Athafnakonan Sylvía Briem Friðjónsdóttir er annar stofnenda Steindal ehf., sem flytur inn og markaðssetur vörumerki á borð við Töst, El Taco Truck og Red Bull á Íslandi. Sylvía hefur víðtæka reynslu af sölu, markaðssetningu og þjálfun. Hún starfaði um árabil hjá Dale Carnegie og hlaut þar alþjóðlega viðurkenningu sem besti þjálfari heims. Hún hélt auk þess úti geisivinsæla hlaðvarpinu Normið, ásamt Evu Mattadóttur um fimm ára skeið. Í þættinum ræðum við hvernig Steindal varð til og hvernig fyrirtækið stækkaði gríðarlega á örfáum árum. Við förum meðal annars yfir um hvernig hugmyndin að Töst og hvernig þeim tókst að landa Red Bull-umboðinu á Íslandi í harðri samkeppni við fimm mun stærri fyrirtæki. Sylvía er einlæg og talar ekkert í kringum hlutina, hún talar opinskátt um ADHD, tilfinninguna að passa ekki inn í rammann sem fylgir hefðbundnu vinnuumhverfi og hvernig hún hefur skapað sér starfsferil sem hentar hennar styrkleikum. Sylvía lýsir sjálfri sér sem „spretthlaupara, ekki langhlaupara“ í vinnu og ræðir mikilvægi þess að þekkja eigin mörk, vinnulag og orku. Sylvía og Emil, eiginmaður hennar, eiga saman þrjá drengi og reka jafnframt fyrirtækið saman. Hún segir frá því hvernig þau ná að sameina hjónaband, fjölskyldulíf og fyrirtækjarekstur, hvaða áskoranir fylgja því að vinna náið með maka sínum og hvað þau hafa lært á leiðinni. Við ræðum einnig af hverju Sylvía og Eva ákváðu að setja Normið í pásu á toppnum eftir fimm ár og hvers vegna það getur stundum verið jafn mikilvægt að vita hvenær á að stoppa og hvenær á að halda áfram. Við hlustun færð þú meðal annars: Hagnýt dæmi um áhættur, fjármögnun og erfiðar ákvarðanir • Lærdóm af svikamáli sem kostaði milljónir • Nýtt sjónarhorn á kvíða, hræðslu og hvernig hægt er að vinna í gegnum hana • Hreinskilna umræðu um mistök, vörur sem gengu ekki upp og glansmynd frumkvöðlastarfsins • Hvatningu til að þora að vera byrjandi og læra hlutina á leiðinni • Innsýn í mikilvægi innsæis, þrjósku og þrautseigju í rekstri • Skilning á því hvernig hjónaband, fjölskyldulíf og fyrirtækjarekstur geta farið saman • Sjónarhorn konu sem hefur þurft að standa með sér í karllægum atvinnugeira • Hugmyndir um hvernig hægt er að byggja starfsferil í kringum eigin styrkleika og orku • Innblástur til að þekkja eigin mörk og vita hvenær tími er kominn til að stoppa Sylvía er hreinskilin, einlæg og full af orku og deilir bæði sigrum og áföllum af mikilli einlægni. Þetta er þáttur fyrir alla sem eru að byggja upp eigið fyrirtæki, hafa upplifað að passa ekki inn í hefðbundinn ramma, standa frammi fyrir mótlæti eða vilja heyra sanna sögu af frumkvöðlastarfi, ekki bara glansmyndina sem birtist á samfélagsmiðlum. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki