er það að verða vandamál?Við tölum um: Deepfakes: hvernig þær virka og hvar þær eru að koma uppAI Act: hvað Evrópulöggjöfin þýðir í framkvæmd fyrir myndir og myndböndHöfundaréttur og AI: má tækni læra af verkum listamanna án leyfis?Commercial notkun: hvað gerist þegar auglýsingabransinn og stórir framleiðendur skipta yfir í AI myndirRéttindi listamanna og hvað þeir geta gert í þessu umhverfiTæki og tól vikunnar Whispr Flow — raddgreining sem breytir tali í fullkláraðar setningar í hvaða app sem er. wisprflow.ai Replicate — keyra og fínstilla AI líkön í eigin verkefnum, án þess að nota kóða. replicate.com Nano banana í Google Gemini myndir í spjallbottinum. Þú verður að prófa þetta sjálfur. Higgsfield — Plattformur fyrir AI mynda- og myndbandsgerð. Búðu til myndir, breyttu þér í ólíkar persónur, og gerðu myndbönd með tæknibrellum, allt með einum smelli. higgsfield.ai Structured — skipulagningsapp sem sameinar verkefnalista, dagatal og gamification á einni tímalínu. structured.app Þátturinn er tekinn upp í útibúi ⁠⁠⁠Klakinn Studíó⁠⁠⁠ í Stokkhólmi

    45 min
  3. APR 28

    Menntun á krossgötum - Gervigreind í skólanum, heilinn sem vöðvi og framtíð náms - Þáttur #004

    Harvard prófessor lætur 180 nemendum prufa tvær aðferðir til að læra námsefnið. Fyrst fer hópurinn á fyrirlestur með kennara. Síðan fær hópurinn að læra heima með gervigreindarkennara. Eins próf í lokinn. Gervigreindin vann, og hópurinn lærði tvöfalt meira á færri mínútum. Svo af hverju breytist ekkert í menntakerfinu? Í þessum þætti förum við inn í þetta samtal með Birni Kristjánssyni kennara. Hann er hluti af opinberu tilraunaverkefni sem er að innleiða gervigreind í grunnskóla í Reykjavík akkúrat núna. Við heyrum hvað virkar í raun, hvað er erfitt og hvað kennararnir segja. Við ræðum Harvard rannsóknina sem fæstir tóku mark á, MIT gögnin um 47% samdrátt í taugatengingum, stýrandi notkun gegn verkfæranotkun og Gunnur kynnir þrjá persónulega Claude útsendara og ráðgjafa sem hún notar daglega: heilsuráðgjafann, fjárhagsráðgjafann og verkefnastjórann. Tæki og tól: Sora by OpenAI (myndgenerator): https://openai.com/index/sora-2/Claude (AI assistant og agents): claude.aiNotebookLM by Google: notebooklm.google.comFrekara lesefni: Harvard Gazette — Hvernig gervigreind gæti gjörbreytt skólum 2050: news.harvard.edu/gazette/story/2025/09/how-ai-could-radically-change-schools-by-2050/MIT — Your Brain on ChatGPT: news.mit.eduOECD Digital Education Outlook 2026: oecd.org/en/publications/oecd-digital-education-outlook-2026_062a7394-en.htmlHoward Gardner — Harvard Graduate School of Education: gse.harvard.edu/directory/faculty/howard-gardner Þátturinn er tekinn upp í útibúi ⁠⁠Klakinn Studíó⁠⁠ í Stokkhólmi

    44 min

About

Framvindan er hlaðvarp um nýja tækni og gervigreind, þar sem flókin hugtök eru gerð aðgengileg og nýjar tæknilausnir eru skoðaðar og ræddar. Umsjón með þáttunum hafa hjónin Gunnur von Matern og Gunnlaugur Egilsson, sem bæði hafa unnið lengi í tæknigeiranum í Stokkhólmi. Í þáttunum deila þau innsýn sinni með hlustendum sem vilja skilja afleiðingar tækninnar í dag og hvað sé framundan.

You Might Also Like